Akranesvöllur
föstudagur 08. júní 2012
kl. 20:00
Borgunarbikar karla
Aðstæður: Völlurinn frábær og veðrið gott
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: Um 2000
Maður leiksins: Óskar Örn Hauksson
ÍA 1 - 2 KR
0-1 Atli Sigurjónsson ('5)
0-2 Óskar Örn Hauksson ('20)
1-2 Jóhannes Karl Guðjónsson ('87, víti)
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Byrjunarlið:
1. Páll Gísli Jónsson (m)
4. Kári Ársælsson ('33)
6. Ármann Smári Björnsson
7. Maksims Rafalskis ('23)
8. Jóhannes Karl Guðjónsson
10. Jón Vilhelm Ákason ('76)
11. Arnar Már Guðjónsson
16. Andri Adolphsson
21. Einar Logi Einarsson

Varamenn:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Aron Ýmir Pétursson
14. Ólafur Valur Valdimarsson ('76)
19. Eggert Kári Karlsson
20. Dean Martin ('23)

Gul spjöld:
Ármann Smári Björnsson ('90)
Jóhannes Karl Guðjónsson ('85)
Guðmundur Böðvar Guðjónsson ('83)
Andri Geir Alexandersson ('62)

Rauð spjöld:

Ólafur Ingi Guðmundsson
Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍA og KR í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins á Akranesi.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þetta er stórleikur umferðarinnar í bikarnum enda bæði lið gömul stórveldi. Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ og þar hefur KR unnið 8 sinnum og ÍA 3 sinnum. Markatalan er einnig KR í hag eða 35 mörk gegn 15 mörkum.
Síðasti leikur liðanna í bikarnum var frægur bikarúrslitaleikur árið 1999 þar sem 7400 áhorfendur sáu KR vinna ÍA 3-1 í spennuþrungnum leik.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fjölmargir áhorfendur leggja leið sína á völlinn til að sjá leikinn. Meðal þeirra er Björn ''Jesús frá Nasaret'' Jónsson leikmaður KR en uppalinn leikmaður ÍA. Mér sýnist að hann sé að reyna að breyta vatni í vín en það er meðal sérgreina hans ;)
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ég frétti svo að nokkur hópur fylgist með textalýsingunni. Þar má nefna tískugúrúinn Robba Ket en hann er í Flórída hátt uppi að vanda.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús en þau má sjá hér til hliðar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Töluverðar breytingar eru hjá KR.Meðal annars má nefna að Hannes Þór markvörður fer á bekkinn en Fjalar Þorgeirsson fer í byrjunarliðið. Hjá ÍA fer Garðar Gunnlaugsson úr liðinu, líklega vegna meiðsla, en Andri Adolphsson fer í byrjunarliðið í hans stað.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Áhorfendur eru byrjaðir að streyma inn á völlinn en útlit er fyrir góða mætingu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómari leiksins er Erlendur Eiríksson og honum til aðstoðar eru Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson. Fjórði dómari er Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin ganga nú inn á völlinn með bræðurna og fyrirliðana Jóhannes Karl og Bjarna Guðjónssyni í fararbroddi.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn og byrja Skagamenn með boltann.
Eyða Breyta
2. mín
Arnar Már Guðjónsson með gott skot fyrir utan vítateig en Fjalar Þorgeirsson ver vel í markinu.
Eyða Breyta
2. mín
Skagamenn fá hornspyrnu og úr henni á Kári Ársælsson skalla sem fer í varnarmann og þaðan í þverslánna.
Eyða Breyta
5. mín MARK! Atli Sigurjónsson (KR)
Dofri Snorrason á sendingu utan af hægri kanti á Kjartan Henry Finnbogason sem er vel staðsettur inni í vítateig ÍA. Hann kemur boltanum á Atla Sigurjónsson sem setur boltann í stöngina og framhjá Páli Gísla Jónssyni í marki ÍA.
Eyða Breyta
11. mín
Gary Martin með góða rispu upp vinstri kantinn og á góða fyrirgjöf inn á vítateig þar sem Arnar Már Guðjónsson er einn og óvaldaður á markteig KR. Skot hans er þó mjög slappt og Grétar Sigfinnur Sigurðarson bjargar á marklínu.
Eyða Breyta
13. mín
Magnús Már Lúðvíksson með sendingu utan af kanti og þar er Baldur Sigurðsson og á gott skot sem fer yfir markið.
Eyða Breyta
20. mín MARK! Óskar Örn Hauksson (KR)
Óskar Örn Hauksson á góða rispu upp vinstri kantinn, platar tvo varnarmenn upp úr skónum og skorar í fjærhornið.
Eyða Breyta
23. mín Dean Martin (ÍA) Maksims Rafalskis (ÍA)

Eyða Breyta
30. mín Gult spjald: Baldur Sigurðsson (KR)

Eyða Breyta
31. mín
Guðmundur Böðvar Guðjónsson á innkast inn í vítateig KR. Þar nær Gary Martin til boltans og á skot sem Fjalar Þorgeirsson varði vel.
Eyða Breyta
32. mín
Gary Martin fær boltann á miðjum vellinum og á góða rispu upp vallarhelming KR gegn fáliðaðri vörn gestanna. Hann á frábæra sendingu á Dean Martin sem er einn á móti Fjalari Þorgeirssyni en Fjalar gerir vel og ver frábærlega.
Eyða Breyta
33. mín Andri Geir Alexandersson (ÍA) Kári Ársælsson (ÍA)

Eyða Breyta
41. mín
Bæði lið eru að spila ágætan bolta og eiga nokkur hálffæri sem þau ná ekki að nýta sér.
Eyða Breyta
43. mín
Andri Adolphsson á gott marktækifæri rétt fyrir utan vítateig KR en skot hans fer yfir markið.
Eyða Breyta
45. mín
Kjartan Henry Finnbogason fær boltann rétt við endamörk. Hann nær að halda boltanum inn á og varnarmaður ÍA misreiknar boltann og Kjartan Henry nær boltanum aftur. Hann á gott skot en Páll Gísli Jónsson ver vel í markinu.
Eyða Breyta
45. mín
Óskar Örn Hauksson á gott skot að marki ÍA í viðbótartíma en boltinn fer framhjá stönginni.
Eyða Breyta
45. mín
Búið er að flauta til hálfleiks. Staðan í leiknum er 0-2 fyrir KR.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn og KR byrjar með boltann.
Eyða Breyta
49. mín
Gary Martin með gott hlaup upp vinstri kantinn og á sendingu á Andra Adolphsson sem er í góðu færi fyrir utan vítateig KR. Skot hans fer þó nokkuð framhjá markinu.
Eyða Breyta
58. mín
Skagamenn sækja að marki KR og reyna að minnka muninn en þeir ná ekki að ógna vörn KR að miklu leyti sem hefur verið mjög örugg í dag.
Eyða Breyta
58. mín
Skagamenn sækja að marki KR og reyna að minnka muninn en þeir ná ekki að ógna vörn KR að miklu leyti sem hefur verið mjög örugg í dag.
Eyða Breyta
60. mín Þorsteinn Már Ragnarsson (KR) Dofri Snorrason (KR)

Eyða Breyta
62. mín Gult spjald: Andri Geir Alexandersson (ÍA)

Eyða Breyta
63. mín Haukur Heiðar Hauksson (KR) Magnús Már Lúðvíksson (KR)

Eyða Breyta
64. mín
Varnarmaður ÍA hreinsar boltann fram völlinn og þar er Gary Martin vel staðsettur og er fljótari en Grétar Sigfinnur Sigurðarson. Hann kemst einn á móti markverði KR en Gary Martin á slappt skot sem Fjalar Þorgeirsson átti ekki í vandræðum með að verja.
Eyða Breyta
70. mín
Arnar Már Guðjónsson á skot að marki KR töluvert fyrir utan vítateig og boltinn fer framhjá markinu.
Eyða Breyta
76. mín Ólafur Valur Valdimarsson (ÍA) Jón Vilhelm Ákason (ÍA)

Eyða Breyta
79. mín Viktor Bjarki Arnarsson (KR) Baldur Sigurðsson (KR)

Eyða Breyta
81. mín
Óskar Örn Hauksson með frábært hlaup upp vallarhelming ÍA og nær góðu skoti á markið sem Páll Gísli Jónsson varði glæsilega.
Eyða Breyta
82. mín
Þorsteinn Már Ragnarsson fær stungusendingu innfyrir flata vörn ÍA og á einhvern ótrúlegan hátt skýtur hann boltanum framhjá stönginni.
Eyða Breyta
83. mín Gult spjald: Guðmundur Böðvar Guðjónsson (ÍA)

Eyða Breyta
84. mín
Óskar Örn Hauksson á frábært skot að marki ÍA en boltinn fer rétt yfir þverslánna.
Eyða Breyta
85. mín Gult spjald: Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)

Eyða Breyta
87. mín Mark - víti Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)
Viktor Bjarki Arnarsson brýtur á Andra Adolphssyni inni í vítateig KR og vítaspyrna dæmd. Úr henni skorar Jóhannes Karl Guðjónsson af öryggi.
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Ármann Smári Björnsson (ÍA)

Eyða Breyta
90. mín
Fimm mínútur eru í viðbótartíma.
Eyða Breyta
90. mín
Skagamenn heimta vítaspyrnu eftir að Andri Geir Alexandersson skýtur boltanum í hendi Viktors Bjarka Arnarssonar í vítateignum. Erlendur Eiríksson lætur leikinn halda áfram.
Eyða Breyta
95. mín
Skagamenn eru í stórsókn síðustu mínúturnar. Þeir ná ekki að brjóta niður vörn KR og leikurinn er flautaður af með 1-2 sigri KR.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
4. Bjarni Guðjónsson
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Baldur Sigurðsson ('79)
10. Kjartan Henry Finnbogason
11. Óskar Örn Hauksson
23. Atli Sigurjónsson

Varamenn:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
3. Haukur Heiðar Hauksson ('63)
5. Egill Jónsson
9. Þorsteinn Már Ragnarsson ('60)
15. Emil Atlason
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson

Gul spjöld:
Baldur Sigurðsson ('30)

Rauð spjöld: