Fjölnisvöllur
sunnudagur 20. maí 2012
kl. 14:00
1. deild karla
Aðstæður: Sól og smá gola
Dómari: Leiknir Ágústsson
Fjölnir 2 - 2 BÍ/Bolungarvík
0-1 Pétur Georg Markan ('42)
0-2 Andri Rúnar Bjarnason ('65)
1-2 Viðar Ari Jónsson ('78)
2-2 Felix Hjálmarsson ('81)
Myndir: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Byrjunarlið:
1. Steinar Ö. Gunnarsson (m)
2. Bergsveinn Ólafsson
3. Árni Kristinn Gunnarsson
9. Bjarni Gunnarsson ('77)
14. Ágúst Örn Arnarson ('73)
15. Haukur Lárusson
16. Pablo Punyed
20. Illugi Þór Gunnarsson
26. Þórir Guðjónsson ('64)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Varamenn:
6. Geir Kristinsson
10. Aron Sigurðarson ('64)
19. Marinó Þór Jakobsson
21. Kolbeinn Kristinsson
24. Felix Hjálmarsson ('73)
30. Marteinn Örn Halldórsson (m)

Gul spjöld:
Viðar Ari Jónsson ('85)
Pablo Punyed ('67)
Illugi Þór Gunnarsson ('59)
Haukur Lárusson ('30)

Rauð spjöld:

Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Góðan og margblessaðan. Hér verður bein textalýsing frá leik Fjölnis og BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði þessi lið gerðu jafntefli í fyrstu umferðinni um síðustu helgi. Fjölnir sótti stig til Ólafsvíkur og BÍ/Bolungarvík gerði jafntefli heima gegn Víkingi R.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Í vikunni sigraði Fjölnir lið Þórs Þorlákshafnar 6-0 í bikarnum á meðan BÍ/Bolungarvík lagði ÍH 4-3.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn í sólinni í Grafarvogi.
Eyða Breyta
1. mín
Fjölnir á fyrstu sóknina og Bjarni Gunnarsson skallar framhjá eftir fyrirgjöf frá Þóri Guðjónssyni.
Eyða Breyta
5. mín
Fjölnismenn byrja af meiri krafti og Þórir á sendingu á Illuga Þór Gunnarsson sem á þrumuskot úr vítateigsboganum en boltinn fer talsvert framhjá.
Eyða Breyta
10. mín
Fyrsta marktilraun skástriksins. Hafsteinn Rúnar Helgason skýtur hátt yfir úr aukaspyrnu á fínum stað upp við vítateigslínuna.
Eyða Breyta
12. mín
Bjarni Gunnarsson á skot af stuttu færi eftir hornspyrnu en Þórður Ingason ver gegn sínum gömlu félögum.
Eyða Breyta
17. mín
Besta færi leiksins! Ingimar Elí Hlynsson á stungusendingu inn á Pétur Georg Markan sem kemst einn í gegn. Pétur nær þó ekki að skora gegn sínum gömlu félögum því Steinar Örn Gunnarsson sér við honum í markinu, ekki nógu vel klárað hjá Pétri sem starfar sem kennari í Súðavíkurskóla á Vestfjörðum.
Eyða Breyta
23. mín Gult spjald: Pétur Georg Markan (BÍ/Bolungarvík)

Eyða Breyta
24. mín
Bjarni Gunnarsson fær langa sendingu fram völlinn og reynir að lauma boltanum framhjá Þórði en hann er vandanum vaxinn í markinu.
Eyða Breyta
27. mín
Ágúst Örn Arnarson kemst inn fyrir hægra megin í fínt færi en skot hans fer framhjá. Águst var einn á auðum sjó og hefði auðveldlega getað farið nær markinu áður en hann lét skotið ríða af.
Eyða Breyta
30. mín Gult spjald: Haukur Lárusson (Fjölnir)
Rauðhærða varnartröllið stimplar sig inn með því að tækla Hauk Ólafsson út við hliðarlínu.
Eyða Breyta
31. mín
Fjölnismenn halda áfram að fá fín færi án þess að nýta þau. Illugi Þór á fína stungusendingu inn á Ágúst en skot hans fer yfir. Ágúst var togaður niður í þann mun sem hann lét skotið ríða af en Leiknir Ágústsson dæmir ekkert.
Eyða Breyta
34. mín Gult spjald: Haukur Ólafsson (BÍ/Bolungarvík)

Eyða Breyta
42. mín MARK! Pétur Georg Markan (BÍ/Bolungarvík)
Pétur Georg Markan nær að koma BÍ/Bolungarvík yfir gegn sínum gömlu félögum. Alexander Veigar Þórarinsson átti frábæra utanfótarsendingu inn fyrir á Pétur sem lék á Steinar Örn í markinu áður en hann renndi boltanum í netið.
Eyða Breyta
45. mín
BÍ/Bolungarvík leiðir í leikhléi með marki Péturs Markan. Fjölnismenn hafa heilt yfir fengið fleiri góð færi en það eru mörkin sem telja.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn.
Eyða Breyta
55. mín
Fjölnismenn halda áfram sem frá var horfið í fyrri hálfleik og eru meira ógnandi.
Eyða Breyta
59. mín Gult spjald: Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Illugi fer í bókina fyrir að sparka boltanum einn meter í burtu eftir að búið var að flauta. Leiknir dómari vill ekki sjá slíkt á sinni vakt.
Eyða Breyta
62. mín Gult spjald: Andri Rúnar Bjarnason (BÍ/Bolungarvík)

Eyða Breyta
64. mín Aron Sigurðarson (Fjölnir) Þórir Guðjónsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
65. mín MARK! Andri Rúnar Bjarnason (BÍ/Bolungarvík)
BÍ/Bolungarvík nær að auka forskot sitt. Eftir fyrirgjöf frá hægri gerir hægri bakvörðurinn Árni Kristin Gunnarsson sig sekan um slæm mistök þegar hann hittir ekki boltann. Andri Rúnar Bjarnason fær knöttinn og þakkar pent fyrir sig með því að skora með skoti í fjærhornið.
Eyða Breyta
67. mín
Bjarni Gunnarsson á fyrirgjöf frá hægri sem ferí stöngina og út! Þórður datt í markinu og var ekki nálægt því að ná boltanum.
Eyða Breyta
67. mín Gult spjald: Pablo Punyed (Fjölnir)

Eyða Breyta
71. mín
Pétur Markan fær tækifæri til að ganga endanlega frá leiknum en Steinar ver. Andri Rúnar átti sendingu inn á Pétur sem komst í fínt færi.
Eyða Breyta
73. mín Felix Hjálmarsson (Fjölnir) Ágúst Örn Arnarson (Fjölnir)

Eyða Breyta
74. mín
Guðmundur Karl Guðmundsson kemst í fína stöðu hægra megin í vítateignum en ákveður að senda boltann frekar en að skjóta. Sendingin er ekki nógu góð á Felix Hjálmarsson sem skýtur framhjá.
Eyða Breyta
76. mín
Hafsteinn Rúnar Helgason bjargar á línu eftir hornspyrnu hjá Fjölni!
Eyða Breyta
77. mín Viðar Ari Jónsson (Fjölnir) Bjarni Gunnarsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
78. mín MARK! Viðar Ari Jónsson (Fjölnir)
Þvílík innkoma hjá Viðari Ara Jónssyni! Fjölnismenn áttu aukaspyrnu á vítateigslínunni og Viðar Ari skokkaði inn á teiginn eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Pablo Punyed átti fast skot úr aukaspyrnunni sem Þórður varði út í teiginn beint á Viðar sem skoraði.
Eyða Breyta
80. mín Daniel Osafo-Badu (BÍ/Bolungarvík) Haukur Ólafsson (BÍ/Bolungarvík)

Eyða Breyta
80. mín Gult spjald: Ingimar Elí Hlynsson (BÍ/Bolungarvík)

Eyða Breyta
81. mín MARK! Felix Hjálmarsson (Fjölnir)
Fjölnismenn eru búnir að jafna! Varamennirnir eru heldur betur að stimpla sig inn hjá heimamönnum og nú jafnar Felix Hjálmarsson. Guðmundur Karl átti fyrirgjöf á varamanninn Aron Sigurðarson sem kemur boltanum á Felix og hann nær að snúa sér að skora með skoti úr markteignum.
Eyða Breyta
85. mín Gult spjald: Viðar Ari Jónsson (Fjölnir)
Leiknir er búinn að vera duglegur að veifa spjöldum, hér fer það áttunda á loft í dag.
Eyða Breyta
86. mín
Felix á skot framhjá eftir fyrirgjöf frá Aroni. Bæði lið eru nú í leit að sigurmarki!
Eyða Breyta
90. mín Nikulás Jónsson (BÍ/Bolungarvík) Pétur Georg Markan (BÍ/Bolungarvík)

Eyða Breyta
90. mín
Fjölnismenn fá hornspyrnu á lokasekúndunum og eftir darraðadans á Bergsveinn Ólafsson skot en gestirnir bjarga á síðustu stundu.
Eyða Breyta
90. mín Leik lokið!
Leiknum er lokið með 2-2 jafntefli. Varamennirnir tryggðu Fjölni stig eftir að gestirnir höfðu komist í 2-0 um miðbik síðari hálfleiks. Nánar verður fjallað um leikinn hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
4. Hafsteinn Rúnar Helgason
7. Sigurgeir Sveinn Gíslason
8. Helgi Valur Pálsson
9. Andri Rúnar Bjarnason
10. Alexander Veigar Þórarinsson
13. Pétur Georg Markan ('90)
21. Dennis Nielsen
23. Gunnlaugur Jónasson

Varamenn:
12. Bjarki Pétursson (m)
8. Sigþór Snorrason
11. Guðmundur Atli Steinþórsson
14. Daniel Osafo-Badu ('80)
15. Nikulás Jónsson ('90)
16. Florian Decamps

Gul spjöld:
Ingimar Elí Hlynsson ('80)
Andri Rúnar Bjarnason ('62)
Haukur Ólafsson ('34)
Pétur Georg Markan ('23)

Rauð spjöld: