Samsung-völlurinn
laugardagur 21. júlí 2012
kl. 16:00
Pepsi-deild karla
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr.
Stjarnan 1 - 1 KR
0-1 Gary Martin ('52)
1-1 Guðmundur Reynir Gunnarsson ('90, sjálfsmark)
Myndir: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson ('78)
9. Daníel Laxdal
10. Halldór Orri Björnsson ('78)
21. Baldvin Sturluson
26. Kennie Chopart
27. Garðar Jóhannsson

Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
3. Tryggvi Sveinn Bjarnason ('78)
20. Gunnar Örn Jónsson
23. Snorri Páll Blöndal

Gul spjöld:
Baldvin Sturluson ('35)

Rauð spjöld:

Anton Ingi Leifsson
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkominn í beina textalýsingu frá Samsung-vellinum, þar sem Íslands- og bikarmeistarar KR, koma í heimsókn.

Leikurinn hefst klukkan 16:00, en fram að því munum við hita upp með tölfræði, byrjunarliðinum og fleira.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómari í dag er Þóroddur Hjaltalín Jr., og honum til aðstoðar eru þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Haukur Erlingsson. Varadómari er löggan, Pétur Guðmundsson, og eftirlitsmaður KSÍ er Sigurður Hannesson.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikir liðanna í fyrra voru jafnir. Fyrri leikurinn, hér á Stjörnuvelli, endaði með 1-1 jafntefli og sá síðari einnig.

Við vonumst eftir hrikalega fjörugum leik í dag og nóg af mörkum!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikir liðanna í fyrra voru jafnir. Fyrri leikurinn, hér á Stjörnuvelli, endaði með 1-1 jafntefli og sá síðari einnig.

Við vonumst eftir hrikalega fjörugum leik í dag og nóg af mörkum!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Gary Martin er í byrjunarliði KR, eftir að hafa komið til liðsins frá ÍA í vikunni. Mark Doninger, sem kom einnig frá ÍA til Stjörnunnar, situr hins vegar á bekknum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði lið eru hér út á velli að hita upp, styttist í leikinn,en samkvæmt mínum heimildum eru um 25 mínútur í leikinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrir leikinn er KR í toppsætinu með 23 stig, þremur meira en Stjarnan sem er í þriðja sætinu. FH er þarna á milli með jafnmörg stig og Stjarnan, en leik til góða á bæði Stjörnuna og KR.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Valin tíst munu birtast hér í textalýsingunni, en endilega notið hash-tagið #fotbolti.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
3. mín
Steven Lennon, framherji Fram:
Stjarnan fans are brilliant :)
Eyða Breyta
4. mín
Mikil hætta í teig KR, en Baldvin Sturluson er dæmdur ragnstæður.
Eyða Breyta
5. mín
Strekkingsvindur hér á Stjörnuvelli, en hann kemur hér nokkuð veginn hér beint á blaðamannastúkuna.

Hér rétt í þessu var Gary Martin í þröngu færi og skaut boltanum beint á Ingvar í markinu.
Eyða Breyta
10. mín
Hrikalega lítið í gangi hér á Stjörnuvelli og eru Silfurskeiðin og vindurinn það eina sem heldur manni á lífi hér!
Eyða Breyta
12. mín
Daaauðafæri! Þvílíkt dauðafæri, eftir flotta sókn og samspil milli Gary, Óskars og Hauks Heiðars þá endaði það með skoti Óskars Arnars sem Ingvar varði út í teiginn, þar var Gary, einn gegn Ingvari en skaut boltanum beint í fangið á Ingvari!
Eyða Breyta
13. mín
Óskar Örn með fyrirgjöf utan af kanti sem endar í stönginni, boltinn út í teiginn, þar er Gary Martin aftur á réttum stað, en Daníel Laxdal henti sér fyrir boltann. KR-ingar miklu sterkari.
Eyða Breyta
19. mín
Leikurinn róast aftur eftir fjörugu byrjunina, en nú er þetta stál í stál. Martin líflegur hér í byrjun.
Eyða Breyta
25. mín
Þvílíkt skot!! Kennie Chopart tekur vel við boltanum, og tekur magnað skot, sem Hannes ver frábærlega í horn. Upp úr horninu gerist ekkert.
Eyða Breyta
26. mín
Bjarni Guðjónsson með skot, sem fór laaaaaaaangt yfir. Þessi endaði í Hafnarfirði held ég.
Eyða Breyta
28. mín
Kennie Chopart aftur með svaka skot, en boltinn yfir markið.
Eyða Breyta
30. mín
Frábær sókn hjá KR. Flott spil á kantinum, boltinn á Gary sem tók boltann vel niður og lagði hann á Viktor Bjarka sem náði fínu skoti sem Ingvar varði.
Eyða Breyta
32. mín
Örn Úlfur Sævarsson:
Eitthvað gervilegt við þennan Stjörnuvöll. KR betri enda ekta lið. Kaupið þökur fyrir eitthvað af öllum þessum peningum. #fotbolti
Eyða Breyta
34. mín
Hannes í þvílíkum vandræðum inn í markteig og náði ekki að handsama knöttinn eftir hornspyrnu sem endaði með því að Ellert Hreinsson fékk boltann, en skaut boltanum í fangið á Hannesi.
Eyða Breyta
35. mín Gult spjald: Baldvin Sturluson (Stjarnan)
Fyrir að stoppa skyndisókn, gult spjald hárrétt.
Eyða Breyta
40. mín
Frábær sending frá hægri þar sem Kennie Chopart var, beint á kollinn á Ellerti, sem stangaði boltanum yfir.
Eyða Breyta
43. mín
Smá hætta þegar Jóhann komst upp að endamörkum og ákvað að skjóta en boltinn fór yfir markið.
Eyða Breyta
45. mín
Fyrri hálfleik er lokið. Við tökum okkur fimmtán mínútna hlé og komum svo aftur hér eftir hlé.
Eyða Breyta
45. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Góða skemmtun!
Eyða Breyta
52. mín MARK! Gary Martin (KR)
Gary Martin er að skora í sínum fyrsta leik fyrir KR!! Frábær sending frá Viktori Bjarka inn fyrir vörnina, og vel klárað hjá Martin.
Eyða Breyta
58. mín Gult spjald: Rhys Weston (KR)
Við blaðamenn vitum ekki hvað gerðist, en Kennie Chopart lá allaveganna eftir og Stjörnumenn voru æfir í stúkunni.
Eyða Breyta
61. mín
Stjörnumenn reyna og reyna að jafna metin, og eiga búinn að eiga nokkur skot, en þau hafa öll farið yfir markið eða framhjá. Mættu reyna að spila og komast nær markinu.
Eyða Breyta
63. mín
VÍTI!! Ellert fiskar víti, sáum ekki hvort það var Grétar eða Hannes sem braut af sér.
Eyða Breyta
64. mín
Hann ver!! Frábærlega varið. Spyrnan föst hjá Halldóri Orra, en Hannes gerir vel.
Eyða Breyta
68. mín
Stjörnumenn að herða tökin hér í Garðabæ og eru í tvígang búnir að vera nálægt því að jafna metinn.
Eyða Breyta
70. mín
Hans Steinar Bjarnason, íþróttafréttamaður hjá RÚV:
Ekki flókið. Hendi á Weston hafði klárlega áhrif á leikinn. Stjarnan átti að fá annað víti. #Junior
Eyða Breyta
73. mín
Hörður Árnason með magnaða fyrirgjöf, en Garðar og Kennie missa af boltanum og hann rúllar aftur fyrir endamörk.
Eyða Breyta
78. mín Mark Doninger (Stjarnan) Atli Jóhannsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
78. mín Tryggvi Sveinn Bjarnason (Stjarnan) Halldór Orri Björnsson (Stjarnan)
.. og fer beint upp á topp! Núna á að þrýsta inn á boxið.
Eyða Breyta
79. mín
Bjarni Guðjónsson í dauðafæri! Eftir gott spil, mokar Bjarni boltanum framhjá.
Eyða Breyta
80. mín Aron Bjarki Jósepsson (KR) Viktor Bjarki Arnarsson (KR)
Varnarmaðurinn inn fyrir miðjumann. Það á að þétta pakkann.
Eyða Breyta
85. mín
Egill Gillz Einarsson, líkamsræktarfrömuður:
Atli að dæla boltanum í boxið hvað eftir annað og kippt útaf. Weird.
Eyða Breyta
88. mín Atli Sigurjónsson (KR) Egill Jónsson (KR)

Eyða Breyta
90. mín SJÁLFSMARK! Guðmundur Reynir Gunnarsson (KR)
Eftir mikinn atgang í teig KR kom loks að því að Stjarnan jafnaði metin. Boltinn í stöngina, út í teiginn og þar var Guðmundur Reynir og hann fékk boltann í sig og inn.
Eyða Breyta
90. mín Leik lokið!
Lokatölur 1-1, eftir dramatískar lokamínútur. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
Eyða Breyta
90. mín Leik lokið!
Leik lokið. 1-1. Viðtöl og umfjöllun væntanleg.
Eyða Breyta
94. mín
Þvílík björgun! Aron Bjarki bjargar því að Stjarnan steli sigrinum, en hann endar hausnum fyrir boltann þegar Garðar er að fara skjóta. Þetta kallar maður björgun!
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Haukur Heiðar Hauksson
4. Bjarni Guðjónsson
5. Egill Jónsson ('88)
7. Gary Martin
9. Þorsteinn Már Ragnarsson
11. Óskar Örn Hauksson
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson

Varamenn:
15. Emil Atlason
18. Aron Bjarki Jósepsson ('80)
23. Atli Sigurjónsson ('88)
24. Björn Jónsson

Gul spjöld:
Rhys Weston ('58)

Rauð spjöld: