Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
ÍR
1
3
Selfoss
0-1 Joseph David Yoffe '21 , víti
0-2 Joseph David Yoffe '35
Stefán Þór Pálsson '37 1-2
1-3 Joseph David Yoffe '45
Heimir Snær Guðmundsson '94
10.09.2011  -  16:00
ÍR-völlur
1. deild karla
Aðstæður: Sól og smá gola. Völlurinn fínn.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:
Árni Freyr Guðnason ('66)
Jóhann Björnsson
7. Jón Gísli Ström
17. Guðjón Gunnarsson ('64)
22. Axel Kári Vignisson
29. Stefán Þór Pálsson

Varamenn:
25. Brynjar Örn Sigurðsson (m)
3. Reynir Haraldsson
4. Magnús Pálmi Gunnarsson
7. Jónatan Hróbjartsson
10. Elías Ingi Árnason ('66)
11. Kristján Ari Halldórsson ('64)
11. Davíð Már Stefánsson ('64)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Heimir Snær Guðmundsson ('85)
Karl Brynjar Björnsson ('64)
Haukur Ólafsson ('32)
Jóhann Björnsson ('20)

Rauð spjöld:
Heimir Snær Guðmundsson ('94)
Fyrir leik
Hér verður bein textalýsing frá leik ÍR og Selfoss í næstsíðustu umferð fyrstu deildar karla.

Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið, Selfoss þarf stig til að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni að ári á meðan ÍR þarf stig til að gulltryggja sæti sitt í fyrstu deildinni.
Fyrir leik
Selfyssingar sakna Babacarr Sarr og Joe Tillen sem taka út leikbann í dag. Hjá ÍR er Tómas Agnarsson í banni auk þess sem varnarmaðurinn Halldór Arnarsson er fjarverandi.
Fyrir leik
Aðstæður í Breiðholtinu eru flottar, sól en smá gola. Völlurinn lítur vel út þó að farið sé að hausta.
Fyrir leik
Leikmenn eru mættir út á völl. ÍR spilar í bláum búningum í dag en Selfyssingar eru í sínum hefðbundnu vínrauðu búningum.
1. mín
Leikurinn er hafinn.
2. mín
ÍR-ingar byja leikinn af krafti. Þeir fengu hornspyrnu á fyrstu mínútu og nú átti Jón Gísli Ström skot framhjá úr ágætis færi.
3. mín Gult spjald: Þorsteinn Daníel Þorsteinsson (Selfoss)
Andri Freyr fær fyrsta gula spjaldið strax á þriðju mínútu fyrir að brjóta á Árna Frey Guðnasyni fyrirliða ÍR.
Már Ingólfur Másson
vantar ekki selfyssinga i dag. Pepsilykt i lofyinu #orgid
6. mín
Fyrsta alvöru sókn Selfyssinga. Viðar Örn Kjartansson kemst upp hægri kantinn og sendir á Jón Daða Böðvarsson en fyrsta snertingin svíkur hann.
13. mín
Gamla kempan Sævar Þór Gíslason hefur ekki átt fast sæti í liði Selfyssinga í sumar en hann byrjar á vinstri kantinum í dag.
20. mín Gult spjald: Jóhann Björnsson (ÍR)
20. mín
Selfyssingar fá vítaspyrnu! Einar Ottó Antonsson tekur á rás, sparkar boltanum á undan sér inn í teiginn og lendir í samstuði við Árna Frey Guðnason. Vilhjálmur Alvar dómarin bendir á punktinn.
21. mín Mark úr víti!
Joseph David Yoffe (Selfoss)
Viðar Örn skorar af öryggi úr vítaspyrnunni. 1-0 fyrir Selfyssingum og útlitið gott hjá þeim! Tólfta mark Viðar í sumar en hann er nú næstmarkahæstur í deildinni ásamt Hirti Hjartarsyni.
30. mín
Selfyssingar eru líklegri til að bæta við en ÍR-ingar að jafna. Peter Klancar á hörkuskot fyrir utan teig en boltinn fer rétt yfir.
32. mín Gult spjald: Haukur Ólafsson (ÍR)
34. mín Gult spjald: Peter Klancar (Selfoss)
Það er mikið í húfi í dag og leikmenn leggja sig alla í verkefnið. Vilhjálmur Alvar hefur gefi fjögur gul spjöld í leiknum en nú er það Peter Klancar sem er spjaldaður fyrir að brjóta á Jóni Gísla Ström.
35. mín MARK!
Joseph David Yoffe (Selfoss)
Selfyssingar eru á mjög góðri leið með að tryggja Pepsi-deildar sætið! Viðar Örn skorar annað mark sitt og það þrettánda í sumar en hann er nú markahæstur í deildinni ásamt Sveinbirni Jónassyni framherja Þróttar. Jón Daði Böðvarsson átti misheppnað skot en boltinn fór beint á Viðar sem skoraði af öryggi!
37. mín MARK!
Stefán Þór Pálsson (ÍR)
ÍR-ingar minnka muninn og opna leikinn aftur. Stefán Þór Pálsson nær eftir smá barning að komast í gegn og skora framhjá Jóhanni Ólafi Sigurðssyni í markinu. Vel gert hjá Stefáni sem er fæddur árið 1995.
42. mín Gult spjald: Ivar Skjerve (Selfoss)
45. mín
Selfyssingar fá aðra vítaspyrnu. Jóhann Björnsson fer aftan í Jón Daða Böðvarsson og Vilhjálmur Alvar bendir aftur á punktinn.
45. mín MARK!
Joseph David Yoffe (Selfoss)
Viðar skorar aftur í sama horn og í fyrri vítaspyrnu sinni. Hann er nú kominn með þrennu og orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar með 14 mörk.
45. mín
Búið er að flauta til leikhlés í Breiðholtinu. Selfyssingarnir leiða 3-1 og það þarf stórslys ef liðið ætlar ekki að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni í dag. ÍR-ingar þurfa aftur á móti að passa því eins og staðan er í öðrum leikjum verða þeir ennþá í fallhættu í lokaumferðinni. Þar gæti markatalan skipt máli.....
46. mín
Inn:Ingólfur Þórarinsson (Selfoss) Út:Þorsteinn Daníel Þorsteinsson (Selfoss)
Síðari hálfleikur er hafinn. Selfyssingar gera eina breytingu en Ingólfur Þórarinsson kemur inn á fyrir Andra Frey Björnsson. Ingólfur fer á hægri kantinn, Arilíus Marteinsson fer á miðjuna fyrir Peter Klancar sem tekur stöðu Andra Freys í vinstri bakverði.
52. mín Gult spjald: Stefán Ragnar Guðlaugsson (Selfoss)
57. mín Gult spjald: Tómas Leifsson (Selfoss)
58. mín
Axel Kári Vignisson, vinstri bakvörður ÍR, á gott skot úr aukaspyrnu en Jóhann Ólafur Sigursson ver í horn.
64. mín Gult spjald: Karl Brynjar Björnsson (ÍR)
Karl Brynjar er sjöundi leikmaðurinn sem fær gula spjaldið í dag en hann braut á Jóni Daða sem var á fleygiferð.
64. mín
Inn:Kristján Ari Halldórsson (ÍR) Út:Haukur Ólafsson (ÍR)
64. mín
Inn:Davíð Már Stefánsson (ÍR) Út:Guðjón Gunnarsson (ÍR)
66. mín
Eftir laglegt spil Selfyssinga á Ingólfur Þórarinsson fyrirgjöf á Jón Daða Böðvarsson en skot hans fer framhjá markinu.
66. mín
Inn:Elías Ingi Árnason (ÍR) Út:Árni Freyr Guðnason (ÍR)
ÍR-ingar nota sína síðustu skiptingu en Elías Ingi Árnason útvarpsmaður kemur inn á fyrir fyrirliðann Árna Frey Guðnason sem er að glíma við meiðsli aftan í læri.
71. mín
Viðar Örn fær tvö dauðafæri til að skora fjórða mark sitt. Viðar fékk sendingu frá Sævar Þór Gíslasyni og var einn á móti Róberti í markinu. Viðar ákvað að skjóta strax fyrir utan teig og Róbert varði frá honum í horn. Upp úr hornspyrnunni fékk Viðar annað gott færi en skot hans fór í innkast!
74. mín Gult spjald: Ólafur Karl Finsen (Selfoss)
77. mín
Viðar Örn ætlar ekki að ná fjórða markinu. Hann fær tvö færi í sömu sókninni en í bæði skiptin ná ÍR-ingar að bjarga.
81. mín
Inn:Ingi Rafn Ingibergsson (Selfoss) Út:Tómas Leifsson (Selfoss)
84. mín
Inn:Ingþór Jóhann Guðmundsson (Selfoss) Út:Svavar Berg Jóhannsson (Selfoss)
85. mín Gult spjald: Heimir Snær Guðmundsson (ÍR)
85. mín
Varamaðurinn Ingi Rafn Ingibergsson á hörkuskot fyrir utan teig en Róbert Örn ver í horn. Selfyssingar eru að sigla þessu örugglega í höfn.
94. mín Rautt spjald: Heimir Snær Guðmundsson (ÍR)
Heimir Snær fær sitt annað gula spjald og þar með rautt. Hann missir af mikilvægum lokaleik í mótinu.
Hafliði Breiðfjörð
95. mín
Leiknum er lokið með 1-3 sigri Selfoss sem með því tryggði sér sæti í efstu deild að ári á meðan ÍR hefur ekki enn bjargað sínu sæti. Viðtöl og frekari umfjöllun kemur hér á Fótbolta.net í kvöld.
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Jóhann Ólafur Sigurðsson (m)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson ('46)
7. Svavar Berg Jóhannsson ('84)
9. Joseph David Yoffe
21. Stefán Ragnar Guðlaugsson (f)

Varamenn:
10. Ingólfur Þórarinsson ('46)
22. Andri Már Hermannsson

Liðsstjórn:
Sigurður Eyberg Guðlaugsson
Ingi Rafn Ingibergsson

Gul spjöld:
Ólafur Karl Finsen ('74)
Tómas Leifsson ('57)
Stefán Ragnar Guðlaugsson ('52)
Ivar Skjerve ('42)
Peter Klancar ('34)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson ('3)

Rauð spjöld: