Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
FH
1
3
ÍBV
0-1 Cloé Lacasse '2
0-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir '32
Guðný Árnadóttir '82 , sjálfsmark 0-3
Marjani Hing-Glover '84 1-3
09.05.2018  -  17:30
Kaplakrikavöllur
Pepsi-deild kvenna
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Maður leiksins: Cloé Lacasse, ÍBV
Byrjunarlið:
Maria Selma Haseta
Erna Guðrún Magnúsdóttir
Selma Dögg Björgvinsdóttir
Tatiana Saunders
4. Guðný Árnadóttir
8. Jasmín Erla Ingadóttir
19. Helena Ósk Hálfdánardóttir
20. Eva Núra Abrahamsdóttir ('81)
21. Arna Dís Arnþórsdóttir
23. Hanna Marie Barker ('78)
27. Marjani Hing-Glover

Varamenn:
25. Aníta Dögg Guðmundsdóttir (m)
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('81)
15. Birta Stefánsdóttir
16. Diljá Ýr Zomers ('78)
28. Birta Georgsdóttir

Liðsstjórn:
Orri Þórðarson (Þ)
Halla Marinósdóttir
Hafdís Erla Gunnarsdóttir
Bryndís Hrönn Kristinsdóttir
Snædís Logadóttir
Daði Lárusson
Hákon Atli Hallfreðsson
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir
Styrmir Örn Vilmundarson

Gul spjöld:
Orri Þórðarson ('34)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 1-3 sigri ÍBV sem fær þar með sín fyrstu stig í sínum fyrsta leik á mótinu. FH er enn stigalaust eftir tvo leiki. Viðtöl og skýrsla koa síðar í kvöld.
89. mín
Inn:Díana Helga Guðjónsdóttir (ÍBV) Út:Cloé Lacasse (ÍBV)
Hin magnaða Cloé Lacasse hefur lokið leik í dag. Mark og stoðsending er hennar afrakstur úr þessum leik. Vel gert.
88. mín
Kristín Erna með skot úr erfiðu færi sem Saunders greip.
87. mín
Marjani í dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Jasmín en skaut yfir mark ÍBV.
84. mín MARK!
Marjani Hing-Glover (FH)
FH klórar í bakkann en það er of seint svo þær geri leik úr þessu. Marjani slapp ein í gegn og afgreiddi færið vel framhjá Armstrong.
82. mín SJÁLFSMARK!
Guðný Árnadóttir (FH)
Adrianne Jordan sendi boltann fyrir mark FH, Guðný tók boltann á magann fyrir framan markið og þaðan rúllaði hann af stuttu færi í bláhornið. Mjög klaufalegt hjá henni.
81. mín
Inn:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (FH) Út:Eva Núra Abrahamsdóttir (FH)
78. mín
Inn:Sesselja Líf Valgeirsdóttir (ÍBV) Út:Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Ian Jeffs styrkir varnarleikinn, setur inn varnarmann fyrir sóknarmann.
78. mín
Inn:Diljá Ýr Zomers (FH) Út:Hanna Marie Barker (FH)
77. mín
María Selma hreinsar beint í fæturna á Cloé sem tók þríhyrning með Clöru og átti gott skot að marki sem Saunders varði.
76. mín
Clara með gott skot sem skoppaði fyrir framan Saunders sem náði þó að grípa.
72. mín
María Selma skallaði framhjá eftir horspyrnu.
68. mín
Inn:Sóley Guðmundsdóttir (ÍBV) Út:Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
68. mín
Adrienne Jordan með þrumuskot að marki sem Saunders nær að verja í horn.
67. mín
FH liðið sækir áfram mikið meira að marki ÍBV en þær eru ekki að skapa sér nein afgerandi færi.
58. mín
Adrienne Jordan lék eins og skíðamaður á hvern varnarmann FH á fætur öðrum, lét svo vaða en í leikmann FH og hornspyrna dæmd. Hún vildi reyndar fá hendi en Arnar dæmir ekki hendi af svo stuttu færi. Uppúr horninu skaut Júlíana yfir markið.
55. mín
Cloé í dauðafæri eftir undirbúning Clöru en Saunders náði að verja boltann í horn.
53. mín
Helena komin í gott færi eftir góðan undirbúning Evu Núru og reyndi að setja boltann yfir Armstrong í markinu sem sá viðhenni og greip.
51. mín
Caroline Slambrouck með skot framhjá marki FH í kjölfar hornspyrnu.
50. mín
FH hefur sótt mikið það sem af er seinni hálfleiknum en engin hættuleg færi ennþá.
46. mín
Leikur hafinn
Síðari hállfeikur er hafinn. Engar breytingar voru gerðar á liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleiknum er lokið og ÍBV hefur 0-2 forystu þegar liðin ganga til búningsklefa. ÍBV liðið er skipulagt og aggressívt fram á við og gætu vel verið búnar að skora meira. Þó svo FH liðið líti vel í sóknaraðgerðum sínum eru þær mjög slakar varnarlega og virðast hræddar við sóknarmenn eyjaliðsins.
45. mín
Katie Krauetner með gott skot að marki FH sem er varið.
40. mín
Fimm mínútur eftir af fyrri hálfleiknum og ÍBV er ennþá miklu betra liðið á vellinum.
36. mín
Cloé með hörkuskot að marki FH sem Tatiana nær að verja.
34. mín Gult spjald: Orri Þórðarson (FH)
Orri Þórðarson þjálfari FH er mjög ósáttur við Arnar dómara og fær nú að líta gula spjaldið hjá honum.
33. mín
Marjani Hing-Glover framherji FH í dauðafæri í teignum en skaut beint á Emily Armstrong í marki ÍBV.
32. mín MARK!
Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
Stoðsending: Cloé Lacasse
ÍBV bætir við öðru marki. Cloé fór upp að endamörkum og sendi fyrir markið þar sem Kristín var og stýrði boltanum af stuttu færi og í markið. ÍBV komið í 2-0.
28. mín
Katie Kraeutner með skot að marki FH en beint í fangið á Tatiana Saunders markverði FH.
27. mín
Eyjamenn telja að leikmaður FH hafi fengið boltann í höndina innan vítateigs og vilja víti en Arnar Þór dómari ekki á sama máli.
25. mín
Kristín Erna skallar rétt framhjá marki FH eftir sendingu frá Katie Kraeutner á vinstri kanti.
24. mín
Rut tók góðan snúning á varnarmann FH fyrir utan vítateiginn og skaut að marki en rétt framhjá.
15. mín
ÍBV er áfram mikið meira með boltann en FH er að vinna sig meira inn í leikinn. Þær reyna mest að spyrna langt fram á Helenu en til þessa hafa spyrnurnar verið of fastar með vindinum.
12. mín
Svona er liðunum stillt upp í dag.

FH 4-3-3
Tatiana
Arna dís - Guðný - María Selma - Erna
Eva Núra - Selma Dögg
Jasmín
Helena - Marjani - Hanna

ÍBV 3-4-3
Emily
Ingibjörg - Caroline - Júlíana
Adrienne - Rut - Sigríður Lára - Katie
Clara - Kristín Erna - Cloé
10. mín
ÍBV byrjar mikið betur og hefur einokað boltann en FH var að komast í sókn og þá átti miðvörðurinn Guðný Árnadóttir hörkuskot í vararmann og horn. Hún tók skot úr horninu sem Emily Armstrong rétt náði að blaka yfir markið og annað horn sem ekkert kom úr.
2. mín MARK!
Cloé Lacasse (ÍBV)
Stoðsending: Sigríður Lára Garðarsdóttir
Ekki nema 1:10 komið á klukkuna og ÍBV hefur þegar náð forystunni. Cloé var skyndilega ein á auðum sjó í teignum eftir sofandahátt í vörn FH og skoraði með góðu skoti.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. FH hefur leik í átt að Álfaskeiðinu með vindinum. FH er í sínum hefðbundnu hvítu treyjum og svörtu buxum en ÍBV eru í rauðum varatreyjum sínum í dag og svörtum buxum.
Fyrir leik
FH gerir eina breytingu á liði sínu frá tapinu gegn HK/Víkingi. Selma Dögg Björgvinsdóttir kemur inn fyrir Diljá Ýr Zomers sem sest á bekkinn. Að öðru leyti teflir FH fram sama liði.

ÍBV er með sama byrjunarlið og tapaði 3-0 fyrir Þór/KA í leik meistara meistaranna 29. apríl síðastliðinn.
Fyrir leik
Þegar liðin mættust í Kaplakrikanum í ágúst í fyrra endaði leikurinn með 1-1 jafntefli en ÍBV hafði þá unnið fyrri leik liðanna í maí 1-0.

ÍBV endaði mótið í 5. sæti með 33 stig, 10 stigum ofar en FH sem varð í 6. sæti.
Fyrir leik
FH tapaði fyrsta leik sínum á mótinu gegn HK/Víkingi 2-1 á föstudagskvöldið.

ÍBV hefur ekki enn spilað leik því leik liðsins gegn KR var frestað vegna veðurs í Vestmannaeyjum um helgina.
Fyrir leik
Það er hæstaréttarlögmaðurinn Arnar Þór Stefánsson sem dæmir leikinn í dag og hefur sér til aðstoðar línuverðina Jónas Geirsson og Daníel Inga Þórisson. Jón Þ. Ingimundarson er svo sendur frá KSÍ sem eftirlitsmaður leiksins.
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá Kaplakrikavelli þar sem FH tekur á móti ÍBV í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 17:30 en honum var flýtt um hálftíma því handboltalið FH mætir Selfossi í oddaleik í handboltanum klukkan 20:00.
Byrjunarlið:
1. Emily Armstrong (m)
3. Júlíana Sveinsdóttir ('68)
4. Caroline Van Slambrouck
7. Rut Kristjánsdóttir
9. Kristín Erna Sigurlásdóttir
10. Clara Sigurðardóttir ('78)
11. Sigríður Lára Garðarsdóttir
15. Adrienne Jordan
19. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
20. Cloé Lacasse ('89)
22. Katie Kraeutner

Varamenn:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir ('68)
6. Sesselja Líf Valgeirsdóttir ('78)
14. Díana Helga Guðjónsdóttir ('89)
18. Margrét Íris Einarsdóttir
22. Birgitta Sól Vilbergsdóttir

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Inga Jóhanna Bergsdóttir
Óskar Rúnarsson
Helgi Þór Arason
Richard Matthew Goffe

Gul spjöld:

Rauð spjöld: