Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
ÍBV
1
0
Fram
Gunnar Már Guðmundsson '83 1-0
23.06.2013  -  17:00
Hásteinsvöllur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Sólin skín en talsverður vindur á annað markið
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Áhorfendur: 1008
Maður leiksins: Eiður Aron Sigurbjörnsson
Byrjunarlið:
6. Gunnar Þorsteinsson
11. Víðir Þorvarðarson ('85)
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Varamenn:
5. Jón Ingason

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Guðjón Orri Sigurjónsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur Fótbolti.net. Hér mun fara fram bein textalýsing frá leik ÍBV og Fram í 8.umferð Pepsi deildarinnar.

Það er sól í Eyjum en talsverður vindur í átt að öðru markinu.

Leikurinn hefst kl 17:00
Fyrir leik
Bæði byrjunarliðin eru óbreytt frá síðasta deildarleik beggja liða. Þar sem ÍBV gerði 1-1 jafntefli við Val á Hlíðarenda en Fram vann 4-1 sigur á Þór.
Fyrir leik
Ríkharður Daðason hefur farið mjög vel af stað með lið Fram en hann tók við af Þorvaldi Örlygssyni sem að er tekinn við liði ÍA.
Ríkharður hefur unnið alla sína þrjá leiki frá því að hann tók við en einn þessara leikja var gegn Víking Ólafsvík í bikarnum sem að Fram vann í vítaspyrnukeppni.
Fyrir leik
Leikmenn liðanna eru farinn inn í klefa. Leikurinn hefst eftir örfáar mínútur.
Fyrir leik
Leikmenn liðanna labba inn á völlin og Þar sem hjartað slær er spilað undir.
Fyrir leik
Mínútuþögn er fyrir leikinn vegna andlát Ólafs Eðvarðs Rafnsonar sem var forseti ÍSÍ
1. mín
Leikurinn er hafinn!
1. mín
Færi strax í upphafi leiks. Arnór vinnur boltann gaf boltann á Víði sem gaf á Gunnar og hann lagði hann á Tonny sem náði ekki að skjóta, hefði átt að taka hann í fyrsta þarna!
8. mín
Arnór Eyvar átti frábært skot sem að Ögmundur náði að verja í horn.
Ögmundur er hinsvegar eitthvað að kveinka sér en leikurinn heldur áfram.
9. mín
Víðir vinnur aukaspyrnu hliðar við vítateiginn. Hana tók Ian Jeffs og var spyrnan slök og er markspyrna frá marki Fram
13. mín
Fram fær aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Steve Lennon átti spyrnuna og hann fór af varnarmanni og boltinn rétt framhjá. David James var farinn í hitt hornið.
18. mín Gult spjald: Ólafur Örn Bjarnason (Fram)
Fyrir að sparka aftan í Víði Þorvarðarson
22. mín
Inn:Halldór Arnarsson (Fram) Út:Bjarni Hólm Aðalsteinsson (Fram)
Bjarni Hólm liggur eftir hér á vellinum. Hefur líklega gerst þegar að Víðir fór framhjá honum. Hefur meitt sig í hnénu. Þarf að fara útaf. Inná fyrir hann kemur Halldór Arnarsson
31. mín
Halsmann tók hornspyrnu og boltinn barst til Almars og Tonny ýtti við honum og Fram vildu fá víti og fannst mér að það hefði alveg verið hægt að dæma víti.
40. mín
Voða lítið í gangi í leiknum eins og er. Mikið um misheppnaðar sendingar og hvorugu liðinu tekst að skapa sér tekst að skapa sér almennileg færi.
45. mín
Kominn hálfleikur hér á Hásteinsvelli. Búinn að vera steindauður leikur hér í Eyjum. Vonum að það verði skemmtilegri seinni hálfleikur hérna eftir korter.
45. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn, eyjamenn byrja með boltann
Jóhann Norðfjörð
47. mín
Leikurinn byrjar á svipaðan hátt og seinni hálfleikurinn endaði, núll að frétta
Jóhann Norðfjörð
51. mín
Baráttan er á miðsvæði vallarins og virðist boltinn bara ætla vera þar, ég hef ekki fylgst með eins leiðinlegum leik á ævinni... af því sem komið er
Jóhann Norðfjörð
58. mín
Liðin skiptast á að halda boltanum, en alltaf virðist hann enda útaf vellinum
Jóhann Norðfjörð
61. mín
Eyjamenn næla sér í hornspyrnu, misskilningur hjá varnamanni og markverði
Jóhann Norðfjörð
62. mín
Ekkert verður úr þessari spyrnu og framarar hreinsa
Jóhann Norðfjörð
66. mín
Flott sending frá Halsman inn á Hólmbert Aron sem á góðan skalla í fangið á James, fín tilraun hjá Fram!
Jóhann Norðfjörð
67. mín
Inn:Bradley Simmonds (ÍBV) Út:Ragnar Pétursson (ÍBV)
Jóhann Norðfjörð
68. mín
Simmonds kemur ferskur inn og nær hér strax skoti á markið, Ögmundur ver vel!
Jóhann Norðfjörð
69. mín
Eyjamenn fengu hér hornspyrnu, Matt Garner tók hana og fór boltinn beint á hausinn á Brynjari Gauta sem gerir vel með að ná boltanum.. Ögmundur ver þennan bolta vel!
Jóhann Norðfjörð
69. mín
Inn:Haukur Baldvinsson (Fram) Út:Viktor Bjarki Arnarsson (Fram)
Jóhann Norðfjörð
71. mín
Framarar eiga hornspyrnu, Halsman tekur hana og ekkert verður úr þessari spyrnu
Jóhann Norðfjörð
73. mín
Er ekki frá því að Rikki Daða sé mesti töffarinn í þessari deild (Þjálfari framara)
Jóhann Norðfjörð
77. mín
Það er bara ekkert að gerast í þessum leik..
Jóhann Norðfjörð
79. mín
Steven Lennon brýtur á Tonny Mawejje svona 40 metrum frá marki, Matt Garner tekur spyrnuna stutt á Ian Jeffs sem missir af boltanum!
Jóhann Norðfjörð
80. mín
Mikið klafs inn í teig framara en loksins ná þeir að bjarga!
Jóhann Norðfjörð
83. mín MARK!
Gunnar Már Guðmundsson (ÍBV)
Stoðsending: Ian Jeffs
Glæsileg sókn hjá ÍBV!

Ian Jeffs fær boltann inn í framara og tekur flottan þríhyrning við Matt Garner og leggur síðan boltann fyrir markið á Gunnar Már sem potar boltanum yfir marklínuna! 1-0 fyrir ÍBV!
Jóhann Norðfjörð
85. mín
Inn:Aaron Spear (ÍBV) Út:Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Jóhann Norðfjörð
86. mín
Eyjamenn fá hér hornspyrnu, Aaron Spear tekur hana og virðist reyna skot.. ekki góð spyrna og framarar eiga markspyrnu
Jóhann Norðfjörð
89. mín
Lítið eftir af þessum leik, eyjamenn ætla halda þessu marki á meðan framarar reyna sitt besta í að koma boltanum fram á völlinn!
Jóhann Norðfjörð
90. mín
3 mínútum bætt við!
Jóhann Norðfjörð
93. mín
Leik lokið hér á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum, ÍBV vinnur 1-0 sigur á Fram í drepleiðinlegum leik sem mér fannst persónulega vera jafn lélegur hjá báðum liðum.

Ég þakka fyrir mig, stay tuned og allt bara.
- J.N
Jóhann Norðfjörð
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
Halldór Hermann Jónsson
11. Almarr Ormarsson
13. Viktor Bjarki Arnarsson ('69)
28. Bjarni Hólm Aðalsteinsson ('22)

Varamenn:
1. Denis Cardaklija (m)
8. Aron Þórður Albertsson
9. Haukur Baldvinsson ('69)
14. Halldór Arnarsson ('22)

Liðsstjórn:
Daði Guðmundsson

Gul spjöld:
Ólafur Örn Bjarnason ('18)

Rauð spjöld: