Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Fjölnir
2
3
FH
Birnir Snær Ingason '36 1-0
1-1 Robbie Crawford '49
1-2 Brandur Olsen '56
Þórir Guðjónsson '85 2-2
2-3 Pétur Viðarsson '90
13.05.2018  -  17:00
Egilshöll
Pepsi-deild karla
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 1.017
Maður leiksins: Brandur Olsen
Byrjunarlið:
12. Þórður Ingason (m)
2. Mario Tadejevic ('65)
3. Bergsveinn Ólafsson (f)
5. Torfi Tímoteus Gunnarsson ('84)
7. Birnir Snær Ingason
9. Þórir Guðjónsson
11. Almarr Ormarsson
20. Valmir Berisha
23. Valgeir Lunddal Friðriksson ('70)
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
8. Igor Jugovic ('70)
8. Arnór Breki Ásþórsson ('65)
26. Ísak Óli Helgason
27. Ingimundur Níels Óskarsson ('84)
31. Jóhann Árni Gunnarsson

Liðsstjórn:
Ólafur Páll Snorrason (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Gunnar Már Guðmundsson
Einar Hermannsson
Gestur Þór Arnarson
Kári Arnórsson
Andri Roland Ford

Gul spjöld:
Bergsveinn Ólafsson ('43)
Valmir Berisha ('89)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ekkert verður úr aukaspyrnunni og Pétur flautar til leiksloka. Sterkur útisigur hjá FH er staðreynd.

Viðtöl og skýrsla koma síðar.
94. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu á miðjum vellinum. Líklegast síðasta tilraun þeirra til að jafna.
90. mín MARK!
Pétur Viðarsson (FH)
Stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson
ÞVÍLÍKUR LEIKUR!!!!

Jónatan Ingi með aukaspyrnu inná teiginn þar sem að Pétur Viðars er einn á auðum sjó og skallar hann inn.
89. mín Gult spjald: Valmir Berisha (Fjölnir)
87. mín
Fjölnismenn fá hér aukaspyrnu á góðum stað en Valmir neglir honum yfir.
85. mín
Inn:Halldór Orri Björnsson (FH) Út:Steven Lennon (FH)
85. mín MARK!
Þórir Guðjónsson (Fjölnir)
Stoðsending: Ingimundur Níels Óskarsson
FJÖLNISMENN ERU BÚNIR AÐ JAFNA!!!

Ingimundur Níels leggur hann fyrir Þóri Guðjóns eftir klafs í teig FH. Þórir gerir sér lítið fyrir og neglir honum í markið.
84. mín
Inn:Ingimundur Níels Óskarsson (Fjölnir) Út:Torfi Tímoteus Gunnarsson (Fjölnir)
Fjölnismenn ætla að blása til sóknar.
80. mín
Það er kominn smá hiti í menn. Gætum átt von á smá æsing hérna undir lokin.
78. mín
Birnir Snær með geggjaðan klobba á Robbie Crawford en skot hans fer svo beint í varnarmann. Stúkan hafði mjög gaman af þessu.
77. mín
Þarna munaði litlu. Aukaspyrnan flýgur rétt framhjá markinu.
76. mín
Aukaspyrna á góðum stað hérna fyrir Fjölni. Valmir virðist ætla að taka.
75. mín
Inn:Jónatan Ingi Jónsson (FH) Út:Brandur Olsen (FH)
Brandur búinn að vera góður í dag.
74. mín
Fjölnismenn fá hérna hornspyrnu sem að endar með skoti frá Igor en Gunnar sér við honum.
70. mín
Lítið að gerast þessa stundina. FH-ingar búnir að halda boltanum vel án þess að skapa sér neitt.
70. mín
Inn:Igor Jugovic (Fjölnir) Út:Valgeir Lunddal Friðriksson (Fjölnir)
66. mín
Inn:Atli Guðnason (FH) Út:Geoffrey Castillion (FH)
65. mín
Inn:Arnór Breki Ásþórsson (Fjölnir) Út:Mario Tadejevic (Fjölnir)
65. mín
Þórir Guðjóns með tilraun sem að fer framhjá markinu.
59. mín
Brandur Olsen ekki langt frá því að bæta við þriðja markinu þarna eftir gott hlaup Castillion en Þórður er vel á verði og slær hann í burtu.
56. mín MARK!
Brandur Olsen (FH)
HVAÐ GERÐIST ÞARNA!?!?

Þórður skallar boltann beint á Brand sem að tekur hann á lofti yfir þann fyrrnenfda og í markið! Þetta var ótrúlegt.
53. mín
Valmir reynir hér að taka boltann á lofti á vítateigshorninu eftir skyndisókn Fjölnismanna en skotið er hátt yfir.
49. mín MARK!
Robbie Crawford (FH)
Stoðsending: Brandur Olsen
FH ER BÚIÐ AÐ JAFNA!!!!

Robbie Crawford fær boltann við vítateigslínuna og þrumar honum í fjærhornið framhjá Þórði í markinu. Þetta er leikur.
48. mín
ÞÓRIR GUÐJÓNSSON Í DAUÐAFÆRI!!!!

Petur Viðarsson ætlar að senda boltann frá sér en hittir hann ekki. Þórir er fyrstur að átta sig og kemst einn á móti Gunnari en skotið er ekki nógu gott.
46. mín
Þá er leikurinn hafinn aftur. FH byrjar með boltann í þetta skiptið. Þannig virkar þetta víst.

Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar Pétur Guðmundsson til hálfleiks í þessum fína leik. Heimamenn leiða með einu marki gegn engu eftir mark Birnis Snæs.
43. mín Gult spjald: Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir)
41. mín
Þarna mátti ekki miklu muna. Valmir með góðan snúning inní teig FH og nær föstu skoti í utanverða stöngina. FH-ingar stálheppnir þarna.
38. mín
Þórir Guðjónsson hér með skot í átt að marki FH en boltinn fer í Egil Darra og svo beint í fangið á Gunnari.
36. mín MARK!
Birnir Snær Ingason (Fjölnir)
Stoðsending: Torfi Tímoteus Gunnarsson
HEIMAMENN ERU KOMNIR YFIR!!!!!

Torfi Tímóteus með geggjaða sendingu innfyrir vörn FH á Birni sem að þrumar honum framhjá Gunnari í markinu. Birnir mun sterkari en Egill Makan þarna og ýtir nýliðanum auðveldlega frá sér!
35. mín
Brandur fellur hér inní teignum og heimtar vítaspyrnu. Hafði eitthvað til síns máls. Almarr Ormarsson er hins vegar ekki sammála og lætur hann heyra það.
32. mín
Þórður Ingason liggur hér eftir á vellinum eftir að Steven Lennon keyrir inní hann. Fjölnismenn vilja fá spjald en Pétur lætur tiltal nægja. Þórður stendur svo upp og virðist vera í lagi.
31. mín
Torfi Tímóteus nálægt því að komast í boltann í teig FH-inga en Gunnar Nielsen nær að bjarga á ögurstundu.
29. mín
Bergsveinn nær að skalla boltann frá. Sókn FH-inga heldur samt sem áður áfram og endar með skoti Viðars Ara í Torfa og útaf.
29. mín
Steven Lennon gerir vel í að vinna hornspyrnu sem að Brandur ætlar að taka.
24. mín
Hornspyrnan ratar beint á Pétur Viðars sem að skallar boltann framhjá.
24. mín
FH-ingar fá horn. Brandur tekur.
22. mín
Birnir Snær reynir hér skot utan af kanti en Gunnar er öruggur í sínum aðgerðum og grípur boltann.
17. mín
Hans Viktor reynir hér skot fyrir utan teig en boltinn fer beint í Guðmund Kristjáns og svo grípur Gunnar hann í kjölfarið. Stutt í mark hérna í Egilshöllinni. Ég finn það á mér.
16. mín
Steven Lennon sleppur hér í gegn eftir góðan undirbúning Castillion en Þórður Ingason er fljótur út og lokar á hann.
14. mín
Birnir Snær hér með fínt hlaup inná vítateig FH-inga og nær að koma honum á Þóri inní teig. Varnarmenn FH eru hinsvegar snöggir að átta sig og koma honum burt.
12. mín
Valgeir Lunddal með fína sendingu inná teiginn á kollinn á Bergsveini sem að nær ekki nægilega föstum skalla.
9. mín
FH-ingarnir líflegri fyrstu mínúturnar. Heimamenn ná ekki að halda boltanum nægilega vel og er pressa FH-inga góð.
6. mín
Hornspyrnan er fín og er Davíð Þór ekki langt frá því að ná að skalla hann í markið.
5. mín
FH fær hér horn sem að Brandur ætlar að taka.
3. mín
Robbie Crawford dæmdur hérna brotlegur og Fjölnismenn heimta spjald. Við í fjölmiðlastúkunni erum samt sammála um að þarna hafi boltinn verið á milli.
2. mín
Steven Lennon hér með fyrstu tilraun leiksins en skot hans er langt framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Þá flautar Pétur leikinn á og heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
"Áfram Fjölnir" syngur Jónsi Í Svörtum Fötum og liðin ganga hér inná völlinn. Kaffikannan er komin í fjölmiðlastúkuna og áhorfendapallarnir eru þéttsetnir. Þá er það bara að byrja leikinn.
Fyrir leik
Tígri, lukkudýr Fjölnis, er mætt á teppið og sýnir lipra takta með boltann. Hann hefur verið full þungur á sér í byrjun tímabils en virðist vera að taka smá framförum. Við vonum það allaveganna Tígra vegna.
Fyrir leik
Nú þegar rétt rúmlega korter er í leik er fólk farið að láta sjá sig hér í Egilshöll. Umgjörðin hér í höllinni er góð eins og að hún hefur verið í byrjun móts og gervigrasið iðagrænt og fínt. Hvet alla til að kíkja á völlinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Heimamenn í Fjölni gera eina breytingu á liði sínu frá jafnteflinu gegn ÍBV þar sem að Mario Tadejevic kemur inn í vinstri vængbakvörðinn stað Arnórs Breka Ástþórssonar.

FH-ingar gera sömuleiðis eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Breiðablik en hinn 17 ára gamli Egill Darri Makan Þorvaldsson kemur inn í stað Hjartar Loga Valgarðssonar en sá síðarnefndi er fjarri góðu gamni dag. Liðin má sjá hér að neðan.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Ólafur Páll Snorrason, þjálfari Fjölnis, leitar enn af fyrsta deildarsigrinum sínum eftir að hann tók við stjórninni í Grafarvogi. Spurning hvort að hann komi hér í dag gegn hans gömlu félögum.
Fyrir leik
Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á Rúv, fékk það verðuga verkefni að spá í spilin fyrir þriðju umferð Pepsi deildarinnar. Þetta hafði hann að segja um umræddan leik.

Fjölnir 1 - 1 FH
Það er smá basl á FH-ingum. Það eru meiðsli í gangi og þeir eru ennþá að finna sitt sterkasta lið.
Fyrir leik
Þessi leikur átti að fara fram á Extra vellinum en þar sem að hann er ekki tilbúinn eftir veturinn var ákveðið að færa hann inní Egilshöllina. Vellirnir hafa verið mikið til umræðu í byrjun tímabils og eru háværar raddir sem að kalla eftir því að gervigras verði lagt á alla vellina.
Fyrir leik
Heimamenn í Fjölni eru með tvö stig eftir tvær umferðir á meðan FH er með þrjú stig. Fjölnismenn gerðu jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum í síðustu umferð á meðan að FH-ingar töpuðu gegn Breiðablik í Hafnarfirði.
Fyrir leik
Komiði sæl og blessuð og veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Fjölnis og FH í Egilshöll í þriðju umferð Pepsi deildarinnar.
Byrjunarlið:
1. Gunnar Nielsen (m)
Davíð Þór Viðarsson
4. Pétur Viðarsson
6. Robbie Crawford
7. Steven Lennon ('85)
8. Kristinn Steindórsson
16. Guðmundur Kristjánsson
19. Egill Darri Makan Þorvaldsson
20. Geoffrey Castillion ('66)
23. Viðar Ari Jónsson
27. Brandur Olsen ('75)

Varamenn:
12. Vignir Jóhannesson (m)
8. Þórir Jóhann Helgason
11. Atli Guðnason ('66)
11. Jónatan Ingi Jónsson ('75)
17. Baldur Logi Guðlaugsson
19. Zeiko Lewis
22. Halldór Orri Björnsson ('85)

Liðsstjórn:
Ólafur Helgi Kristjánsson (Þ)
Eiríkur K Þorvarðsson
Guðjón Örn Ingólfsson
Ólafur H Guðmundsson
Axel Guðmundsson
Styrmir Örn Vilmundarson
Ásmundur Guðni Haraldsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: