Fylkisvöllur
sunnudagur 29. júlí 2012
kl. 19:15
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Dúnalogn, 13 gráðu hiti og alskýjað.
Dómari: Erlendur Eiríksson
Fylkir 3 - 3 Stjarnan
0-1 Ellert Hreinsson ('10)
1-1 Jóhann Þórhallsson ('33)
1-2 Mark Doninger ('38)
2-2 Davíð Þór Ásbjörnsson ('63)
2-3 Halldór Orri Björnsson ('72)
3-3 Ingimundur Níels Óskarsson ('82)
Byrjunarlið:
1. Bjarni Þórður Halldórsson (m)
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Finnur Ólafsson
5. Davíð Þór Ásbjörnsson
7. Ingimundur Níels Óskarsson
11. Kjartan Ágúst Breiðdal
16. Tómas Joð Þorsteinsson
19. Oddur Ingi Guðmundsson
24. Elís Rafn Björnsson

Varamenn:
32. Kristján Finnbogason (m)
14. Magnús Þórir Matthíasson ('84)
22. Andri Már Hermannsson
23. Rúrik Andri Þorfinnsson ('89)
26. Andri Þór Jónsson

Gul spjöld:
Finnur Ólafsson ('93)
Ingimundur Níels Óskarsson ('77)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('49)
Jóhann Þórhallsson ('21)
Kjartan Ágúst Breiðdal ('3)

Rauð spjöld:

Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá Fylkisvelli þar sem Fylkir tekur á móti Stjörnunni í Pepsi-deild karla. Leikurinn hefst 19:15 og liðin eru komin hér sitthvorum megin við textann.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikurinn er minningarleikur um Jón Ellert Tryggvason sem var ötull starfsmaður Fylkis. Hann lést á aðfangadag en hefði verið 45 ára í dag. Í tilefni dagsins er Geir Ólafsson stórsöngvari mættur í Árbæinn og hefur verið að undirbúa sig undir að syngja lagið You'll never walk Alone sem margir þekkja sem Liverpool lagið. Jón Ellert var mikill Liverpool stuðningsmaður.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fylkismenn gera eina breytingu á liði sínu sem vann 0-2 sigur á Keflavík í síðustu umferð. Jóhann Þórhallsson kemur inn fyrir Árna Frey Guðnason.

Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við KR í síðustu umferð. Tryggvi Sveinn Bjarnason kemur inn í liðið fyrir Baldvin Sturluson sem er í leikbanni og það er eina breytingin hjá þeim. Mark Doninger sem kom frá ÍA um daginn er aftur varamaður hjá Stjörnunni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Finnur Ólafsson og Davíð Þór Ásbjörnsson eru miðverðir hjá Fylkismönnum í kvöld eins og í síðasta leik gegn Keflavík.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl og nú hefur farið fram mínútu þögn til minningar um Fylkismannin Jón Ellert Tryggvason sem lést á aðfangadag í fyrra. Hann hefði orðið 45 ára í dag. Nú syngur Geir Ólafs lagið You'll never walk alone og í kjölfarið mun leikurinn hefjast.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn. Stjörnumenn byrja með boltann og leika í átt að verslun Krónunnar.
Eyða Breyta
2. mín
Lars Lagerback landsliðsþjálfari Íslands og Heimir Hallgrímsson aðstoðarmaður hans eru mættir á Fylkisvöll. Báðir voru þeir búnir að fjárfesta í hamborgara og sódavatni á svæðinu og nærast núna í byrjun leiks.
Eyða Breyta
3. mín Gult spjald: Kjartan Ágúst Breiðdal (Fylkir)
Fylkismenn láta vel finna fyrir sér í byrjun leiks. Ásgeir Börkur er búinn að fá tiltal nú þegar og Kjartan Ágúst fékk núna áminningu fyrir brot á Kenny Chophart.
Eyða Breyta
5. mín
Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður:
Einn besti songvari landsins er Fylkismadur Bjarni ara afhverju var hann ekki fenginn til ad syngja.
Eyða Breyta
10. mín MARK! Ellert Hreinsson (Stjarnan)
Garðbæingar eru komnir yfir. Jóhann Laxdal sendi boltann inn í teiginn á Ellert Hreinsson sem skallaði inn. Fjórða mark Ellerts í sumar.
Eyða Breyta
20. mín
Það er ekkert stórkostlegt búið að vera að gerast. Liðin eru að þreifa fyrir sér og reyna að skapa færi. Ellert var að skalla yfir mark Fylkis úr fínu færi eftir sendingu Halldórs Orra.
Eyða Breyta
21. mín Gult spjald: Jóhann Þórhallsson (Fylkir)
Jóhann fær áminningu fyrir að tækla Jóhann Laxdal þegar hann ætlaði á undan honum í boltann en náði ekki.
Eyða Breyta
28. mín Gult spjald: Jóhann Laxdal (Stjarnan)
Jóhann fær áminningu fyrir að slá boltann úr höndum Finns Ólafssonar sem var að taka innkast.
Eyða Breyta
30. mín
Kenny Chophart komst í dauðafæri gegn Bjarna Þórði en skaut framhjá marki Fylkis.
Eyða Breyta
31. mín
Fylkismenn búnir að eiga sitt fyrsta skot á mark. Jóhann Þórhallsson átti það en það var veikt og beint á Ingvar í markinu.
Eyða Breyta
33. mín MARK! Jóhann Þórhallsson (Fylkir)
Jóhann Þórhallsson jafnar metin. Oddur Ingi Guðmundsson átti fast skot utan af velli sem Ingvar varði en náði ekki að halda boltanum og Jóhann náði frákastinu og skoraði framhjá Ingvari.
Eyða Breyta
34. mín Mark Doninger (Stjarnan) Garðar Jóhannsson (Stjarnan)
Garðar þarf að fara af velli og Doninger kemur inn í hans stað. Áhorfendur í Árbænum bauluðu þegar Doninger kom inná.
Eyða Breyta
38. mín MARK! Mark Doninger (Stjarnan)
Jóhann Laxdal búinn að leggja upp annað mark. Nú sendi hann boltann frá hægri inn í teiginn, Ellert Hreinsson lét boltann fara og Mark Doninger fékk hann á auðum sjó utarlega í teignum og skoraði.
Eyða Breyta
43. mín Gult spjald: Atli Jóhannsson (Stjarnan)
Atli fær áminningu fyrir brot á Tómasi Joð.
Eyða Breyta
45. mín
Kenny Chophart í fínu færi eftir sendingu Atla en skaut framhjá Fylkismarkinu.
Eyða Breyta
45. mín
Það er kominn hálfleikur á Fylkisvelli. Staðan 1-2 fyrir Stjörnuna í hálfleik.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Liðin koma óbreytt til leiks.
Eyða Breyta
49. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)

Eyða Breyta
60. mín
Kenny Chophart með skot langt utan af velli sem fór rétt yfir Fylkismarkið.
Eyða Breyta
63. mín MARK! Davíð Þór Ásbjörnsson (Fylkir)
Í kjölfar hornspyrnu datt boltinn dauður í teignum fyrir framan Davíð Þór Ásbjörnsson sem var fljótur að átta sig og þrumaði í markið af stuttu færi.
Eyða Breyta
67. mín Gunnar Örn Jónsson (Stjarnan) Kennie Chopart (Stjarnan)

Eyða Breyta
70. mín
Jóhann Þórhallsson skallar hátt yfir mark Stjörnunnar úr fínu færi.
Eyða Breyta
72. mín MARK! Halldór Orri Björnsson (Stjarnan)
Halldór Orri kemur Stjörnunni aftur yfir. Varamaðurinn Gunnar Örn Jónsson fór upp að endamörkum og kom boltann í teiginn á Halldór Orra sem lagði boltann í markið.
Eyða Breyta
77. mín Gult spjald: Ingimundur Níels Óskarsson (Fylkir)

Eyða Breyta
82. mín MARK! Ingimundur Níels Óskarsson (Fylkir)
Ingimundur Níels slapp einn í gegn eftir góða sendingu Björgólfs Takefusa innfyrir vörnina og afgreiddi boltann auðveldlega framhjá Ingvari í markinu.
Eyða Breyta
84. mín Magnús Þórir Matthíasson (Fylkir) Björgólfur Takefusa (Fylkir)

Eyða Breyta
85. mín
Áhorfendur á Fylkisvelli í kvöld eru 1017.
Eyða Breyta
88. mín
Alexander Scholz með skot í stöng Fylkismarksins og í kjölfarið var Doninger með skot sem Bjarni Þórður varði.
Eyða Breyta
89. mín Rúrik Andri Þorfinnsson (Fylkir) Jóhann Þórhallsson (Fylkir)

Eyða Breyta
90. mín
Þremur mínútum er bætt við venjulegan leiktíma.
Eyða Breyta
93. mín Gult spjald: Finnur Ólafsson (Fylkir)

Eyða Breyta
94. mín
Hörður Árnason með hörkuskot að marki sem Bjarni Þórður varði í horn.
Eyða Breyta
95. mín Leik lokið!
Leiknum er lokið með 3-3 jafntefli. Frekari umfjöllun og viðtöl hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Tryggvi Sveinn Bjarnason
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson
9. Daníel Laxdal
10. Halldór Orri Björnsson
14. Hörður Árnason
26. Kennie Chopart ('67)
27. Garðar Jóhannsson ('34)

Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
11. Bjarki Páll Eysteinsson
20. Gunnar Örn Jónsson ('67)
23. Snorri Páll Blöndal

Gul spjöld:
Atli Jóhannsson ('43)
Jóhann Laxdal ('28)

Rauð spjöld: