Kópavogsvöllur
fimmtudagur 01. september 2011
kl. 18:30
1. deild karla
Aðstæður: Ágætis veður, smá gola og bleyta
Dómari: Erlendur Eiríksson
HK 0 - 2 Haukar
0-1 Björgvin Stefánsson ('15)
0-2 Hilmar Trausti Arnarsson ('82)
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Byrjunarlið:
2. Aron Bjarnason
8. Atli Valsson
10. Farid Abdel Zato-Arouna
21. Ívar Örn Jónsson ('73)
22. Jóhann Andri Kristjánsson ('67)
32. Stefán Jóhann Eggertsson

Varamenn:
14. Friðrik Þór Gunnarsson ('67)
17. Samúel Arnar Kjartansson ('73)
23. Vigfús Geir Júlíusson
24. Ásgeir Marteinsson
36. Magnús Otti Benediktsson

Gul spjöld:
Eyþór Helgi Birgisson ('66)
Atli Valsson ('65)

Rauð spjöld:

Alexander Freyr Einarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik HK og Hauka í 1. deild karla. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og má segja að bæði lið hafi að mörgu að keppa, þó á sitt hvorri vígstöðinni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þegar þrjár umferðir eru eftir eru Haukarnir í 3. sætinu með 32 stig, sex stigum á eftir Selfossi sem er í 2. sætinu. Það þarf ansi margt að gerast til að þeir fari upp í Pepsi deildina en möguleikinn er vissulega enn til staðar, þó fjarrænn sé.

Allt bendir hins vegar til þess að HK sé á leið niður í 2. deildina þó að þeir hafi heldur betur vaknað til lífsins í síðustu leikjum. Eftir tvo 3-0 sigra í röð er HK með 12 stig, þó enn í neðsta sæti og sjö stigum frá öryggi. En kraftaverkin geta gerst og ljóst er að liðið sem sigrar þennan leik gæti átt von ef önnur úrslit eru hagstæð, á meðan tapliðið getur hins vegar kysst möguleikann bless.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn og Haukarnir byrja með boltann.
Eyða Breyta
4. mín
Bæði lið hafa fengið ágætis sóknir fyrstu mínúturnar sem þeim tókst þó ekki að nýta. Stefnir allt í opinn og skemmtilegan leik.
Eyða Breyta
9. mín
Þrír leikmenn eru í banni hjá HK í kvöld. Hafsteinn Briem, Leifur Andri Leifsson og Ásgeir Aron Ásgeirsson munu ekki koma við sögu í kvöld, en Hervé Aka'a er staddur erlendis af persónulegum ástæðum.
Eyða Breyta
11. mín
Haukar áttu þarna fína sókn sem endaði með fyrirgjöf sem rataði á kollinn á Alieu Jagne. Hann skallaði knöttinn rétt framhjá markinu.
Eyða Breyta
14. mín
HK fær hornspyrnu sem berst á fjærstöngina til Eyþórs Helga Birgissonar, en skot hans úr þröngu færi fer beint á Daða Lárusson sem heldur boltanum.
Eyða Breyta
15. mín MARK! Björgvin Stefánsson (Haukar)
Haukar eru komnir yfir!!! Alieu Jagne fékk boltann og sýndi mikinn styrk vinstra megin í teignum, keyrði framhjá Aroni Bjarnasyni og kom boltanum inn á Björgvin Stefánsson sem skoraði!
Eyða Breyta
18. mín
Stöngin! Ívar Örn Jónsson með hörku aukaspyrnu fyrir HK af löngu sem glymur í stönginni. Jóhann Andri Kristjánsson reyndi að fylgja eftir en fór illa að ráði sínu og boltinn endaði hjá Daða í markinu.
Eyða Breyta
22. mín
Þarna munaði mjóu! HK fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað þegar það er brotið á Stefáni Jóhanni Eggertssyni í skallaeinvígi. Ívar Örn tók spyrnuna sem fór undir vegginn en Daði Lárusson varði vel. Heimamenn eru mun beittari þessa stundina.
Eyða Breyta
24. mín
BJARGAÐ Á LÍNU!! HK fékk hornspyrnu upp úr aukaspyrnunni og Damir Muminovic var mættur í skallann en varnarmaður Hauka skallaði boltann burt af línunni. Frábær skalli hjá Damir en þarna borgaði það sig fyrir Hauka að hafa mann tilbúinn.
Eyða Breyta
28. mín
Áfram halda HK-ingar að pressa! Rétt í þessu átti Atli Valsson skalla hársbreidd framhjá markinu og ekki löngu áður höfðu þeir átt skot sem fór að vísu vel framhjá markinu. HK er klárlega betra liðið þessa stundina og eru þeir bara óheppnir að vera enn undir.
Eyða Breyta
30. mín
Mikil hætta skapast í teig HK-inga eftir hornspyrnu! Mikill darraðadans og þeim gengur illa að hreinsa boltann burt, en bægja hættunni þó frá á endanum. Það hefði verið hrikalega grimmt fyrir þá að fá mark númer tvö á sig þarna.
Eyða Breyta
34. mín
Stöngin!! Haukar eru aðeins að vinna sig betur inn í leikinn og þarna átti Hilmar Rafn Emilsson þrumuskot í stöngina eftir fínan sprett. Þarna sluppu HK-ingar með skrekkinn.
Eyða Breyta
37. mín
Þarna munaði litlu!! Ívar Örn Jónsson átti glórulausa sendingu fyrir framan teiginn og miðvörður HK rann svo hann náði ekki til boltans. Það gerði Alieu Jagne sem tók á svaka sprett og náði svo skoti sem Ögmundur Ólafsson í markinu varði vel í horn.
Eyða Breyta
39. mín
Þarna fór Eyþór Helgi Birgisson illa með gott færi! Stefán Jóhann átti þá góða sendingu en móttaka Eyþórs var slök og náði hann því ekki góðu skoti. Boltinn fór beint á Daða sem greip af öryggi.
Eyða Breyta
43. mín
Hilmar Rafn Emilsson liggur óvígur á vellinum eftir að hafa pressað á Ögmund markvörð og fengið í sig þrumuskot! Boltinn virtist hafa farið í þindina á honum sem er auðvitað langt frá því að vera þægilegt.
Eyða Breyta
45. mín
Flautað hefur verið til leikhlés hér á Kópavogsvelli. HK-ingar pressuðu vel á lokamínútunum en náðu þó ekki inn marki. Staðan er því ennþá 1-0 fyrir Hauka þegar leikmenn ganga til búningsklefanna.
Eyða Breyta
46. mín
Þá er seinni hálfleikurinn hafinn og það eru heimamenn sem byrja núna með boltann. Enda er það bara sanngjarnt, þar sem Haukar byrjuðu með hann í fyrri hálfleik. Svoleiðis virkar þetta víst.
Eyða Breyta
53. mín
Lítið um færi fyrstu mínúturnar. Erfitt að segja hvort liðið hefur byrjað hálfleikinn betur, eiginlega bara hvorugt.
Eyða Breyta
54. mín
Frábær skyndisókn hjá HK!! Farid Arouna fékk boltann, lagði hann á Stefán Jóhann sem geystist upp kantinn og átti svo frábæra fyrirgjöf, en skot Jóhanns Andra Kristjánssonar fór rétt yfir markið.
Eyða Breyta
57. mín
HK-ingar aðeins að ná völdunum aftur. Eyþór Helgi kom sér í fínt skotfæri en Daði varði skot hans vel.
Eyða Breyta
60. mín
Ótrúlega óheppnir HK-ingarnir að ná ekki að skora!! Rétt í þessu átti Atli Valsson skalla sem lak framhjá markinu eftir góða fyrirgjöf frá Stefáni Eggerti. Atli var á undan Daða í boltann, skallaði yfir hann en boltinn fór sem fyrr sagði framhjá.
Eyða Breyta
65. mín Gult spjald: Atli Valsson (HK)
Atli Valsson fer í tæklingu og meiðist illa í leiðinni, en hann fær að líta gula spjaldið á óútskýranlegan hátt.
Eyða Breyta
66. mín Gult spjald: Eyþór Helgi Birgisson (HK)
Eyþór Helgi fær að líta annað gula spjald HK á tveimur mínútum. Hann fór heldur harkalega í Hilmar Trausta Arnarsson.
Eyða Breyta
67. mín Friðrik Þór Gunnarsson (HK) Jóhann Andri Kristjánsson (HK)

Eyða Breyta
68. mín
Haukar fá aukaspyrnu á hættulegum stað en spyrnan frá Úlfari Hrafni fer beint á Ögmund í markinu.
Eyða Breyta
73. mín Samúel Arnar Kjartansson (HK) Ívar Örn Jónsson (HK)

Eyða Breyta
81. mín
Lítið að gerast þessa stundina. Hvorugt liðanna er líklegt til að skora í augnablikinu.
Eyða Breyta
82. mín MARK! Hilmar Trausti Arnarsson (Haukar)
Haukar fara nálægt því að klára leikinn!! Boltinn berst inn í teiginn úr aukaspyrnu og þar er Hilmar Trausti mættur og skallar boltann í netið! 2-0 fyrir Hauka!
Eyða Breyta
86. mín Aron Freyr Eiríksson (Haukar) Úlfar Hrafn Pálsson (Haukar)

Eyða Breyta
89. mín Aron Jóhannsson (Haukar) Björgvin Stefánsson (Haukar)

Eyða Breyta
90. mín
Leiknum er lokið með 2-0 sigri Hauka! Því miður fyrir HK-inga eru þeir fallnir í 2. deildina, sem verður að teljast gríðarlegt áfall fyrir félagið. Haukar eiga hins vegar enn smá möguleika á sæti í Pepsi deildinni, nú eru þeir þremur stigum á eftir Selfossi sem eiga leik til góða.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Daði Lárusson
4. Kristján Ómar Björnsson
5. Hilmar Rafn Emilsson
5. Alieu Jagne
6. Úlfar Hrafn Pálsson ('86)
9. Hilmar Trausti Arnarsson
13. Björgvin Stefánsson ('89)
17. Ásgeir Þór Ingólfsson
20. Daníel Einarsson
21. Guðmundur Viðar Mete
24. Benis Krasniqi

Varamenn:
11. Aron Már Smárason
16. Aron Jóhannsson ('89)
16. Aron Freyr Eiríksson ('86)
25. Þórir Guðnason
26. Grétar Atli Grétarsson
27. Alexander Freyr Sindrason
29. Marteinn Urbancic

Gul spjöld:

Rauð spjöld: