Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Í BEINNI
Meistarar meistaranna konur
Valur
LL 5
6
Víkingur R.
Grindavík
2
1
Valur
Aron Jóhannsson '13 1-0
1-1 Patrick Pedersen '44 , víti
Sito '87 2-1
23.05.2018  -  19:15
Grindavíkurvöllur
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Sólin skín og þurrt. Örlítill vindur
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Maður leiksins: Sito
Byrjunarlið:
12. Kristijan Jajalo (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Nemanja Latinovic
6. Sam Hewson
8. Gunnar Þorsteinsson (f)
17. Sito ('90)
18. Jón Ingason
22. René Joensen ('95)
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
23. Aron Jóhannsson (f) ('70)
24. Björn Berg Bryde

Varamenn:
3. Edu Cruz
11. Juanma Ortiz ('90)
19. Simon Smidt
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('70)
26. Sigurjón Rúnarsson
80. Alexander Veigar Þórarinsson ('95)

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Maciej Majewski
Milan Stefán Jankovic
Arnar Már Ólafsson
Guðmundur Ingi Guðmundsson
Sigurvin Ingi Árnason
Jóhann Ingi Ármannsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Sam Hewson ('77)
Rodrigo Gomes Mateo ('82)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Vilhjálmur flautar til leiksloka! Grindvíkingar ná í frábæran sigur á Íslandsmeisturunum! Viðtöl og skýrsla koma hér inn innan skamms
95. mín
Inn:Alexander Veigar Þórarinsson (Grindavík) Út:René Joensen (Grindavík)
Síðasta skipting heimamanna
95. mín
Þarna vildu Valsmenn fá víti og í skamma stund hélt ég að Vilhjálmur væri að dæma víti en þá var þetta bara markspyrna
94. mín
Gunnar reynir skot á lofti en hittir boltann illa og skotið framhjá
93. mín
Valsmenn dæmdir brotlegir á Jajalo. Tíminn er að renna frá þeim
92. mín
Valsmenn orðnir fjölmennir fram á við
91. mín
BBB farinn að taka markspyrnurnar fyrir Jajalo. Eitthvað að angra hann
91. mín
Fimm mínútum bætt við
90. mín
Inn:Juanma Ortiz (Grindavík) Út:Sito (Grindavík)
Sito fer útaf eftir frábæran leik. Juanma kemur inn á þessar lokamínútur
89. mín
Tobias með skot á vítateigslínunni en það fer yfir markið. Ná Valsmenn að jafna leikinn?
87. mín MARK!
Sito (Grindavík)
SITO SKORAR BEINT ÚR AUKASPYRNUNNI!!! GRINDVÍKINGAR AÐ KOMAST YFIR Á LOKAMÍNÚTUNUM! Sólin skín beint í augun á Antoni og ekki hefur það verið að hjálpa honum. Hins vegar afar vel tekin aukaspyrna hjá Sito, beint í horni! Sito hefur verið ákaflega flottur í seinni hálfleik
86. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir heimamenn!
86. mín
Guðjón með skot úr aukaspyrnunni sem Jajalo á ekki í neinum vandræðum með
85. mín
BBB dæmdur brotlegur á 30 metrunum.
84. mín
Sito hefur verið að stríða varnarmönnum Vals töluvert hér í síðari hálfleik. Vantar hins vegar töluvert upp á lokasendinguna hjá honum
83. mín
Fátt sem bendir til þess að annað liðið nái sigrinum hér í kvöld. Lítið um færi
82. mín Gult spjald: Rodrigo Gomes Mateo (Grindavík)
Rodri fær hér spjald fyrir ansi soft brot. Sýndi víst viðbrögð við brotinu og það er spjald samkvæmt nýju áherslunum
81. mín
Sito heldur boltanum vel og lætur svo vaða á markið. Skotið hins vegar hátt yfir
80. mín
Sigurður fellur í hornspyrnunni. Sá ekkert hvað gerðist en Jajalo náði að blaka boltanum í burtu
79. mín
Valsmenn fá hornspyrnu eftir klaufaskap hjá Jóni Inga
79. mín
Inn:Tobias Thomsen (Valur) Út:Patrick Pedersen (Valur)
Framherjaskipting
78. mín
Grindavík fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Vals
77. mín Gult spjald: Sam Hewson (Grindavík)
Hewson ýtir Sindra eftir tæklingu hans á Dag. Klaufalegt hjá Bretanum og verðskuldað spjald
77. mín Gult spjald: Sindri Björnsson (Valur)
Sindri með ljóta tæklingu á og Dag og fær réttilega spjald
75. mín
Mikil stöðubarátta í þessum leik og lítið um alvöru færi
73. mín
Birkir Már með landsliðstakta þarna! Potar boltanum óvart í innkast
72. mín
Inn:Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) Út:Einar Karl Ingvarsson (Valur)
Kristinn Freyr kemur inn í stað Einars
70. mín
Inn:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Grindavík) Út:Aron Jóhannsson (Grindavík)
IT'S HAMMERTIME! Markaskorarinn Aron Jóhannsson fer útaf fyrir Dag Inga Hammer
68. mín
Sito leikur illa á Einar Karl og var kominn alveg upp að endalínu. Náði hins vegar ekki fyrirgjöfinni og Valsmenn hreinsa
66. mín
Jajalo staðinn upp og leikurinn heldur áfram
66. mín
Ágætis harka í þessum leik þrátt fyrir aðeins eitt gult spjald
65. mín
Jajalo liggur eitthvað eftir núna. Veit ekkert hvað gerðist.
62. mín
Tveir Grindvíkingar liggja eftir. Guðjón virtist brjóta á Rodri en ekkert dæmt. Guðjón lætur svo Rodri heyra það. Aron Jóhanns liggur líka eftir. Skömmu síðar fá Valsmenn aukaspyrnu. Vilhjálmur stöðvaði ekki leikinn þrátt fyrir að tveir leikmenn heimamanna lægju og stuðningsmenn Grindavíkur mjög ósáttir með VIlhjálm aftur
61. mín
Annað horn til Grindavíkur en Guðjón nær að hreinsa í burtu
60. mín
Skyndisókn hjá Grindavík. Rene gerði vel, hefði mátt losa boltann fyrr en boltinn endar hjá Sito sem vinnur hornspyrnu
59. mín
Guðjón stelur hérna 10 metrum í innkasti og Valsmenn vinna hornspyrnu. Stuðningsmenn Grindavíkur alls ekki ánægðir með Vilhjálm dómara þessa stundina
58. mín
Einar brýtur tvisvar á Nemó og átti klárlega að fá spjald þarna! Fær hins vegar ekki. Vel gert hjá Nemó hins vegar
57. mín
BBB gerir vel í baráttunni við Patrick og vinnur innkast
56. mín
Sólin heldur betur farin að skína hérna í Grindavík. Skín beint á stúkuna og þar af leiðandi á okkur í blaðamannastúkunni. Á erfitt með að sjá á tölvuskjáinn. Hver segir að það geti ekki verið gott veður í Grindavík?
54. mín
Eiður dæmdur brotlegur eftir skallaeinvígi við Sito. Eiður lenti svo illa í kjölfarið og meiddi sig eitthvað í bossanum að því virðist
53. mín Gult spjald: Rasmus Christiansen (Valur)
Rasmus braut á Sito en Vilhjálmur leyfði leiknum að halda áfram. Grindavík hefði getað útfært sóknina betur en náðu því ekki. Vel gert hjá VIlhjálmi þarna
51. mín
Flott hornspyrna hjá Gunnari en BBB náði ekki skallanum
50. mín
Sito vinnur hornspyrnu fyrir Grindavík
49. mín
Birkir með góða fyrirgjöf inn í teig en Sigurður náði ekki krafti í skallann
49. mín
Gunnar með lélega sendingu til baka, beint á Sigurð en Valsmenn náðu ekki að nýta þetta tækifæri
48. mín
Slök útfærsla á hornspyrnu hjá Grindvíkingum
47. mín
Sito nálægt því að komast í dauðafær! Rasmus með frábæra hreinsun í horn þarna!
46. mín
Grindvíkingar í smá basli hér í upphafi að halda boltanum. Endar á því að Jón þarf að hreinsa í innkast
46. mín
Leikur hafinn
Jæja þá er þetta byrjað aftur! Grindvíkingar hefja leik hér í síðari hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Vilhjálmur flautar til hálfleiks. Ekki mikið í gangi í leiknum en þó komin tvö mörk.
45. mín
Sindri reynir skot af löngu færi en það var enginn kraftur í því og lak það langt framhjá
45. mín
Hewson með skot en það fór hátt yfir markið
44. mín Mark úr víti!
Patrick Pedersen (Valur)
Stoðsending: Sindri Björnsson
Ofboðslega öruggt víti hjá Patrick. Valsmenn eru búnir að jafna! Eins og ég sagði áðan þá var brotið á Sindra. Fannst það vera soft, en hann datt á hárréttum tíma og erfitt að dæma ekki vítið á þetta
43. mín
Valsmenn fá víti! Sýndist það vera Brynjar sem braut á Sindra. Soft var það en vel gert hjá Sindra!
41. mín
Bjarni með skelfilega hreinsun beint í innkast. Þetta er ekki sama Valslið núna og áður en Haukur fór útaf, sérstaklega varnarlega
39. mín
Netið er eitthvað að stríða okkur hérna í Grindavík og gætu því sumar færslur verið lengi að koma inn. Biðst fyrirfram afsökunar á því
36. mín
Guðjón með geggjað skot á lofti sem fór rett yfir markið. Hefði verið sturlað mark þarna hefði hann farið inn
35. mín
Gunnar með flotta fyrirgjöf sem Einar þarf að hreinsa í horn
32. mín
Hewson með skot af löngu færi! Fer rétt framhjá og í stöngina bakvið markið. Grindvíkingar að færa sig aðeins framar á völlinn
30. mín
Patrick reynir skot í litlu jafnvægi. Fer í BBB og auðvelt fyrir Jajalo að handsama boltann
28. mín
Inn:Sindri Björnsson (Valur) Út:Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Haukur þarf að fara útaf. Ekki gott fyrir Valsmenn. Hann fékk víst boltann í andlitið í upphitun. Var óvíst hvort hann myndi yfirhöfuð spila þennan leik útaf fyrra högginu. Þetta er því annað höggið hans á skömmum tíma. Skynsamlegt að taka hann útaf
27. mín
Haukur staðinn upp og röltir útaf. Hann þarf hins vegar að fara útaf
26. mín
Guðjón Pétur með aukaspyrnuna inn í teig. Jajalo kemur í boltann og kýlir hann út í teiginn og virðist kýla Hauk Pál í leiðinni sem liggur eftir. Grindvíkingar fá aukaspyrnuna en Haukur liggur enn eftir
25. mín
Guðjón með stutta spyrnu á Einar en Rene fljótur að hugsa og stelur boltanum bara.

Valsmenn fá svo aukaspyrnu skömmu síðar á vallahelmingi Grindavíkur
24. mín
Sigurður með fyrirgjöf sem Nemó skallar í horn
23. mín
Bjarni reynir fyrirgjöf en hún var of há
23. mín
Líkt og áðan eru heimamenn virkilega flottir á sínum vallarhelmingi en ekki eins góðir á vallarhelmingi Vals. Held að þeim sé hins vegar drullu sama, þeir eru að vinna
21. mín
Birkir með fína fyrirgjöf inn í tegi en BBB nær að skalla boltann í burtu. Erfitt að brjóta þessa vörn niður hjá heimamönnum.
19. mín
Patrick reynir samspil með Guðjóni en síðasta sendingin hjá Guðjóni slök og Grindavík nær boltanum
18. mín
Gæti verið að boltinn hafi skoppað eitthvað skringilega eða átt viðkomu í varnarmann, sýndist samt ekki. Anton átti alltaf að verja þetta
15. mín
Antoni líkar illa að spila hér í Grindavík með Valsmönnum! Í fyrra átti hann einnig skelfileg mistök sem leiddi til þess að Andri Rúnar Bjarnason skoraði og tryggði Grindvíkingum sigurinn
13. mín MARK!
Aron Jóhannsson (Grindavík)
SKELFILEG MISTÖK HJÁ ANTONI! Aron lætur vaða af löngu færi. Ágætis skot en átti ekki að vera erfitt fyrir Anton! En Anton gerir skelfilega og setur fótinn í boltann og boltinn inn!
9. mín
Aron nálægt því að komast í gegn. Fyrsta móttaka hans hins vegar ekkert frábær og missir boltann frá sér. Fellur svo til jarðarinnar og vill fá eitthvað fyrir sinn snúð en fær ekki. Var allavega sáralítið
8. mín
Grindavík að halda boltanum vel á sínum eigin vallarhelming. Minna að frétta hjá þeim hins vegar á vallarhelmingi Vals
7. mín
Ágætis aukaspyrna hjá Guðjóni Lýðs. Boltinn hins vegar yfir markið
6. mín
Valsmenn að fá aukaspyrnu á hættulegum stað! Rétt fyrir utan vítateigsbogann
4. mín
Hætta hjá Valsmönnum! Kristinn Ingi fékk sendingu inn fyrir og reynir að senda boltann fyrir. Gunnar nær til boltans en var í smá basli og sparkar í horn.

Ekkert kom úr horninu
2. mín
Grindvíkingar stilla upp nokkuð hefðbundið með sína fimm manna varnarlínu.

Jajalo
Gunnar-Jón-BBB-Brynjar-Nemó
Aron-Rodri-Hewson
Sito-Rene
1. mín
Valsmenn stilla upp í fjögurra manna varnarlínu.

Anton
Birkir-Eiður-Rasmus-Bjarni
Haukur-Einar
Guðjón
Kristinn-Patrick-Sigurður Egill
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað! Valsmenn byrja með boltann og sækja að sjónum.
Fyrir leik
Jæja þá ganga liðin inn á völlinn. Þetta er að byrja! Spútnikliðið frá því í fyrra að mæta ríkjandi Íslandsmeisturum. Ég spái fáum mörkum í kvöld, en vonandi hef ég rangt fyrir mér!
Fyrir leik
Liðin eru mætt í búningsklefann enda tæpar 10 mínútur í að Vilhjálmur flauti leikinn á.
Fyrir leik
Eftir fjórar umferðir eru Grindvíkingar í þriðja sæti deildarinnar með sjö stig.

Valsmenn eru í fimmta sæti, einu stigi á eftir Grindvíkingum.
Fyrir leik
Líkt og ég sagði áðan, þá átti leikurinn að vera í gær en var frestað vegna veðurs. Sem betur fer því veðrið í dag er ca. 17 sinnum betra en í gær
Fyrir leik
Byrjunarliðin má sjá hér á hliðinni. Grindvíkingar gera eina breytingu á liði sínu frá Víkingssigrinum. Brynjar Ásgeir kemur inn í stað meidds Matthíasar.

Valsmenn gera tvær breytingar á sínu liði. Guðjón Lýðs og Rasmus koma inn í liðið.
Fyrir leik
Á síðustu leiktíð unnu liðin sinn hvorn heimaleikinn. Grindvíkingar hafa reyndar unnið síðustu tvo leiki sína gegn Val í Grindavík, í fyrra og árið 2012
Fyrir leik
Þetta er 31. leikur liðanna í efstu deild á Íslandsmóti. Valsmenn hafa vinninginn í innbyrðisviðureignum liðanna, en Valur hefur sigrað helming leikja liðanna, eða 15. Grindavík hefur unnið 9 leiki en sex hafa farið jafntefli. Sagan segir okkur því að líklega fer þessi leikur ekki jafntefli
Fyrir leik
Líkt og flestir vita átti þessi leikur að fara fram í gærkvöldi, en var frestað vegna veðurs, blessunarlega.
Fyrir leik
Komið sæl og verið velkomin á leik Grindavíkur og Vals í Pepsi-deild karla!
Byrjunarlið:
33. Anton Ari Einarsson (m)
Haukur Páll Sigurðsson ('28)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson ('72)
8. Kristinn Ingi Halldórsson
9. Patrick Pedersen ('79)
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
13. Rasmus Christiansen
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
5. Sindri Björnsson ('28)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('72)
19. Tobias Thomsen ('79)
23. Andri Fannar Stefánsson
71. Ólafur Karl Finsen

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Halldór Eyþórsson
Fannar Gauti Dagbjartsson
Einar Óli Þorvarðarson

Gul spjöld:
Rasmus Christiansen ('53)
Sindri Björnsson ('77)

Rauð spjöld: