Hásteinsvöllur
sunnudagur 20. maí 2012
kl. 16:00
Pepsí Deildin
Aðstæður: Þokkalegur vindur en sól í Eyjum
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Maður leiksins: Víðir Þorvarðarson
ÍBV 1 - 1 Fylkir
1-0 Víðir Þorvarðarson ('21)
1-1 Ásgeir Eyþórsson ('24)
Myndir: Eyjafréttir
Byrjunarlið:
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Matt Garner
10. Aaron Spear
11. Víðir Þorvarðarson
15. Tonny Mawejje ('58)
19. Arnór Eyvar Ólafsson
30. Ian Jeffs

Varamenn:
25. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
8. Yngvi Borgþórsson ('72)
16. Jón Ingason

Gul spjöld:
Jake Gallagher ('90)
Brynjar Gauti Guðjónsson ('45)
Arnór Eyvar Ólafsson ('35)
George Baldock ('34)

Rauð spjöld:

Guðni Freyr Sigurðsson
Fyrir leik
Góðann daginn lesendur fótbolti.net!
Hér eftir klukkutíma fer fram leikur ÍBV og Fylkis á Hásteinsvelli. Í Vestmannaeyjum slær vindur upp í 20 metra á sekúndu á markið nær Herjólfsdal.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin eru hér að mæta í Týsheimilið, litlar fréttir af byrjunarliðum en vonandi að það komi inn á næstu 20 mínútum eða svo.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin eru komin inn!
Finnur Ólafsson byrjar sinn fyrsta leik í Pepsí Deildinni og það á móti sínu gamla félagi ÍBV, hann mun örugglega koma til með að valda þeim usla.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ásgeir Börkur er á bekk Fylkismanna og vitum við ekki alveg orsökin af því en hjá Eyjamönnum er Þórarinn Ingi ekki í hóp heldur og eru skörðin orðin heldur stór hjá byrjunarliði ÍBV þessa dagana.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Eyjamenn biðu lægri hlut í umdeildum leik í Vesturbænum, 3-2 og töpuðu Fylkismenn einnig á heimavelli á móti ÍA 0-1.
En hér koma liðin inn á völlinn.
Eyða Breyta
1. mín
Hér flautar Örvar Sær til leiks en Fylkismenn byrja á móti sterkum vindi hér í Eyjum!
Eyða Breyta
2. mín
ÍBV gerir vel hér í byrjun, en Arnór Eyvar fór í flott upphlaup á hægri kantinum, kom með fínan bolta fyrir en Fylkismenn hreinsuðu.
Eyða Breyta
5. mín
Bjarni Þórður sparkar hér í innkast úr markspyrnu og það er ljóst að það mun reynast markvörðum liðanna erfitt að halda boltanum inná í þessu roki.
Eyða Breyta
7. mín
Lítið er að gerast í leiknum hér, en liðin virðast bæði að vera að aðlagast aðstæðum hér á Hásteinsvelli.
Eyða Breyta
21. mín MARK! Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Kæru lesendur
Afsakið en hér hefur netið verið að stríða okkur en fyrsta markið er komið, það var Víðir Þorvarðarson sem fékk boltann fyrir utan teig og hamraði hann í fjærhornið framhjá Bjarna Þórði, virkilega vel gert hjá Víði.
Eyða Breyta
24. mín MARK! Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
Og þá er nóg að gerast því Fylkismenn setja hér eitt mark á Hásteinsvelli! Þar var Ásgeir Eyþórsson sem skallaði boltann framhjá Abel!
Eyða Breyta
34. mín Gult spjald: George Baldock (ÍBV)
Hér erum við komnir á 34 mínútu en netið hefur vægast sagt verið í ,,duftinu" og við afsökum það innilega en vonandi að það sé komið í lag núna!
En á meðan hafa tveir leikmenn ÍBV fengið Gul spjöld
Eyða Breyta
35. mín Gult spjald: Arnór Eyvar Ólafsson (ÍBV)
En það voru þeir George Henry Baldock og Arnór Eyvar.
Eyða Breyta
38. mín
Menn ná hér sæmilegu spili þrátt fyrir aðstæður. En Fylkismenn hafa fjölmennt á völlinn og heyrist vel í þeim.
Eyða Breyta
39. mín
Aaron Spear átti mjög gott skot, sem fór í þverslánna og niður í Bjarna Þórð og út, virkilega hættulegt skot þarna!
Eyða Breyta
42. mín
Flott spil hér hjá Eyjamönnum, en Ian Jeffs og Víðir hafa skipt hér um kanta, en Tony fékk boltann við teiginn og tók hann viðstöðvalausann en rétt yfir. Bjarni Þórður leggur sig allann fram í að tefja og greinilegt er að Fylkismenn nenna ekki mikið lengur að vera hér á móti vindi.
Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV)
Brynjar Gauti er hér með ljóta tæklingu og fær spjald fyrir vikið sem gerir þrjú fyrir ÍBV liðið í fyrri hálfleik
Eyða Breyta
45. mín
Hér flautar Örvar til hálfleiks en liðin hafa verið nokkuð jöfn í leik sem spilaður í vægast sagt erfiðum aðstæðum.
Eyða Breyta
46. mín
Hér flautar Örvar til leiks, hér hefur einungis bætt í vind en ÍBV er hér á móti honum. Fylkir eiga strax gott skot að marki sem Abel nær ekki að halda og fá þeir hornspyrnu.
Eyða Breyta
50. mín
Fínt spil hér hjá ÍBV á móti vindi og uppskera þeir hornspyrnu útfrá því, Spear tók hana og skallaði Brynjar Gauti yfir.
Eyða Breyta
52. mín
Abel ætlar að lenda í sama veseni og Bjarni Þórður en nú rétt í þessu fór markspyrna hans í innkast.
Eyða Breyta
55. mín
Víðir kemst hérna upp hægra megin, sendir fyrir en boltinn var of fastur fyrir Ian Jeffs sem þarf að elta boltann, á svo í góðu þríhyrningsspili við Olsen inn í teig en það endar í höndum Bjarna.
Eyða Breyta
57. mín
Magnús Gylfason vægast sagt brjálaður yfir Örvari, en hann telur ákvarðanir hans ekki vera í samræmi og í kjölfarið sparkar hann makmannshanska í andlit Björgvins Eyjólfssonar sjúkraþjálfara.
Eyða Breyta
58. mín
Tony og Rassmus lenda í svakalegu samstuði hér og hljóðið þegar þeir lenda saman gladdi fáa, en Tony liggur hér hálf vankaður
Eyða Breyta
58. mín Jake Gallagher (ÍBV) Tonny Mawejje (ÍBV)
Tony þarf að fara útaf en Jake Gallagher kemur hér inná í sínum fyrsta leik fyrir ÍBV
Eyða Breyta
60. mín Árni Freyr Guðnason (Fylkir) Finnur Ólafsson (Fylkir)
Skipting hér hjá Fylkismönnum en í kjölfarið komst Ian Jeffs einn í gegn en í skoti hans nær varnarmaður Fylkis að pota í hann, sem endaði í horni. Brynjar skallaði þar laust á Bjarna.
Eyða Breyta
63. mín
Það virðist ganga vel að spila á móti vindi, en Fylkismenn voru í betri í fyrri hálfleik á meðan ÍBV eru betri nú í þeim seinni.
Eyða Breyta
66. mín
Sjúkrabíllinn er kominn hér til að sækja Tonny, en hann virðist hafa rotast við þetta samstuð.
Eyða Breyta
68. mín
Ian Jeffs komst einn í gegn hér, og skoraði en dæmd var á hann rangstæða!
Eyða Breyta
70. mín
Yngvi Magnús, a.k.a ,,Rauða Ljónið" virðist vera að koma inná, en vonandi að hann nái að lyfta gæðum þessa leiks á hærra plan, lítið að gerast í eyjum!
Eyða Breyta
72. mín Yngvi Borgþórsson (ÍBV) Rasmus Christiansen (ÍBV)
Rassmus lendir í samstuði við Fylkismann og verður að fara meiddur af velli, en inná kemur Rauða Ljónið. Matt Garner tekur við fyrirliðabandinu.
Eyða Breyta
75. mín
Frábært skot frá Cristian Olsen sem Bjarni ver vel, Eyjamenn fá hornspyrnu sem er vægast sagt léleg frá Aaron Spear.
Eyða Breyta
78. mín Gult spjald: Davíð Þór Ásbjörnsson (Fylkir)
Fylkismenn fá hér loks spjald og þó fyrr hefði verið segja sumir, en það var Davíð Þór.
Eyða Breyta
81. mín
Það er bókstaflega ekkert að gerast í þessum leik. Hvorug lið eru að skapa sér eitthvað í augnablikinu.
Eyða Breyta
83. mín Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir) Davíð Þór Ásbjörnsson (Fylkir)

Eyða Breyta
84. mín Ásgeir Örn Arnþórsson (Fylkir) Magnús Þórir Matthíasson (Fylkir)

Eyða Breyta
86. mín
Örvar með sérstaka ákvörðun þar sem ÍBV átti aukaspyrnu við miðju, ætla að taka hana fljótt, en það er bannað og svo dæmir hann Fylkismönnum aukaspyrnuna.
Eyða Breyta
88. mín
En ein meiðslin í herbúðum ÍBV, en Cristian Olsen haltrar hér og gera Eyþór og Ragnar sig tilbúna til að koma inná.
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Jake Gallagher (ÍBV)
Jake fær hér spjald sem hefur ekki gert neitt eftir að hann kom inná!
Eyða Breyta
93. mín Leik lokið!
Eyjamenn eiga hér hornspyrnu á 96 mínútu, ná þeir að gera sér eitthvað úr því ?
Neei aldeilis ekki og Örvar flautar hér til enda leiks sem var tíðindalítill í rokinu í Eyjum.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Bjarni Þórður Halldórsson (m)
4. Finnur Ólafsson ('60)
5. Davíð Þór Ásbjörnsson ('83)
7. Ingimundur Níels Óskarsson
14. Magnús Þórir Matthíasson ('84)
16. Tómas Joð Þorsteinsson
19. Oddur Ingi Guðmundsson
26. Andri Þór Jónsson
29. Ásgeir Eyþórsson
30. Hinrik Atli Smárason

Varamenn:
31. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('83)
8. Árni Freyr Guðnason ('60)
15. Hákon Ingi Jónsson
17. Ásgeir Örn Arnþórsson ('84)
24. Elís Rafn Björnsson

Gul spjöld:
Davíð Þór Ásbjörnsson ('78)

Rauð spjöld: