Hásteinsvöllur
sunnudagur 11. september 2011
kl. 16:00
Pepsi-deild karla
Dómari: Erlendur Eiríksson
ÍBV 3 - 1 Þór
0-1 Jóhann Helgi Hannesson ('24)
1-1 Aaron Spear ('28)
2-1 Aaron Spear ('46)
3-1 Andri Ólafsson ('68)
Byrjunarlið:
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Matt Garner
10. Aaron Spear ('76)
15. Tonny Mawejje
19. Arnór Eyvar Ólafsson
30. Ian Jeffs

Varamenn:
25. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
8. Yngvi Borgþórsson ('76)
13. Kjartan Guðjónsson ('84)
16. Jón Ingason ('89)
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson

Gul spjöld:
Brynjar Gauti Guðjónsson ('91)
Ian Jeffs ('88)

Rauð spjöld:

Njáll Aron Hafsteinsson
Fyrir leik
Komiði sæl og veriði velkomin í beina textalýsingu af leik ÍBV og Þórs í 18. umferð Pepsi-deildar karla. Hér munum við uppfæra allt það helsta sem gerist í leiknum. Byrjunarlið liðanna má sjá hér sitt hvorum megin við lýsinguna.

Við minnum á að valdar færslur af samskiptavefnum Twitter gætu ratað hingað inn. Notið þá #fotbolti í færsluna.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hjá heimamönnum í ÍBV er skarð fyrir skildi að hvorki Finnur Ólafsson né Tryggvi Guðmundsson eru með því þeir taka út leikbann. Til að fylla upp í leikmannahópinn er Heimir Hallgrímsson þjálfari liðsins með tvo varamarkmenn, þá Abel Dhaira og Guðjón Orra Sigurjónsson. Aaron Spear og Andri Ólafsson koma inn í byrjunarliðið fyrir Tryggva og Finn frá síðasta leik sem var 3-1 sigur á Víkingi 29. ágúst.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hjá Þór eru tvær breytingar frá markalausu jafntefli gegn Grindavík 28. ágúst. Andri Sigurjónsson og Sigurður Marinó Kristjánsson fara á bekkinn fyrir Inga Frey Hilmarsson og Svein Elías Jónsson.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Veðrið hérna í eyjum er gott. Smá skýjað og logn. Flott veður til að spila fótbolta.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Karl Jóhann:
Vona bara að Þórsarar taki ÍBV á Hásteinsvelli. Mín spá 2-3 fyrir Þórsurum #fótbolti #siguríeyjum
Eyða Breyta
Fyrir leik
Albert Sævarsson byrjar í dag og verður hann því þriðji markvörður eyjamanna sem hefur spila á móti Þór á þessari leiktíð. Fróðlegt verður að sjá hvort að hann geri eitthver mistök í þessu leik.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Valtýr Auðbergsson:
ÍBV sigur í dag og KR tapar á móti FH , ÍBV á toppinn til lokadags. #fotboltiValtýr Auðbergsson

Eyða Breyta
Fyrir leik
5 mínútur í leik og mjög döpur mæting hér á Hásteinsvelli
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn. Og það eru Þórsara sem byrja með boltan.
Eyða Breyta
7. mín
Lítið að gerast þessar fyrstu mínútur þó er eyjamenn mjög grimmir og pressa mjög mikið.
Eyða Breyta
8. mín
Ian jeffs fékk hérna fína sendingu frá Aaron Spear en náði ekki almennilega skoti á markið.
Eyða Breyta
12. mín
Frábær sending frá Arnóri Eyvar en Andri Ólafsson rétt missti af boltanum. Rajkovic sló boltan aftur fyrir markið hjá Þórsörum.
Eyða Breyta
16. mín Gult spjald: Clark Keltie (Þór )
Fyrir brot á Andra Ólafssyni, mjög gróft brot að mínu mati. Fór með takkan alltof hátt.
Eyða Breyta
21. mín
Þórarinn Ingi með góð sendingu innfyrir vörn Þórsara á Aaron Spear sem á gott skot en frábær markvarsa hjá Rajkovic
Eyða Breyta
24. mín MARK! Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
Sveinn Elías Jónsson með góða sendingu fyrir og þar var Jóhann Helgi mættur og stangaði boltan í netið.
Eyða Breyta
28. mín MARK! Aaron Spear (ÍBV)
Skoraði eftir kaufagang í vörn Þórsara. Þórsar ósáttir vildu meina að það hefði verið brotið á markvörði þeirra. Ian Jeffs fær stoðsendingu eftir að hafa fengið boltan frá einu Þórsörum.
Eyða Breyta
35. mín
Eyjamenn með góða skyndisók en Þórsara bjarga í horn. Aaron Spear átti skotið.
Eyða Breyta
36. mín
Þórsara vinna horn eftir skot frá Jóhanni Helga.
Eyða Breyta
37. mín
Þórsara vilja meina að Arnór hefði brotið á Inga Freyr en dómarinn dæmir horn í staðinn. Mjög lítil snerting þarna.
Eyða Breyta
40. mín
Þórsara eiga gott skot á markið en það er rétt framhjá, Ármenn Pétur átti skotið.
Eyða Breyta
42. mín
Ian Jeffs með flott skot en Rajkovic varði vel í horn. Ekkert verður í horninu.
Eyða Breyta
45. mín
Það er kominn hálfleikur hérna á Hásteinsvelli. Staðan er 1-1, eyjamenn búnir að vera betri aðilinn í leiknum en Þórsara er alltaf stórhættulegir. Fróðlegt verður að sjá hvernig seinni hálfleikur mun þróast.
Eyða Breyta
45. mín
Ómar Ingi:
Það er bara svo erfitt fyrir ÍBV að vinna án Finns "Beauty" Ólafssonar #fotbolti #200kóp #HK
Eyða Breyta
45. mín
Mattíhas Ragnarsson:
Af athyglisverðir bekkir í ÍBV- Þór, tveir markmenn hjá ÍBV og Atli Sigurjóns hjá Þór #hvaðeraðfrétta? #fotbolti
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
Eyða Breyta
46. mín MARK! Aaron Spear (ÍBV)
Skoraði frábært mark. Guðmundur Þórarinnsson með frábæra sending, Aaron og Ian Jeffs voru að reyna að skalla boltan sem datt svo fyrir Aaron sem tók hann og kassan og setti hann í vinkilinn.
Eyða Breyta
54. mín
Áhorfendur í dag er 785. Við duttum aðeins út áðan en erum komnir inn aftur.
Eyða Breyta
54. mín
Áhorfendur í dag er 785. Við duttum aðeins út áðan en erum komnir inn aftur.
Eyða Breyta
67. mín
Bæði lið skiptast á því að sækja. Þrátt fyrir að hvorugt lið náð að skapa sér neitt.
Eyða Breyta
68. mín MARK! Andri Ólafsson (ÍBV)
Skorði flott mark eftir að Rasmus náði ekki að skjóta. Boltinn barst þá til Andra sem setti hann upp í vinkilinn.
Eyða Breyta
73. mín
Netið er alltaf að detta út hérna. Annars eru Þórsara búnir að sækja aðeins en það vantar alltaf eitthað uppá.
Eyða Breyta
75. mín Dávid Disztl (Þór ) Ingi Freyr Hilmarsson (Þór )

Eyða Breyta
76. mín Yngvi Borgþórsson (ÍBV) Aaron Spear (ÍBV)
Tveggja marka maðurinn fer útaf og reynsluboltin kemur inná.
Eyða Breyta
83. mín Sigurður Marinó Kristjánsson (Þór ) Ármann Pétur Ævarsson (Þór )

Eyða Breyta
84. mín Kjartan Guðjónsson (ÍBV) Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV)
Undrabarnið Kjartan Guðjónsson fær hérna 6 mínútur til að gera eitthvað að vita.
Eyða Breyta
87. mín Baldvin Ólafsson (Þór ) Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
Líklega vegna meiðsla.
Eyða Breyta
88. mín Gult spjald: Ian Jeffs (ÍBV)
Fær gult spjald fyrir gróft brot.
Eyða Breyta
89. mín Jón Ingason (ÍBV) Guðmundur Þórarinsson (ÍBV)
Jón Ingasson sem er aðeins 15 ára kemur hérna inná í sínum fyrst leik.
Eyða Breyta
91. mín Gult spjald: Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV)

Eyða Breyta
95. mín
Leikurinn er búinn og ÍBV er komið á toppinn í bili.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Srdjan Rajkovic (m)
6. Ármann Pétur Ævarsson ('83)
9. Jóhann Helgi Hannesson ('87)
10. Sveinn Elías Jónsson
13. Ingi Freyr Hilmarsson ('75)
15. Janez Vrenko

Varamenn:
2. Baldvin Ólafsson ('87)
19. Sigurður Marinó Kristjánsson ('83)

Gul spjöld:
Clark Keltie ('16)

Rauð spjöld: