Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Keflavík
1
0
ÍBV
Jóhann Birnir Guðmundsson '64 1-0
Jóhann Ragnar Benediktsson '94
24.05.2012  -  19:15
Nettóvöllurinn
Pepsi-deild Karla
Aðstæður: SSV 9 m/sek og skýjað.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Áhorfendur: 930
Maður leiksins: Haraldur Freyr Guðmundsson
Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Ómar Jóhannsson
Jóhann Birnir Guðmundsson
6. Einar Orri Einarsson ('29)
11. Bojan Stefán Ljubicic ('79)
25. Frans Elvarsson

Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
9. Daníel Gylfason
11. Magnús Sverrir Þorsteinsson

Liðsstjórn:
Sigurbergur Elísson

Gul spjöld:
Jóhann Ragnar Benediktsson ('58)
Grétar Atli Grétarsson ('48)
Magnús Þór Magnússon (f) ('36)

Rauð spjöld:
Jóhann Ragnar Benediktsson ('94)
Fyrir leik
Velkominn í beina textalýsingu frá Keflavík þar sem mætast Keflavík og ÍBV í Pepsi-deild karla. Veður til knattspyrnuiðkunar er ágætt utan smá vinds, sem er fágætt hér um slóðir. Það vekur athygli að Tryggvi Guðmundsson er að hita upp en er skv. leikskýrslu á ksi.is ekki í leikmannahópi ÍBV.

Það má eiga von á hörku leik og við komum með allt það helsta um leið og hægir fingur fréttaritara hafa slegið því inn á textalýsingu. Góða skemmtun.
1. mín
Leikurinn hafinn
8. mín
Hér eru tæpar 8 mín liðnar af leik og það sem hefur gerst er....... ekkert
11. mín
Arnór Ingvi átti fyrsta skot í átt að marki fyrir Keflavík en skotið himinnhátt yfir
13. mín
Ágæt sókn Eyjamanna endar með skoti frá Ian Jeffs, en Ómar vel staðsettur í marki Keflvíkinga
17. mín
Eyjamenn eru heldur sprækari hér í Keflavík og rétt í þessu komst Aron Spear í gott skotfæri en hitti boltann illa og skotið vel yfir mark heimamanna.
20. mín
Brynjar Gauti í dauðafæri í markteig heimamanna en hitti ekki boltann
21. mín
Guðmundur Steinars með hörkuskot beint úr aukaspyrnu en Eyjamenn bjarga í horn.
29. mín
Inn:Magnús Þór Magnússon (f) (Keflavík) Út:Einar Orri Einarsson (Keflavík)
Vegna meiðsla
35. mín
Arnór Eyvar komst hér í upplagt færi en skot hans rétt framhjá tveimur samherjum og marki Keflavíkur.
36. mín Gult spjald: Magnús Þór Magnússon (f) (Keflavík)
Garðar búinn að lyfta fyrsta spjaldinu
39. mín
Víðir Þorvarðarson komst í sannkallað dauðafæri eftir stungusendingu frá Ian Jeffs en Ómar Jóhannsson markvörður Keflavíkur varði vel.
44. mín
Styttist í kaffisopann
45. mín
Kominn hálfleikur í Keflavík og staðan jöfn 0-0. Aaron Spear átti síðasta færi hálfleiksins en slakt skot hans utan teigs lak yfir endalínuna
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn og vonandi fjörið um leið. Vantar mark hér til að lyfta þessu upp.
48. mín Gult spjald: Grétar Atli Grétarsson (Keflavík)
Brot
55. mín
Jóhann Birnir með skot í hliðarnetið eftir ágæta sókn heimamanna. Annars er hér Íslandsmóti í háloftaspyrnum og spretthlaupum.
57. mín
Matt Garner með hörku skot yfir mark Keflavíkur úr fínu færi
58. mín Gult spjald: Jóhann Ragnar Benediktsson (Keflavík)
brot
64. mín MARK!
Jóhann Birnir Guðmundsson (Keflavík)
Eftir langt innkast frá hægri mistókst Eyjamönnum að hreinsa frá marki. Boltinn barst til Jóhanns Birnis sem átti gott skot sem Abel virtist vera með í höndunum en á óskiljanlegan hátt missti hann knöttinn innfyrir marklínuna. Hrikalegur klaufaskapur gestanna.
70. mín
Ómar tvisvar að blaka knettinum yfir slánna eftir hornspyrnu Eyjamanna.
73. mín Gult spjald: Tonny Mawejje (ÍBV)
73. mín
Inn:Christian Olsen (ÍBV) Út:Ian Jeffs (ÍBV)
75. mín
Inn:Sigurbergur Elísson (Keflavík) Út:Guðmundur Steinarsson (Keflavík)
79. mín
Inn:Hilmar Geir Eiðsson (Keflavík) Út:Bojan Stefán Ljubicic (Keflavík)
84. mín
Inn:Ragnar Leósson (ÍBV) Út:Aaron Spear (ÍBV)
85. mín
Hér er miðjuþóf í forgrunni og knattspyrnan sem boðið er uppá er frekar slök.
87. mín
Inn:Eyþór Helgi Birgisson (ÍBV) Út:Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
88. mín
Ragnar Leósson með ágætis skalla að marki Keflavíkur, eftir góða sendingu frá Arnóri en skallinn yfir markið
89. mín
Christian Olsen í dauðafæri en skot hans fer yfir markið
89. mín Gult spjald: Rasmus Christiansen (ÍBV)
94. mín Rautt spjald: Jóhann Ragnar Benediktsson (Keflavík)
Tvö gul og seinna fyrir að tefja
95. mín
Leik lokið. Komum með viðtöl seinna í kvöld
Byrjunarlið:
1. Abel Dhaira (m)
11. Víðir Þorvarðarson ('87)

Varamenn:

Liðsstjórn:
Guðjón Orri Sigurjónsson

Gul spjöld:
Rasmus Christiansen ('89)
Tonny Mawejje ('73)

Rauð spjöld: