Allianz-Arena
laugardagur 19. maí 2012
kl. 18:45
Meistaradeild Evrópu
Dómari: Pedro Proenca Oliveira Alves Garcia

FC Bayern 4 - 5 Chelsea
1-0 Thomas Müller ('83)
1-1 Didier Drogba ('88)
2-1 Philipp Lahm ('120, víti)
3-1 Mario Gomez ('120, víti)
3-2 David Luiz ('120, víti)
4-2 Manuel Neuer (m) ('120, víti)
4-3 Frank Lampard ('120, víti)
4-4 Ashley Cole ('120, víti)
4-5 Didier Drogba ('120, víti)

Byrjunarlið:
1. Manuel Neuer (m)
7. Franck Ribery
('97)
10. Arjen Robben
17. Jerome Boateng
21. Philipp Lahm
25. Thomas Müller
('86)
26. Diego Contendo
31. Bastian Schweinsteiger
33. Mario Gomez
39. Toni Kroos
44. Anatoliy Tymoshchuk
Varamenn:
22. Tom Starke (m)
4. Dante
('97)
5. Daniel Van Buyten
('86)
9. Nils Petersen
13. Rafinha
14. Takashi Usami
23. Danijel Pranji
Gul spjöld:
Bastian Schweinsteiger ('3)
Thomas Müller ('81)
Rauð spjöld:
1. Manuel Neuer (m)
7. Franck Ribery
('97)
10. Arjen Robben
17. Jerome Boateng
21. Philipp Lahm
25. Thomas Müller
('86)
26. Diego Contendo
31. Bastian Schweinsteiger
33. Mario Gomez
39. Toni Kroos
44. Anatoliy Tymoshchuk
Varamenn:
22. Tom Starke (m)
4. Dante
('97)
5. Daniel Van Buyten
('86)
9. Nils Petersen
13. Rafinha
14. Takashi Usami
23. Danijel Pranji
Gul spjöld:
Bastian Schweinsteiger ('3)
Thomas Müller ('81)
Rauð spjöld:
120. mín
Leik lokið!
Leiknum er lokið! Þvílíkur leikur. Bayern Munchen var mun betra liðið í leiknum og var með undirtökin á vítaspyrnukeppninni, en Chelsea tókst einhvern veginn að stela sigrinum.
Didier Drogba er eflaust hetja Chelsea. Drogba og Cech.

Mark - víti Didier Drogba (Chelsea)
DIDIER DROGBA TRYGGIR CHELSEA MEISTARADEILDARTITILINN! SVEKKJANDI FYRIR BAYERN OG TOTTENHAM, EN FRÁBÆRT VÍTI HJÁ DROGBA, SENDI NEUER Í VITLAUSA ÁTT. ÞVÍLÍK YFIRVEGUN!!

BASTIAN SCHWEINSTEIGER KLUÐRAR! HANN SKYTUR I STÖNGINA! CHELSEA GETUR UNNIÐ MEÐ MARKI NUNA!!! ÞETTA ER OTRULEGT

Mark - víti Ashley Cole (Chelsea)
Ashley Cole jafnar fyrir Chelsea! Öruggt víti, frábærlega skotið.
Ashley Cole jafnar fyrir Chelsea! Öruggt víti, frábærlega skotið.
120. mín
Ivica Olic með síðustu spyrnuna sína fyrir Bayern Munchen, hann er á förum í sumar!
PETR CECH VER! Góð markvarsla, fínt víti en frábær markvarsla!

Mark - víti Frank Lampard (Chelsea)
Frank Lampard þrumar honum í þaknetið, flott víti, Neuer hefði aðeins varið með að standa í lappirnar. Nú þarf Bayern að skora úr næsta víti til að sigra. Olic stígur á punktinn!

Mark - víti Manuel Neuer (m) (FC Bayern)
MANUEL NEUER SKORAR!!!!!!
Öruggt víti í bláhornið! Cech nálægt því að verja, en þvílíkt mark!!

Mark - víti David Luiz (Chelsea)
David Luiz með gríðarlega langt tilhlaup og neglu upp í hornið, algjörlega óverjandi. Enginn í heimi hefði varið þetta!

Mark - víti Mario Gomez (FC Bayern)
Mario Gomez með öruggt víti fast í hornið. Cech skutlaði sér í rétta átt en átti aldrei séns.

MATA KLUÐRAR VITI! MANUEL NEUER VARÐI VEL!

Mark - víti Philipp Lahm (FC Bayern)
Lahm skorar úr fyrsta vítinu! Petr Cech var í boltanum með fingurgómum beggja handa en boltinn var of fastur

Lahm, fyrirliði Bayern, tekur fyrsta vítið!

Allir að gera sig klára fyrir vítaspyrnukeppnina. Þvílík spenna ...

Lokaflautan! Vítaspyrnukeppni! Ruglað, þvílík spenna. Þvílíkur leikur.

Gult spjald: Fernando Torres (Chelsea)
Lokamínútan er í gangi og Torres var að fá gult spjald fyrir brot á Contento (eða það sem hann sagði eftir brotið við dómarann). Allavega gult spjald.

118. mín
Bayern ræður ferðinni en er ekki að skapa færi. Stefnir enn í vító

116. mín
Enskt lið hefur aldrei tapað fyrir þýsku liði í vítaspyrnukeppni á stórmóti (ef það er ekki talið með landslið).

115. mín
Lítið að gerast, fimm mínútur eftir. Eins og staðan er núna stefnir þetta í vítaspyrnukeppni.

114. mín
Torres skallar hornspyrnuna frá og Gary Cahill er farinn af velli með einhver smávægileg meiðsli, kemur væntanlega inná eftir smá aftur.

112. mín
Bæjarar nálægt því að skora en Gary Cahill bjargar marki með að henda sér í boltann og koma honum í horn.
Ótrúleg spenna. Robben tekur horn.

110. mín
Nokkrar góðar Twitter færslur:
Pétur Sæmundsen @PeturSaem
Aldrei láta örfættan mann taka víti #aldrei #championsleague #fotbolti
Skuli Halldors @skulihalldorss
500kall á Torres á 119. #einhver #fotbolti
Kristinn Johannesson @diddinn23
Af hverju tók ekki Schweinsteiger penalty-id #ChampionsLeague #fotbolti

108. mín
Ivica Olic með skot rétt framhjá eftir frábæra sendingu frá Lahm!

106. mín
Síðari hálfleikur hafinn!
Síðari hálfleikur hafinn!
105. mín
Hálfleikur!
Hálfleikur!
104. mín
Lítið sem ekkert að gerast. Virðist vera jafnt í hálfleik.

97. mín
Dante (FC Bayern)
Franck Ribery (FC Bayern)
Dante (FC Bayern)
Franck Ribery (FC Bayern)
95. mín
PETR CECH VER!!! Arjen Robben setti hann hægra megin, en Cech varði þetta, ótrúlegt!

94. mín
Ribery er ónýtur þarna á vellinum eftir þetta, reyndar búinn að vera það frá því í fyrri hálfleik, en samt!

Gult spjald: Didier Drogba (Chelsea)
94. mín
VÍTIIII!! Didier Drogba braut á Franck Ribery innan teigs og fékk réttilega að líta gula spjaldið! Hero to Zero?

91. mín
Framlengingin er hafin og Chelsea byrjar betur. Fernando Torres byrjar ferskur og náði ágætis sprett þarna, en Bayern koma hættunni frá.

90. mín
Venjulegum leiktíma lokið!
Venjulegum leiktíma lokið!
90. mín
Þrjár mínútur eru komnar. Það er aukaspyrna sem Chelsea á fyrir utan teig, hvað gerist eiginlega??

Þrem mínútum bætt við venjulegan leiktíma! Þetta er ótrúlegt, 1999 ævintýrið að koma í bakið á Bayern aftur?

88. mín
DIDIER DROGBA!!! Juan Mata með hornspyrnuna, já Chelsea fékk hornspyrnu! Drogba stangaði hann í netið, þvílíkt og annað eins!!!

MARK! Didier Drogba (Chelsea)
86. mín
Daniel Van Buyten (FC Bayern)
Thomas Müller (FC Bayern)
Daniel Van Buyten (FC Bayern)
Thomas Müller (FC Bayern)
84. mín
Fernando Torres (Chelsea)
Salomon Kalou (Chelsea)
Fernando Torres (Chelsea)
Salomon Kalou (Chelsea)
83. mín
THOMAS MUELLER! Hann fékk boltann beint á höfuðið eftir fyrirgjöf frá Bastian Schweinsteiger að mér sýndist. Boltinn fór í jörðina og slá og inn! Þvílíkt mark, þetta lá í loftinu!

MARK! Thomas Müller (FC Bayern)
81. mín
Gult spjald: Thomas Müller (FC Bayern)
78. mín
Thomas Mueller í góðu færi! Fékk boltann inni í teig, fékk frítt skot, en boltinn fór rétt framhjá.

75. mín
Chelsea hefur aðeins verið að komast meira og meira inn í leikinn, en þeir eru vanir því á síðasta stundarfjórðungnum. Verða spennandi fimmtán mínútur!

72. mín
Florent Malouda (Chelsea)
Ryan Bertrand (Chelsea)
Florent Malouda (Chelsea)
Ryan Bertrand (Chelsea)
72. mín
Robben með skot fyrir utan, en Cech ver þetta!

69. mín
Hornspyrna númer 14 hjá Bayern núna, gegn engri hjá Chelsea!

66. mín
Það er alla vega ekki hægt að segja að þetta sé leiðinlegur leikur, það er nokkuð ljóst!

63. mín
Chelsea ekki að spila neitt ósvipað og gegn Barcelona, en það hafðist og gæti alveg eins gerst hér. Ekki fallegasti fótboltinn, en getur oft verið nóg til þess að lyfta bikurum!

59. mín
Arjen Robben virtist fá frítt færi, en Ashley Cole komst fyrir. Þetta hefði getað farið inn auðveldlega!

56. mín
Franck Ribery skorar!!! En hann er rangstæður! Arjen Robben átti skotið, það fór af varnarmanni og Ribery setti hann í netið, en sá franski var hinsvegar ekki réttstæður svo markið var dæmt af!

47. mín
Bæjarar halda áfram að sækja. Ætlar þetta að verða einstefna? Hraðinn í þeim er ótrúlegur, Robben og Ribery eru að stinga menn af. Þetta virðist ætla að verða erfitt fyrir Chelsea í dag.

46. mín
Jæja, síðari hálfleikur kominn af stað! Fáum við einhver mörk núna? Það er von alla vega!

45. mín
Hálfleikur:
Bayern búið að vera betri aðilinn í dag, en Chelsea hefur varist vel. Gomez gæti verið með fimmu í þessum leik, en þeir bláu hafa einnig verið að fá sín væri en ekki nýtt þau.

42. mín
Mario Gomez aftur í dauðafæri!! Fær boltann inn í teig, Cahill leyfir honum að snúa en Gomez neglir honum yfir markið. Meðað við nýtingu framherjans á þessu ári, þá hefði þessi nú átt að vera inni.

39. mín
Gomez í dauðafæri! Reyndi hjólhest, boltinn barst á Robben sem sendi hann á Ribery. Frakkinn kom með fyrirgjöfina, en fyrsta snertingin hjá Gomez var slök og rann sóknin út í sandinn!

37. mín
Frábær sókn hjá Chelsea! Góð spilamennska sem leiddi að skotfæri fyrir Salomon Kalou, en Manuel Neuer sá við honum!

36. mín
Thomas Mueller með dauðafæri! Hann fékk boltann þarna eftir fyrigjöf og skaut að marki, en boltinn rétt framhjá. Þvílíkur leikur sem er í gangi hérna!

34. mín
Juan Mata setur boltann yfir markið, engin hætta í þessu.

33. mín
Gary Cahill fiskar aukaspyrnu fyrir Chelsea rétt fyrir utan teig! Drogba eða Mata taka þetta sennilegast.

32. mín
Robben með skot! Vel spilað hjá heimamönnum þarna. Mario Gomez fékk boltann, ætlaði að senda á Kroos, en boltinn endaði hjá Robben sem skaut á markið en Cech átti ekki vandræðum með að handsama boltann.

30. mín
Jose Bosingwa neglir aftan í Ribery og hann liggur eftir, ekki góðar fréttir fyrir Bæjara.

28. mín
Robben með aukaspyrnu í vegginn. Maður hefur oft séð hollenska leikmanninn gera betur.

22. mín
Cech varði þetta skot virkilega vel! Robben með fast skot og Cech varði í samskeytin, þetta verður eitthvað þessi leikur! Chelsea vill helst komast með hreint mark í fyrri hálfleik myndi ég halda!

20. mín
Heimamenn eru stórhættulegir! Robben nálægt því þarna að koma boltanum inn, en vörn Chelsea stendur þetta af sér!!

18. mín
Robben með skot framhjá eftir hornspyrnu frá Ribery. Heimamenn að koma sterkir inn í leikinn.

13. mín
Mario Gomez með skalla rétt yfir markið eftir sendingu frá Franck Ribery!

6. mín
Leikurinn byrjar heldur rólega, en þeir bláklæddu byrja samt sem áður örlítið betur í dag.

3. mín
Virkilega vitlaust af Schweinsteiger. Reyndi að stöðva boltann með handleggnum og fékk gult fyrir vikið.

Gult spjald: Bastian Schweinsteiger (FC Bayern)
1. mín
Leikurinn er hafinn!!
Leikurinn er hafinn!!
Fyrir leik
Það er allt til reiðu! Frank Lampard og Philipp Lahm takast í hendur og þá getur leikurinn hafist.

Ryan Bertrand þreytir frumraun sína í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, þvílík byrjun er það. Hann hefur aldrei leikið áður í Meistaradeildinni með Chelsea!

Byrjunarliðin eru komin í hús! Þetta fer brátt að hefjast!

David Alaba, Holger Badstuber og Luiz Gustavo eru allir frá í dag, þar sem þeir eru í banni. Það sama má segja um John Terry, Raul Meireles, Branislav Ivanovic og Ramires.

Hann er hinsvegar ekki með í kvöld eins og svo margir aðrir, en ég ætla aðeins að fara yfir meiðslalistann og bönn.

Chelsea hinsvegar freistir þess ennþá að vinna keppnina í fyrsta skiptið. Liðið hefur einu sinni komist í úrslit, en tapaði fyrir Manchester United eftir vítaspyrnukeppni þar sem John Terry þótti vinsæll.

Bayern getur í kvöld komist í hóp með liðum sem hafa unnið Evrópukeppnina fimm sinnum. AC Milan, Liverpool og Real Madrid eru einu liðin sem hafa náð þeim áfanga.

Það er þýska liðið sem hefur örlítið forskot á það enska, enda leikur liðið á heimavelli sínum í dag. Tekið er nú samt fram að leikvöllurinn var löngu ákveðinn!

Komið þið sæl og blessuð og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu okkar af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þar sem FC Bayern og Chelsea mætast á Allianz-Arena í München.

1. Petr Cech (m)
3. Ashley Cole
4. David Luiz
8. Frank Lampard
10. Juan Mata
11. Didier Drogba
12. John Obi Mikel
17. Jose Bosingwa
21. Salomon Kalou
('84)
24. Gary Cahill
34. Ryan Bertrand
('72)
Varamenn:
22. Ross Turnbull (m)
5. Mikael Essien
6. Oriol Romeu
9. Fernando Torres
('84)
15. Florent Malouda
('72)
19. Paulo Ferreira
23. Daniel Sturridge
Gul spjöld:
Didier Drogba ('94)
Fernando Torres ('120)
Rauð spjöld:
1. Petr Cech (m)
3. Ashley Cole
4. David Luiz
8. Frank Lampard
10. Juan Mata
11. Didier Drogba
12. John Obi Mikel
17. Jose Bosingwa
21. Salomon Kalou
('84)
24. Gary Cahill
34. Ryan Bertrand
('72)
Varamenn:
22. Ross Turnbull (m)
5. Mikael Essien
6. Oriol Romeu
9. Fernando Torres
('84)
15. Florent Malouda
('72)
19. Paulo Ferreira
23. Daniel Sturridge
Gul spjöld:
Didier Drogba ('94)
Fernando Torres ('120)
Rauð spjöld: