Fjölnisvöllur
fimmtudagur 21. júní 2012
kl. 20:00
1. deild karla
Aðstæður: Blautur völlur og logn.
Dómari: Þórður Már Gylfason
Maður leiksins: Þórir Guðjónsson (Fjölnir)
Fjölnir 2 - 0 Tindastóll
1-0 Bjarni Gunnarsson ('26)
2-0 Þórir Guðjónsson ('71)
Byrjunarlið:
1. Steinar Ö. Gunnarsson (m)
2. Bergsveinn Ólafsson
5. Ómar Hákonarson ('77)
9. Bjarni Gunnarsson
15. Haukur Lárusson
16. Pablo Punyed
20. Illugi Þór Gunnarsson
21. Kolbeinn Kristinsson ('61)
26. Þórir Guðjónsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson ('39)

Varamenn:
6. Geir Kristinsson
10. Aron Sigurðarson ('77)
14. Ágúst Örn Arnarson
15. Egill Gautur Steingrímsson
19. Marinó Þór Jakobsson ('61)
30. Marteinn Örn Halldórsson (m)

Gul spjöld:
Bergsveinn Ólafsson ('24)

Rauð spjöld:

Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið! Hér verður bein textalýsing úr Grafarvogi þar sem Fjölnir og Tindastóll eigast við í fyrstu deild karla.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Heimamenn eru með tólf stig í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn og geta með sigri eða jafntefli skotist á toppinn að minnsta kosti um stundarsakir. Tindastólsmenn eru aftur á móti með sjö stig í sjöunda sætinu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þórður Már Gylfason dæmir leikinn í kvöld en hann hefur fengið talsverða gagnrýni eftir frammistöðu sína í 2-2 jafntefli Þórs og ÍR um síðustu helgi. Þar rak Þórður Már meðal annars Jóhann Helga Hannesson framherja Þórs ranglega af velli.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Völlurinn er blautur, það er logn og sól á lofti. Toppaðstæður í Grafarvogi!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fjölnismenn gera eina breytingu á liði sínu síðan í markalausa jafnteflinu gegn Leikni í síðustu viku, Ómar Hákonarson kemur í fremstu víglínu í staðinn fyrir Ágúst Örn Arnarson.

Loftur Páll Eiríksson er ekki með Tindastóli í dag og í hans stað kemur Arnar Skúli Atlason í hægri bakvörðinn en hann tók út leikbann í 3-1 sigrinum á Víkingi R. um síðustu helgi.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Arnar Sigurðsson er í leikmannahópi Tindastóls í fyrsta skipti í dag eftir að hafa misst af byrjun tímabilsins vegna meiðsla. Arnar fór á kostum í annarri deildinni með Stólunum í fyrra þar sem hann skoraði þrettán mörk.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fjölnismenn hafa verið sprækari í byrjun en Tindastólsmenn fá fyrsta færið. Steinar Örn Gunnarsson markvörður Fjölnis hittir boltann illa, Stólarnir sækja hratt í kjölfarið og Theo Furness fær færi en skot hans fer í hliðarnetið úr nokkuð þröngri stöðu. Theo hefði jafnvel átt að senda boltann frekar þarna.
Eyða Breyta
13. mín
Þórir Guðjónsson á hörkuskot úr aukaspyrnu en Seb Furness, einn þriggja meðlima úr Furness fjölskyldunni í liði Tindastóls, ver örugglega.
Eyða Breyta
16. mín
Fjölnismönnum hefur gengið illa að ná góðum fyrirgjöfum í byrjun leiks. Þeir komast í fína stöðu á kantinum en koma boltanum ekki inn á teiginn.
Eyða Breyta
24. mín Gult spjald: Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir)
Bergsveinn kallar ekki allt ömmu sína og hann fær gula spjaldið hjá Þórði Má dómara fyrir að ,,strauja" Theo Furness á hægri kantinum.
Eyða Breyta
26. mín MARK! Bjarni Gunnarsson (Fjölnir)
Fjölnismenn komast yfir með marki eftir fyrirgjöf. Bjarni fékk boltann á vinstri kantinum og skrúfaði boltanninn að marki. Boltinn fór framhjá öllum á teignum og í fjærhornið framhjá varnarlausum Seb Furness í markinu.
Eyða Breyta
27. mín
Fjölnismenn fara ótroðnar slóðir þegar kemur að lagavali þeagr mörk eru skoruð en ,,Stattu upp" með Bláum Ópal hljómaði í græjunum í Grafarvogi eftir markið hjá Bjarna.
Eyða Breyta
30. mín
Illugi Þór Gunnarsson á þrumuskot úr aukaspyrnu en boltinn fer rétt framhjá.
Eyða Breyta
34. mín Árni Arnarson (Tindastóll) Árni Einar Adolfsson (Tindastóll)
Fyrirliði Tindastóls haltar meiddur af velli.
Eyða Breyta
39. mín Viðar Ari Jónsson (Fjölnir) Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Guðmundur Karl er borinn meiddur af velli og beint inn í klefa.
Eyða Breyta
40. mín
Fjölnismenn eru mun nær því að bæta við en Tindastóll að jafna. Þórir Guðjónsson á skot í hliðarnetið og Ásgeir Aron Ásgeirsson á síðan þrumuskot sem Seb Furness ver með tilþrifum í horn.
Eyða Breyta
44. mín
Viðar Ari kemst upp að endamörkum vinstra megin og sendir út á Þóri sem skýtur framhjá úr góðu færi.
Eyða Breyta
45. mín
Búið er að flauta til leikhlés. Fjölnir leiðir verðskuldað 1-0 og það þarf töluvert mikið að breytast í síðari hálfleiknum ef að gestirnir ætla að taka með sér einhver stig heim í Skagafjörðinn.
Eyða Breyta
46. mín Max Touloute (Tindastóll) Fannar Freyr Gíslason (Tindastóll)
Síðari hálfleikurinn er hafinn. Stólarnir gera eina breytingu í hálfleik.
Eyða Breyta
55. mín
Síðari hálfleikurinn byrjar rólega. Tindastólsmenn eru þó líklegri en þeir voru í fyrri hálfleiknum.
Eyða Breyta
57. mín
Þórir Guðjónsson á skot fyrir utan teig sem Seb Furness slær í horn.
Eyða Breyta
59. mín
Besta færi Tindastóls í leiknum! Theo Furness á hörkusprett upp hægri kantinn og hann á síðan fyrirgjöf á fjærstöng á Max Toulette en hann er aðeins of seinn og nær ekki að stýra skalla sínum á markið.
Eyða Breyta
61. mín Marinó Þór Jakobsson (Fjölnir) Kolbeinn Kristinsson (Fjölnir)
Marinó Þór Jakobsson kemur inn á miðjuna hjá Fjölni. Hægri bakvörðurinn Kolbeinn Kristinsson fer af velli en Illugi Þór Gunnarsson fyrirliði heimamanna tekur stöðu hans í bakverðinum.
Eyða Breyta
66. mín
Ómar Hákonarson misnotar dauðafæri til að koma Fjölni í 2-0! Ómar átti fyrst of langa fyrigjöf á Bjarna sem elti boltann uppi. Bjarni sendi aftur fyrir á Ómar sem var einn og óvaldaður á fjærstöng en skalli hans fór í stöngina. Þórður Már dæmdi reyndar hornspyrnu eftir ábendingu frá aðstoðarmanni sínum en ekkert kom upp úr henni.
Eyða Breyta
71. mín MARK! Þórir Guðjónsson (Fjölnir)
Fjölnismenn eru að fara langt með að klára þennan leik. Ómar Hákonarson leggur boltann út á Þóri Guðjónsson sem skrúfar boltann upp í fjærhornið frá vítateigslínu. Fallega gert hjá Þóri sem hefur verið sprækur í dag.
Eyða Breyta
76. mín
Þórir fer illa með dauðafæri! Sleppur einn í gegn en skýtur framhjá markinu.
Eyða Breyta
77. mín Aron Sigurðarson (Fjölnir) Ómar Hákonarson (Fjölnir)

Eyða Breyta
81. mín
Steinar Örn nálægt því að gefa mark! Max Toulette pressar á Steinar sem rennur í markteignum en á endanum fer boltinn af Max og aftur fyrir endamörk. Þarna munaði litlu!
Eyða Breyta
83. mín Pálmi Þór Valgeirsson (Tindastóll) Atli Arnarson (Tindastóll)

Eyða Breyta
86. mín
Ben Everson á skot í slána fyrir Tindastólsmenn. Hann fékk boltann einn og óvaldaður vinstra megin í teignum og skrúfaði hann í slána og yfir.
Eyða Breyta
90. mín Leik lokið!
Leiknum er lokið með 2-0 sigri Fjölnis. Nánari umfjöllun kemur á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Seb Furness (m)
5. Edvard Börkur Óttharsson
6. Björn Anton Guðmundsson
8. Atli Arnarson ('83)
9. Árni Einar Adolfsson ('34)
10. Ingvi Hrannar Ómarsson
15. Arnar Skúli Atlason
16. Fannar Freyr Gíslason ('46)
19. Ben J Everson
21. Theodore Eugene Furness
22. Dominic L Furness

Varamenn:
12. Arnar Magnús Róbertsson (m)
2. Fannar Örn Kolbeinsson
3. Pálmi Þór Valgeirsson ('83)
4. Max Touloute ('46)
7. Aðalsteinn Arnarson
14. Arnar Sigurðsson
20. Árni Arnarson ('34)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: