Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Danmörk
2
3
Portúgal
0-1 Pepe '24
0-2 Helder Postiga '36
Nicklas Bendtner '41 1-2
Nicklas Bendtner '80 2-2
2-3 Varela '87
13.06.2012  -  16:00
Arena Lviv (Úkraína)
EM | B-riðill
Dómari: Craig Thomson (Skotland)
Byrjunarlið:
12. Stephan Andersen (m)
2. Lars Jacobsen
4. Simon Kjær
4. Daniel Agger
6. Niki Zimling ('17)
7. William Jörgensen
10. Christian Eriksen
15. Simon Poulsen
19. Dennis Rommedahl ('60)
28. Michael Krohn-Dehli
52. Nicklas Bendtner

Varamenn:
1. Kasper Schmeichel (m)
34. Anders Lindegaard (m)
8. Thomas Kahlenberg
14. Jacob Paulsen ('17)
14. Lasse Schöne
23. Tobias Mikkelsen ('60)
28. Christian Poulsen

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Jacob Paulsen ('56)
Lars Jacobsen ('84)

Rauð spjöld:
94. mín
LEIK LOKIÐ Portúgalska liðið hampar sigri á dramatískan hátt!
94. mín
Varamaðurinn Lasse Schöne í fínasta færi en skot hans alveg hrikalega lélegt og hátt yfir. Líklega síðasta tækifæri Dana!
92. mín Gult spjald: Cristiano Ronaldo (Portúgal)
91. mín
Fjórum mínútum verður bætt við. Þrjár eftir semsagt.
Halldór Halldórsson, Dóri DNA:
ok þetta er veisla
87. mín MARK!
Varela (Portúgal)
Silvestre Varela varamaðurinn sem spilar með Porto nær að skora! Eftir óðagot í teignum náði Varela föstu skoti sem söng í netinu! Stefnir í að hann verði hetjan!
84. mín
Inn:Varela (Portúgal) Út:Raul Meireles (Portúgal)
84. mín Gult spjald: Lars Jacobsen (Danmörk)
80. mín MARK!
Nicklas Bendtner (Danmörk)
Áfall fyrir portúgalska liðið og Danir refsa Cristiano Ronaldo fyrir að nýta ekki færin sín! Skorar aftur með skalla og jafnar í 2-2. Fáum við sigurmark?
78. mín
RONALDO EINN GEGN MARKVERÐI! En á ótrúlegan hátt skaut hann framhjá. Hafli allan tíma heims. Hann er ekki á skotskónum í dag.
72. mín
Bendtner með skot en boltinn siglir framhjá. Danir að færa sig framar enda þurfa þeir á marki að halda.
64. mín
Inn:Nelson Oliveira (Portúgal) Út:Helder Postiga (Portúgal)
60. mín
Inn:Tobias Mikkelsen (Danmörk) Út:Dennis Rommedahl (Danmörk)
Rommedahl haltrar af velli. Virðist væg tognun. Staðan enn 2-1 fyrir portúgalska liðið.
58. mín
Portúgalska liðið hefur á heildina litið verið mun betra og er líklegra til að bæta þriðja markinu við en Danir að jafna. Meðan munurinn er þó bara eitt mark getur allt gerst.
56. mín Gult spjald: Jacob Paulsen (Danmörk)
50. mín
Cristiano Ronaldo í dauðafæri! Þarna átti hann að gera betur. Hefði getað farið langt með að klára þennan leik. Stephan Andersen í marki Dana gerði vel í að verja.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Stórskemmtilegum fyrri hálfleik lokið. Vonandi verður sama fjörið í þeim síðari.
Oliver Sigurjónsson, leikmaður AGF:
Agger buinn ad vera lelegur i thessum leik! #GleymirManninum
44. mín
Portúgalska liðið í stórhættulegri sókn en Simon Kjær náði að bjara á síðustu stundu!
41. mín MARK!
Nicklas Bendtner (Danmörk)
Það skal enginn afskrifa danska liðið! Krohn-Dehli skallaði knöttinn á Bendtner sem átti ekki í vandræðum með að skora með skalla í tómt markið af stuttu færi. Flott sókn og þetta er orðinn leikur á ný. Bendtner alltaf heitur gegn Portúgal.
Peter Schmeichel , fyrrum landsliðsmarkvörður Danmerkur:
Guð minn góður, við erum að hrynja í sundur. Hvað er í gangi?
39. mín
Danir voru betri fyrstu mínúturnar en síðan þá hefur verið afskaplega lítið að frétta hjá liðinu. Portúgalska liðið náði völdunum snemma og hefur haldið þeim. Verið þrusuflottir.
36. mín MARK!
Helder Postiga (Portúgal)
Frábær afgreiðsla hjá Postiga sem þrumaði boltanum upp í þaknetið. Nani með lága fyrirgjöf. Portúgalska liðið með öll völdin.
29. mín Gult spjald: Raul Meireles (Portúgal)
Tók boltann með hendinni og kom í veg fyrir hættulega sókn danska liðsins.
24. mín MARK!
Pepe (Portúgal)
Pepe skorar eftir horn! Góð spyrna fyrir markið þar sem Pepe var á nærstönginni og náði frábærum skalla. Glæsilega gert og ansi mikilvægt mark.
18. mín
Cristiano Ronaldo í ágætu skotfæri en hitti boltann illa og hann sigldi nokk langt framhjá.
17. mín
Inn:Jacob Paulsen (Danmörk) Út:Niki Zimling (Danmörk)
Meiðsli hjá Dönum. Jafnræði með liðunum í leiknum.
9. mín
Danir hafa byrjað þennan leik af miklum krafti og eru ógnandi fram á við.
1. mín
Leikurinn er hafinn - Dómarinn í dag er skoskur.
Fyrir leik
Bæði lið eru óbreytt frá fyrstu umferðinni. Lars Jacobsen mun fá það hlutverk að reyna að stöðva Cristiano Ronaldo. Gangi honum vel!
Fyrir leik
Veislan er að byrja! Búið er að spila þjóðsöngvana!
Fyrir leik
Heil og sæl! Hér verður bein textalýsing frá fyrri leik dagsins á Evrópumótinu. Byrjunarliðin má sjá til hliðar.

Danmörk sem vann Holland í fyrstu umferð mætir Portúgal sem tapaði fyrir Þýskalandi.
Byrjunarlið:
1. Rui Patricio (m)
3. Bruno Alves
4. Pepe
4. Miguel Veloso
7. Cristiano Ronaldo
8. Joao Moutinho
9. Helder Postiga ('64)
15. Fabio Coentrao
16. Raul Meireles ('84)
17. Nani
47. Joao Pereira

Varamenn:
47. Eduardo (m)
9. Hugo Almeida
14. Rolando
16. Nelson Oliveira ('64)
18. Varela ('84)
20. Ricardo Costa
45. Hugo Viana

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Raul Meireles ('29)
Cristiano Ronaldo ('92)

Rauð spjöld: