Njarðvík
0
1
Þór
0-1 Alvaro Montejo '94
21.05.2018  -  17:00
Njarðtaksvöllurinn
Inkasso deildin - 1. deild karla
Maður leiksins: Robert Blakala
Byrjunarlið:
Brynjar Freyr Garðarsson
1. Robert Blakala
3. Neil Slooves
5. Arnar Helgi Magnússon
7. Stefán Birgir Jóhannesson ('88)
8. Kenneth Hogg
10. Bergþór Ingi Smárason
15. Ari Már Andrésson
22. Magnús Þór Magnússon
22. Andri Fannar Freysson ('79)
23. Luka Jagacic

Varamenn:
31. Unnar Elí Jóhannsson (m)
2. Helgi Þór Jónsson ('79)
6. Sigurbergur Bjarnason
11. Krystian Wiktorowicz
14. Birkir Freyr Sigurðsson ('88)
20. Theodór Guðni Halldórsson
30. Styrmir Gauti Fjeldsted

Liðsstjórn:
Rafn Markús Vilbergsson (Þ)
Atli Freyr Ottesen Pálsson
Arnór Björnsson
Snorri Már Jónsson
Gunnar Örn Ástráðsson
Leifur Gunnlaugsson

Gul spjöld:
Stefán Birgir Jóhannesson ('32)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Dómarinn leyfir Njarðvíkingum að taka miðju en flautar svo af! Sárt fyrir Njarðvíkinga
94. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
ÞVÍLÍK DRAMATÍK!
Alvaro Montejo skorar hérna með síðustu spyrnu leiksins! Virkilega sárt fyrir Njarðvíkinga !
90. mín
Inn:Alexander Ívan Bjarnason (Þór ) Út:Aron Kristófer Lárusson (Þór )
88. mín
Inn:Birkir Freyr Sigurðsson (Njarðvík) Út:Stefán Birgir Jóhannesson (Njarðvík)
84. mín
Jakob Snær stimplar sig inn í þennan leik með flottu skoti en Robert Blakala enn og aftur mættur og ver frábærlega
82. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (Þór ) Út:Sveinn Elías Jónsson (Þór )
80. mín
Hræðileg mistök í vörn Njarðvíkur þar sem Ignacio Gil og Sveinn Elías komast inn í sendingu og eiga gott samspil áður en Neil Slooves kemst fyrir skot Sveins.
Þarna mátti ekki miklu muna!
79. mín
Inn:Helgi Þór Jónsson (Njarðvík) Út:Andri Fannar Freysson (Njarðvík)
Helgi Þór Jóns átti frabæra innkomu gegn Leikni - vonandi fyrir Njarðvíkinga kemur hann með sama kraft núna
70. mín
Þvílíkt færi!!
Alvaro Montejo sloppinn einn í gegn en í stað þess að fara sjálfur og klára færið ætlar hann að renna honum til hliðar á Þórsarana sem voru að mæta með seinni bylgunni en þar voru hinsvegar Njarðvíkingar fljótari tilbaka og náðu að koma þessu frá.
Hrikalega illa farið með gott færi!
67. mín
Inn:Jónas Björgvin Sigurbergsson (Þór ) Út:Guðni Sigþórsson (Þór )
Þórsarar gera fyrstu skiptingu leiksins
63. mín
Njarðvíkingarnir að komast í ákjósanlegt færi en misskilningur milli Bergþórs Inga og Kenneth Hogg og það rennur út í sandinn
58. mín
Þórsarar með enn eina hornspyrnuna en Robert Blakala grípur hana örugglega
55. mín
Það er ekki mikið um að vera í byrjun seinni hálfleiks.. So far kannski ágætt að þetta sé ekki sjónvarpsleikur eins og til stóð
46. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
0-0 í Hálfleik.
Þórsarar verið sterkari heilt yfir en Njarðvík verið að komast betur inn í leikinn þegar leið á hann.
Óskum hinsvegar eftir mörkum í seinni
40. mín
Bergþór Ingi með flottan sprett upp völlinn en Þórsarar komast fyrir skotið hans áður en Aron Birkir handsamar hann svo.
Njarðvíkingarnir eru aðeins farnir að færast ofar á völlinn.
32. mín Gult spjald: Stefán Birgir Jóhannesson (Njarðvík)
Pirringsbrot , lítið að ganga hja Njarðvík þessa stundina
31. mín
Þórsarar með aukaspyrnu rétt fyrir utan teig sem Aron Kristófer Lárusson tekur en Robert Blakala ver vel!
Njarðvíkingar getað þakkað honum fyrir að vera ekki undir!
29. mín
Alvaro Montejo með fínt skot sem Robert Blakala ver í horn!
Þetta er orðin ansi þung pressa frá Þór og spurning hvort Njarðvík nái hreinlega að halda þetta út
27. mín
Þórsarar í flottu færi!
Bjarki Þór Viðarson með lipra takta og sendir út í teig þar sem Sveinn Elías kemur á ferðinni en Njarðvíkingar komust fyrir.
Þrem hornspyrnum seinna leysist þetta svo fyrir Njarðvíkinga.
20. mín
Þórsarar með hættulega fyrirgjöf sem Robert Blakala missir af en heppilega fyrir Njarðvíkinga að þá gerðu Þórsararnir það líka
15. mín
Þórsarar með hættulegt horn sem Njarðvíkingar ná að koma í burtu en beint á Svein Elías sem á skot rétt yfir
11. mín
Ekki mikið um að vera þessa stundina, liðin svolítið að testa hvort annað
7. mín
Þórsarar byrja leikinn mun ákafari en Njaðvíkingarnir, Njarðvíkingar vart komist yfir miðju en í eina skiptið sem þeir komust framfyrir síðasta þriðjung skapaðist mikil hætta
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er byrjuð!
Þórsarar byrja með boltann
Fyrir leik

Fyrir leik
Liðin að ganga út á völl,Kaleo mætt i kerfið og veislan fer að byrja!

Góða skemmtun!

Fyrir leik
Skemmtileg staðreynd að bæði þessi lið eiga uppalda fulltrúa í landsliðshóp Íslands sem fer á HM í Rússlandi.
Þórsarar eiga auðvitað landsliðsfyrirliðann sjálfan Aron Einar Gunnarsson meðan Njarðvíkingar eiga Arnór Ingva Traustason.
Fyrir leik
Njarðvík hefur komið skemmtilega á óvart í byrjun tímabils og eru með 4 stig eftir fyrstu 2 leikina, gerðu svekkjandi jafntefli við Þrótt Reykjavík í fyrstu umferð þar sem þeir fengu jöfnunarmark í andlitið með síðustu spyrnu leiksins og svo sigruðu þeir Leikni 3-2 í síðustu umferð.

Þórsarar hafa byrjað mótið brösulega en þeir gerðu jafntefli við Hauka í fyrstu umferð 2-2 áður en þeir fengu gríðarlega sterka Skagamenn í heimsókn þar sem þeir töpuðu 0-1.
Fyrir leik
Frá 2010 hafa þessi lið mæst þrisvar sinnum í keppnisleik þar sem Þórsarar hafa haft betur í öll skiptinn með markatöluna 10-0 samanlagt.
Sagan er því ekki með Njarðvík í þessum leik en Njarðvíkingar hafa byrjað tímabilið betur og því verður þetta spennandi einvígi.
Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið velkomin í beina textalýsingu frá þriðju umferð Inkasso deildar karla þar sem Njarðvík og Þór frá Akureyri eigast við.
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Sveinn Elías Jónsson ('82)
Orri Sigurjónsson
3. Óskar Elías Zoega Óskarsson
4. Aron Kristófer Lárusson ('90)
5. Loftur Páll Eiríksson
6. Ármann Pétur Ævarsson
15. Guðni Sigþórsson ('67)
24. Alvaro Montejo
30. Bjarki Þór Viðarsson
88. Nacho Gil

Varamenn:
2. Gísli Páll Helgason
2. Elmar Þór Jónsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson ('67)
12. Aron Ingi Rúnarsson
14. Jakob Snær Árnason ('82)
18. Alexander Ívan Bjarnason ('90)

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Guðni Þór Ragnarsson
Kristján Sigurólason
Elín Rós Jónasdóttir
Birkir Hermann Björgvinsson
Þórður Halldórsson
Gestur Örn Arason

Gul spjöld:

Rauð spjöld: