Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Leiknir R.
1
3
KA
Kjartan Andri Baldvinsson '12 1-0
1-1 Gunnar Valur Gunnarsson '31
1-2 Jóhann Helgason '49
1-3 Ævar Ingi Jóhannesson '92
19.05.2012  -  14:00
Leiknisvöllur
1. deild karla
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Byrjunarlið:
Vigfús Arnar Jósepsson ('79)
Óttar Bjarni Guðmundsson
Eyjólfur Tómasson
9. Kolbeinn Kárason ('66)
10. Ólafur Hrannar Kristjánsson
11. Brynjar Hlöðversson ('79)
21. Hilmar Árni Halldórsson

Varamenn:
14. Birkir Björnsson
88. Sindri Björnsson ('79)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Óttar Bjarni Guðmundsson ('55)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komið þið sæl og blessuð! Hér verður bein textalýsing frá leik Leiknis og KA í 1. deild karla. Aðstaða til textalýsingar á Leiknisvelli er ekki eins og best verður á kosið svo lýsingin verður ekki mjög ör. Munum þó greina frá helstu atvikum og framþróun leiksins.

Leikurinn er í 2. umferð en bæði þessi lið töpuðu í fyrstu umferð. KA tapaði 3-2 fyrir ÍR á Hertz-vellinum á meðan Leiknir tapaði á sama tíma 2-0 fyrir Þór. Bæði lið eru því væntanlega þyrst í þrjá punkta í dag.

Sóknarmaðurinn David Disztl sem lék með Þór í fyrra mun leika sinn fyrsta deildarleik fyrir KA í dag. Hann var í ham, lagði upp 2 og skoraði 1 gegn Magna í bikarnum í vikunni.

Leiknismönnum hefur gengið vel með KA á heimavelli undanfarin ár. Markatalan síðan 2006 er 11-3 fyrir Leikni. Öll þrjú mörk KA komu í eina sigurleiknum síðan þá, 3-2 sigri.

Dómari í dag er Rauði baróninn sjálfur, Garðar Örn Hinriksson. Það gefur þessum leik bara meira krydd!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn. Diztlarinn byrjar hjá KA. Leiknir er án nokkurrar sterkra leikmanna. Damir Muminovic, Andri Steinn Birgisson og Fannar Arnarsson eru meiddir.
Magnús Sigurjón Guðmundsson:
Heyri geðveikisöskrin í Willum óma um Ghettóið og kastast af Asparfellinu. Þetta verður gott sumar. #fotbolti #einsogmaggieinars #3stigheim
1. mín
Leikurinn er hafinn!
10. mín
Breyting á upphaflegu byrjunarliði Leiknis. Kristján Páll hefur meiðst í upphitun og í byrjunarliðið kemur Pétur Már Harðarson sem kom til Leiknis frá Gróttu í vetur.
12. mín MARK!
Kjartan Andri Baldvinsson (Leiknir R.)
Leiknismenn taka forystuna með laglegu marki! Zlatko með fyrirgjöfina á Kjartan Andra sem snýr mann af sér og skýtur upp í þaknetið. Óskabyrjun heimamanna.
28. mín
Leikurinn verið fremur rólegur. KA hefur samt fengið dauðafæri. Jóhann Helgason skaut í slánna fyrir opnu marki eftir að Eyjólfur Tómasson varði gríðarlega vel.
31. mín MARK!
Gunnar Valur Gunnarsson (KA)
Einfalt en árangursríkt og KA hefur jafnað. Gunnar Valur skallaði boltann yfir Eyjólf og í makrið eftir aukaspyrnu. 1-1.
34. mín
KA nælægt því að komast yfir! Bjarki Baldvinsson náði skoti sem fór í hliðarnetið eftir misskilning milli varnarmanns og markvarðar Leiknis.
45. mín
Það er kominn hálfleikur í leiknum. Jafnræði með liðunum tveimur.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
49. mín MARK!
Jóhann Helgason (KA)
KA hefur komist yfir! Sá ekki alveg hver skoraði en við skráum þetta á Jóhann þar til annað kemur í ljós. Stefán Eggertsson var nálægt því að ná að bjarga á línu en boltinn skaust upp í þaknetið.
51. mín Gult spjald: Ívar Guðlaugur Ívarsson (KA)
55. mín Gult spjald: Óttar Bjarni Guðmundsson (Leiknir R.)
61. mín
Inn:Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA) Út:Ívar Guðlaugur Ívarsson (KA)
62. mín
David Disztl með skemmtilegt skot í stöngina! Þó Leiknismenn séu meira með boltann þá eru þeir lítið sem ekkert að skapa sér. Færin eru KA-manna!
66. mín
Inn:Brynjar Benediktsson (Leiknir R.) Út:Kolbeinn Kárason (Leiknir R.)
79. mín
Inn:Sindri Björnsson (Leiknir R.) Út:Brynjar Hlöðversson (Leiknir R.)
79. mín
Inn:Aron Fuego Daníelsson (Leiknir R.) Út:Vigfús Arnar Jósepsson (Leiknir R.)
82. mín Gult spjald: Atli Sveinn Þórarinsson (KA)
86. mín
Kjartan Andri í dauðafæri fyrir Leikni, kom sér í aðeins of þrönga stöðu og skot hans varið.
92. mín MARK!
Ævar Ingi Jóhannesson (KA)
KA kemst þremur mörkum yfir og klárar leikinn! Varamaðurinn Ævar Ingi skorar! Disztl átti skot í þverslánna, markvörður Leiknis festir sig í netinu og Ævar á ekki í vandræðum með að koma knettinum í netið!
93. mín
LEIK LOKIÐ Um leið og Leiknir tók miðjuna var flautað af.
Byrjunarlið:
29. Sandor Matus (m)
2. Gunnar Valur Gunnarsson
6. Atli Sveinn Þórarinsson
7. Bjarki Baldvinsson
8. Brian Gilmour
10. Bessi Víðisson
11. Jóhann Helgason
14. Ívar Guðlaugur Ívarsson ('61)
27. Darren Lough
28. Jakob Hafsteinsson

Varamenn:
18. Fannar Hafsteinsson (m)
5. Ómar Friðriksson
7. Ævar Ingi Jóhannesson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson ('61)
21. Kristján Freyr Óðinsson

Liðsstjórn:
Elmar Dan Sigþórsson

Gul spjöld:
Atli Sveinn Þórarinsson ('82)
Ívar Guðlaugur Ívarsson ('51)

Rauð spjöld: