Keflavík
1
3
ÍR
0-1 Aníta Björk Axelsdóttir '14
Katla María Þórðardóttir '57 1-1
1-2 Sandra Dögg Bjarnadóttir '71
1-3 Hafdís Erla Valdimarsdóttir '85
27.05.2017  -  14:00
Nettóvöllurinn
1. deild kvenna
Dómari: Árni Heiðar Guðmundsson
Byrjunarlið:
1. Lauren Watson (m)
Brynja Pálmadóttir
2. Þóra Kristín Klemensdóttir
7. Amber Pennybaker ('70)
8. Sveindís Jane Jónsdóttir
11. Kristrún Ýr Holm (f)
15. Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir
17. Katla María Þórðardóttir
21. Íris Una Þórðardóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir
89. Jóney Ósk Sigurjónsdóttir ('87)

Varamenn:
12. Margrét Ingþórsdóttir (m)
4. Anna Rún Jóhannsdóttir
13. Margrét Hulda Þorsteinsdóttir
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir
18. Una Margrét Einarsdóttir ('70)
21. Birgitta Hallgrímsdóttir ('87)

Liðsstjórn:
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Ljiridona Osmani
Ómar Jóhannsson
Haukur Benediktsson
Ólöf Stefánsdóttir
Þorgerður Jóhannsdóttir

Gul spjöld:
Anita Lind Daníelsdóttir ('80)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þessum leik lokið. ÍR-ingar næla sér í sín fyrstu stig í deildinni í sumar með baráttusigri á útivelli, 3-1.

Minni á að skýrsla um leikinn og viðtöl koma inn síðar í dag.
90. mín
Inn:Hrafntinna M G Haraldsdóttir (ÍR) Út:Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir (ÍR)
90. mín
Inn:Sigríður Guðnadóttir (ÍR) Út:Heba Björg Þórhallsdóttir (ÍR)
88. mín
Keflavík vinnur horn, Brynja nær skoti utan af velli eftir lélega hreinsun frá ÍR-stelpum, skotið endar þó framhjá.
87. mín
Inn:Birgitta Hallgrímsdóttir (Keflavík) Út:Jóney Ósk Sigurjónsdóttir (Keflavík)
Birgitta kemur inn og fer beint fram. Keflavík ætla greinilega að reyna að setja mark.
85. mín MARK!
Hafdís Erla Valdimarsdóttir (ÍR)
Stoðsending: Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir
Mónika sækir upp vinstri kantinn og vinnur horn sem hún tekur sjálf. Hafdís Erla er sterkust í loftinu og hamrar boltann með höfðinu í netið.
82. mín
ÍR-stelpur eru sýst hættar og hafa sótt af krafti síðustu mínútur, þær ætla greinilega ekkert að gefa eftir.
80. mín Gult spjald: Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
78. mín
Þrjár skiptingar á síðustu mínútum. ÍR-ingar gera tvær skiptingar með stuttu millibili. Inná koma Hafdís Erla og Guðrún Ósk fyrir Anítu Björk og Dagmar Mýrdal.

Keflvíkingar skiptu út bandarísku stelpunni Amber fyrir sóknarmanninn Unu Margréti. Hún liggur núna fremst ásamt Sveindísi. Keflavík freista þess að jafna.
74. mín
Inn:Guðrún Ósk Tryggvadóttir (ÍR) Út:Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (ÍR)
74. mín
Brotið á Sveindísi fyrir utan teig. Anita Lind tekur spyrnuna, föst lág spyrna sem Eva ver í horn.
71. mín MARK!
Sandra Dögg Bjarnadóttir (ÍR)
Stoðsending: Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir
Keflvíkingar taka útspark sem fyrirliði ÍR-inga hirðir. Hún kemur boltanum á Dagmar sem rennir honum innfyrir á Söndru sem klárar vel og setur boltann upp í þaknetið á nærhorni.
70. mín
Inn:Hafdís Erla Valdimarsdóttir (ÍR) Út:Aníta Björk Axelsdóttir (ÍR)
70. mín
Inn:Una Margrét Einarsdóttir (Keflavík) Út:Amber Pennybaker (Keflavík)
70. mín
Gott spil hjá ÍR-ingum, Aníta sendir á Dagmar sem tekur skot sem fer af varnarmanni og fellur fyrir fætur Söndru Daggar. Þröngt færi sem endar framhjá.
66. mín
ÍR-ingar komast í sókn og vinna horn hægra megin. Mónika Hlíf tekur en boltinn endar í höndunum á Lauren.
64. mín
Keflavíkurstelpur liggja hátt þessa stundina, ætla sér greinilega að setja annað mark.
57. mín MARK!
Katla María Þórðardóttir (Keflavík)
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
Sveindís Jane tekur gríðarlega langt innkast inná teiginn, boltinn dettur fyrir Kötlu Maríu sem klárar færið vel og leggur boltann í markið við stöngina hægra megin, óverjandi fyrir Evu sem hefur hingað til varið allt sem hefur komið á hana.
54. mín
Anita Lind kemur boltanum inná teiginn frá vinstri kantinum, Amber nær móttökunni inni í teig ekki nægilega vel og á laflaust skot sem Eva ver.
53. mín
Mykaylin brýtur á Kötlu Maríu rétt við teighornið hægra megin. Anita Lind tekur spyrnuna en skýtur yfir.
48. mín
Keflavíkurstelpur svara fyrir sig, Anita Lind keyrir upp vinstri kantinn og á góða fyrirgjöf sem Sveindís tekur á móti og skýtur framhjá.
47. mín
Sandra Dögg stimplar sig rækilega inn. Keyrir upp völlinn frá vítateig ÍR að vítateig Keflvíkinga og á skot í stöng.
46. mín
Inn:Sandra Dögg Bjarnadóttir (ÍR) Út:Ástrós Eiðsdóttir (ÍR)
46. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn að nýju. ÍR-ingar gerðu eina breytingu á liði sínu í hálfleik. Inná kemur Sandra Dögg fyrir Ástrósu, hún tekur stöðu hennar á vinstri kantinum.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í þessum leik Keflavíkur og ÍR. Keflavíkurstelpur hafa verið töluvert betri aðilinn í leiknum og sótt stíft en ÍR-stelpur hafa átt sína spretti, m.a. eina mjög góða sókn sem endaði með marki. Staðan er 0-1 í hálfleik, gestunum í vil.
44. mín Gult spjald: Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (ÍR)
Dagmar Mýrdal fær gult spjald fyrir að gefa olnbogaskot þegar henni er haldið í innkasti.
41. mín
Það mætti segja að ÍR-stelpur séu komnar í nauðvörn, Keflavík sækir stíft en leikurinn flýtur lítið þar sem ÍR stelpur ýmist brjóta eða reyna að hreinsa.
40. mín
Amber sækir aukaspyrnu uppi í hægra horninu. Anita Lind tekur og skýtur framhjá, hefði mátt gera betur í þessari stöðu.
38. mín
Anita Lind tekur hornið hægra megin, Eva kýlir boltann í burtu en hann dettur beint fyrir fætur Jóneyjar sem á skot yfir markið.
37. mín
Keflavík sækir stöðugt þessa stundina og fær fjórðu hornspyrnuna á stuttum tíma.
35. mín
Íris Una tekur hornið og úr verður töluvert klafs þar sem ÍR tekst ekki að losa sig við boltann. Sóknin endar hinsvegar með broti á Andreu Magnúsdóttur rétt fyrir utan teig.
33. mín
Keflavíkurstelpur eru að sækja í sig veðrið og sækja töluvert þessa stundina og vinna rétt í þessu hornspyrnu.
32. mín
Sveindís kemur boltanum á Anitu uppi í vinstra horninu. Hún kemur boltanum fyrir og Amber kemst ein á móti Evu en lætur verja frá sér. Illa farið með fínt færi.
30. mín
Sveindís kemst upp í hornið vinstra megin og sendir boltann út í teiginn þar sem Brynja á skot á mark en Eva í marki ÍR ver vel. Eva stendur eins og klettur þarna aftast þessa stundina og hirðir allt sem kemur inn í teig ÍR-inga.
29. mín
Keflavík fær aukaspyrnu úti við hliðarlínu vinstra megin. Íris Una kemur boltanum inn á teiginn en hann endar í fanginu á Evu.
27. mín
Keflavíkurstelpur eru töluvert í að leita að Sveindísi sem spilar ein efst á toppnum en í þetta skiptið er hún rangstæð.
24. mín
Anita Lind tekur hornið fyrir Keflavík sem dettur niður beint fyrir framan markið og endar svo framhjá markinu, erfitt að sjá hver sparkaði í boltann í þvögunni sem myndaðist í kjölfar hornspyrnunnar. Dómarinn dæmir útspark.
23. mín
Sveindís Jane kemst yfir boltann eftir klafs á miðjunni og keyrir inn að marki. Á gott skot á markið sem fer í varnarmann ÍR og aftur fyrir endalínu.
21. mín
Katla María á þrumuskot á mark ÍR langt utan af velli. Alls ekki galin hugmynd en boltinn fer rétt yfir.
19. mín
Markið virðist hafa komið sjálfstraustinu í gang hjá ÍR stelpum sem spila boltanum af öryggi sín á milli á meðan Keflavík reynir að koma sér inní leikinn á ný eftir að hafa verið aðeins betri aðilinn til að byrja með.
14. mín MARK!
Aníta Björk Axelsdóttir (ÍR)
MARK!! Aníta Björk Axelsdóttir kemur gestunum yfir eftir fína sókn. ÍR komust fjórar á þrjár en Aníta var grimm og komst af miklu harðfylgi í gegnum vörn Keflavíkur og setti svo boltann af öryggi í hægra hornið yfir Lauren í marki Keflavíkur.
11. mín
Keflvíkingar fá aukaspyrnu inná vallarhelmingi ÍR-inga Þóra Kristín tekur spyrnuna og Sveindís er örstutt frá því að ná að pota í boltann sem endar framhjá.
10. mín
Það er lítið í gangi eins og er, töluvert miðjumoð og bæði lið að finna sig.
5. mín
Fyrirliði Keflavíkur tekur langt innkast að teig ÍR-inga sem lekur í gegnum vörnina og Katla María kemst í fínasta færi en Eva ver vel.
4. mín
ÍR stelpur fá horn en Keflvíkingar koma því strax í burtu.
2. mín
Keflavíkur stelpur byrja af krafti. Sveindís fær sendingu upp í vinstra hornið og reynir skot á markið sem Eva í marki ÍR grípur það auðveldlega.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn og ÍR byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn en hann lítur vel út og búið að vökva hann. Það er örlítil gola og skýjað, fínustu skilyrði fyrir fótboltaleik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og það er helst að segja frá því að Sveindís Jane markamaskínan í Keflavíkurliðinu kemur inn í byrjunarlið í stað Birgittu, eftir fjarveru í síðustu tveimur leikjum.

ÍR-ingar gera tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta leik en Sandra Dögg fer á bekkinn ásamt Elínu Huld. Inn fyrir þær koma Aníta Björk og Mónika Hlíf.
Fyrir leik
Fyrir mót var Keflavík spáð 3.sæti í deildinni og ÍR-ingum því fimmta.

ÍR-ingar hafa misst töluvert af lykilleikmönnum sínum frá síðustu leiktíð en þá var ÍR varnarlið 1.deildar og fékk einungis á sig 5 mörk í riðlakeppninni. Eftir fyrstu tvær umferðirnar í ár hafa þær hinsvegar fengið á sig 7 mörk.

Keflavík er aftur á móti með tiltölulega ungt og efnilegt lið en markahæsta leikmann 1.deildar í fyrra má einmitt finna innan þeirra raða. Sveindís Jane sem er einungis 16 ára skoraði þá 31 mark í 25 leikjum.
Fyrir leik
Lið Keflavíkur er í 4.sæti deildarinnar eftir nauman sigur í fyrstu tveimur leikjum sínum með 6 stig. Fyrir ofan þær eru HK/Víkingur og ÍA einnig með 6 stig og Hamrarnir með 7 stig.

Hamrarnir skutu sér á toppinn í gær með sigri á Tindastóli í 3.leik sínum. Það er líklegt að þær vermi það sæti ekki lengi þar sem liðin þrjú í 2.-4. sæti leika öll í dag.

Breiðholtsstelpur sitja aftur á móti í 9. og næst neðsta sæti deildarinnar með 0 stig.
Fyrir leik
Góðan dag! Hér verður fylgst með leik Keflavíkur og ÍR í 3.umferð fyrstu deildar kvenna. Leikið er á Nettóvellinum í Keflavík.
Byrjunarlið:
1. Eva Ýr Helgadóttir (m)
3. Andrea Magnúsdóttir
8. Aníta Björk Axelsdóttir ('70)
9. Klara Ívarsdóttir
10. Ástrós Eiðsdóttir ('46)
11. Andrea Katrín Ólafsdóttir (f)
13. Mykaylin Rosenquist
18. Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir ('90)
20. Heba Björg Þórhallsdóttir ('90)
23. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir ('74)
24. Bryndís María Theodórsdóttir

Varamenn:
12. Ingibjörg Fjóla Ástudóttir (m)
8. Hrafntinna M G Haraldsdóttir ('90)
14. Guðrún Ósk Tryggvadóttir ('74)
15. Sigríður Guðnadóttir ('90)
20. Sandra Dögg Bjarnadóttir ('46)
21. Jónína Björk Bogadóttir
24. Hafdís Erla Valdimarsdóttir ('70)

Liðsstjórn:
Guðmundur Guðjónsson (Þ)
Tara Kristín Kjartansdóttir
Helga Dagný Bjarnadóttir
Gunnlaugur Jónasson
Karen Rut Ólafsdóttir
Dagbjört Sól Guðlaugsdóttir
Þórdís Sara Þórðardóttir

Gul spjöld:
Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir ('44)

Rauð spjöld: