Ásvellir
fimmtudagur 25. ágúst 2011
kl. 18:30
1. deild karla
Aðstæður: Rok á Blásvöllum, en sól líka
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Haukar 3 - 0 Leiknir
1-0 Úlfar Hrafn Pálsson ('37)
2-0 Úlfar Hrafn Pálsson ('43)
3-0 Alieu Jagne ('51)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Daði Lárusson
5. Hilmar Rafn Emilsson
5. Alieu Jagne ('80)
6. Úlfar Hrafn Pálsson
9. Hilmar Trausti Arnarsson
13. Björgvin Stefánsson ('63)
17. Ásgeir Þór Ingólfsson
20. Daníel Einarsson
21. Guðmundur Viðar Mete
24. Benis Krasniqi
26. Grétar Atli Grétarsson ('19)

Varamenn:
4. Kristján Ómar Björnsson
16. Aron Jóhannsson
16. Aron Freyr Eiríksson
17. Gunnlaugur F. Guðmundsson ('19)
25. Þórir Guðnason
27. Alexander Freyr Sindrason ('63)
29. Marteinn Urbancic ('80)

Gul spjöld:
Marteinn Urbancic ('86)

Rauð spjöld:

Alexander Freyr Einarsson
1. mín
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Hauka og Leiknis í 1. deild karla. Mikilvægur leikur fyrir bæði lið, Leiknismenn þurfa sigur ef þeir vilja eiga séns á að bjarga sér frá falli, en Haukar verða að fá sigur ef þeir ætla að halda í vonina um sæti í Pepsi deildinni að ári.
Eyða Breyta
10. mín
Tíu mínútur liðnar af leiknum, Leiknismenn hafa fengið ágætis færi en staðan er enn 0-0.
Eyða Breyta
12. mín
Hilmar Rafn Emilsson í dauðafæri! Hann lék á varnarmann Leiknis, kom sér í gott skotfæri í teignum en skaut í hliðarnetið. Ágætlega gert hjá Hilmari en hann hefði þurft að hitta á markið.
Eyða Breyta
18. mín
Lítið í gangi þessa stundina. Menn eru að berjast á miðjunni en hvorugt liðanna er að koma sér í nein færi.
Eyða Breyta
19. mín Gunnlaugur F. Guðmundsson (Haukar) Grétar Atli Grétarsson (Haukar)
Grétar Atli varð fyrir einhverju hnjaski og getur ekki haldið áfram.
Eyða Breyta
22. mín
Ásgeir Þór Ingólfsson vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað en gestirnir ná að bægja hættunni frá.
Eyða Breyta
25. mín
Ágætis séns hjá Haukum. Fyrirgjöf berst inn í teiginn, Alieu Jagne nær ekki til boltans en það gerir Ásgeir Þór Ingólfsson á fjærstönginni, en skot hans úr þröngu færi hittir ekki á rammann.
Eyða Breyta
27. mín
Hilmar Rafn klúðrar langbesta færi leiksins!!! Úlfar Hrafn Pálsson gerir vel og vinnur boltann og stingur honum á Hilmar sem er einn á auðum sjó. Skot hans fer hinsvegar beint á Eyjólf Tómasson í markinu sem gerði reyndar vel að verja. Þarna átti Hilmar Rafn samt klárlega að gera mun betur.
Eyða Breyta
30. mín
STÖNGIN!!! Kjartan Andri Baldvinsson kemst í gott skotfæri inni í teig eftir frábæra sókn Leiknismanna en skot hans endar í stönginni og Haukar bægja svo hættunni frá. Þarna sluppu Haukar með skrekkinn.
Eyða Breyta
37. mín MARK! Úlfar Hrafn Pálsson (Haukar)
HAUKAR ERU KOMNIR YFIR!!! Boltinn barst til Úlfars Hrafns Pálssonar sem kom sér í gott skotfæri og þrumaði knettinum í netið fyrir utan teig. Þvílíkt mark hjá Úlfari!!! Staðan 1-0 fyrir heimamönnum á Ásvöllum.
Eyða Breyta
43. mín MARK! Úlfar Hrafn Pálsson (Haukar)
HAUKAR HAFA AUKIÐ FORSKOTIÐ!! Eftir klafs í teignum var Úlfar Hrafn Pálsson mættur á svæðið og hann kláraði af stakri snilld í netið. Þarna voru varnarmenn Leiknis alveg úti á þekju!
Eyða Breyta
45. mín
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson hefur flautað til leikhlés. Útlitið er fínt fyrir Hauka, staðan er 2-0 fyrir heimamönnum.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn hér á Ásvöllum. Leiknismenn þurfa á kraftaverki að halda ef þeir ætla að halda sér uppi.
Eyða Breyta
46. mín
Úlfar Hrafn Pálsson ætlar strax að skora þrennuna. Hann fær boltann, geysist upp og nær þrumuskoti sem Eyjólfur ver þó vel í horn.
Eyða Breyta
51. mín MARK! Alieu Jagne (Haukar)
HAUKAR ERU AÐ RÚLLA YFIR LEIKNISMENN!!! ALIEU JAGNE SKORAR ÚR FRÁBÆRU FÆRI OG HVER ANNAR ÁTTI SENDINGUNA HELDUR EN ÚLFAR HRAFN PÁLSSON? SAMT MEISTARALEGA KLÁRAÐ HJÁ JAGNE SEM LAGÐI BOLTANN Í FJÆRHORNIÐ!
Eyða Breyta
57. mín
Björgvin Stefánsson hefði getað komið Haukum í 4-0 þarna en skot hans fór rétt framhjá!
Eyða Breyta
59. mín
Hilmar Rafn fær ævintýralega gott færi en klúðrar aftur!!! Hann fær skammarverðlaunin í kvöld, það er ekki spurning! Hann komst aleinn í gegn eftir frábæra sendingu inn fyrir vörnina, hafði allan tíma í heiminum, og í stað þess að skjóta reyndi hann að sóla Eyjólf Tómasson sem hirti af honum boltann!
Eyða Breyta
60. mín Gult spjald: Ingólfur Örn Kristjánsson (Leiknir)

Eyða Breyta
63. mín Alexander Freyr Sindrason (Haukar) Björgvin Stefánsson (Haukar)

Eyða Breyta
66. mín
Það er óhætt að segja að það gangi bara ekkert upp hjá Leiknismönnum. Þeir hafa verið hræðilega lélegir í kvöld og eru greinilega búnir að gefast upp. Svo virðist sem 2. deildin bíði þeirra, en spurningin er hvort að Pepsi deildin bíði Hauka.
Eyða Breyta
71. mín
Lítið að gerast þessa stundina. Sigurinn er í höfn fyrir Hauka og það er bara verið að bíða eftir að leiktíminn renni út.
Eyða Breyta
75. mín Rautt spjald: Ingólfur Örn Kristjánsson (Leiknir)
Áfram heldur þetta að hrynja hjá Leiknismönnum! Kristján Páll Jónsson fær sitt annað gula spjald fyrir að rífa kjaft og þurfa þeir að spila síðasta stundarfjórðunginn manni færri. Allt að fara til fjandans hjá Breiðhyltingunum.
Eyða Breyta
77. mín
Leiknismenn með frábært skot, ég sá ekki alveg hver þetta var, en Daði Lárusson varði meistaralega.
Eyða Breyta
80. mín Marteinn Urbancic (Haukar) Alieu Jagne (Haukar)

Eyða Breyta
86. mín Gult spjald: Marteinn Urbancic (Haukar)

Eyða Breyta
89. mín
Það hefur alls ekki sést á Leiknisliðinu í þessum leik að það sé að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Leikmenn virkað viljalausir og áhugalitlir.
Eyða Breyta
90. mín
Leiknum er lokið! Haukar unnu sannfærandi 3-0 sigur gegn andlausu Leiknisliði og eru enn í bullandi baráttu um 2. sætið! Það er þó enn fjarlægur möguleiki, þeir eru þremur stigum á eftir Selfossi með mun verri markatölu og búnir með einum leik meira.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
22. Eyjólfur Tómasson (m)
6. Ólafur Hrannar Kristjánsson
8. Andri Steinn Birgisson
11. Brynjar Hlöðversson
14. Kjartan Andri Baldvinsson
15. Stefán Jóhann Eggertsson
15. Ingólfur Örn Kristjánsson
17. Frymezim Vesalaj
19. Aron Fuego Daníelsson
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gunnar Einarsson

Varamenn:
1. Þorvaldur Rúnarsson (m)
17. Þorgeir Leó Gunnarsson
27. Pétur Már Harðarson

Gul spjöld:
Ingólfur Örn Kristjánsson ('60)

Rauð spjöld:
Ingólfur Örn Kristjánsson ('75)