Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Ísland
1
1
Noregur
0-1 Kristine Nöstmo '26
Margrét Lára Viðarsdóttir '87 , víti 1-1
11.07.2013  -  16:00
Guldfågeln Arena
EM kvenna 2013
Aðstæður: Frábærar aðstæður, veðrið að leika við liðin
Dómari: Katalin Kulcsár
Byrjunarlið:
1. Guðbjörg Gunnarsdóttir (m)
2. Sif Atladóttir ('62)
7. Sara Björk Gunnarsdóttir (f)
9. Margrét Lára Viðarsdóttir
10. Hólmfríður Magnúsdóttir
10. Guðmunda Brynja Óladóttir
10. Dóra María Lárusdóttir
10. Dagný Brynjarsdóttir ('83)
11. Hallbera Guðný Gísladóttir
22. Rakel Hönnudóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir ('62)

Varamenn:
1. Þóra Björg Helgadóttir (m)
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
3. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
3. Elísa Viðarsdóttir
8. Katrín Ómarsdóttir ('83)
16. Harpa Þorsteinsdóttir ('62)
19. Anna Björk Kristjánsdóttir

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Hólmfríður Magnúsdóttir ('35)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Noregi en leikið er í Kalmar. Stillt er upp í 4-4-2.

Byrjunarliðið (4-4-2):

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir

Hægri bakvörður: Dóra María Lárusdóttir

Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Sif Atladóttir

Tengiliðir: Dagný Brynjarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir

Hægri kantur: Fanndís Friðriksdóttir

Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir

Framherjar: Margrét Lára Viðarsdóttir og Rakel Hönnudóttir
Fyrir leik
Það fer að styttast í leikinn, bæði lið búin að hita vel upp.
Brynjar Ingi Erluson
Fyrir leik
Öðruvísi uppstilling hjá íslenska liðinu. Dóra María í hægri bakverði og Rakel Hönnudóttir er frammi.
Brynjar Ingi Erluson
Fyrir leik
Dómarinn í dag er frá Ungverjalandi en annar af aðstoðardómurunum, Sian Massey, er eini kvenkyns dómarinn í ensku úrvalsdeildinni. Hún varð heimsfræg eftir að íþróttafréttamennirnir Andy Gray og Richard Keys töluðu um hana í beinni útsendingu og misstu vinnuna í kjölfarið.
Fyrir leik
Lýsingarkerfið er þannig byggt upp að aðeins er pláss fyrir sjö varamenn. Það eru hinsvegar allir leikmenn í hóp. Þetta ber að taka fram.
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl og þetta fer að hefjast. Frábær umgjörð á þessum stórglæsilega velli sem er heimavöllur Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni.
Fyrir leik
Þjóðsöngvarnir að baki og þá má þetta fara að byrja! Hér verður hlutdræg en hress lýsing.
Sigurður Mikael Jónsson:
Íslensku afrekskonurnar urðu auðvitað ekkert svona góðar í fótbolta með því að taka söngtíma samhliða því #þjóðsöngurinn #fotbolti
1. mín
Leikurinn er hafinn: Ísland byrjaði með boltann.
4. mín
Íslenska liðið meira með boltann fyrstu mínúturnar. Hættuleg sókn áðan en sóknarbrot dæmt á Hólmfríði.
Björn Már Ólafsson, fótboltaáhugamaður
Fjölmiðlar segja norska kvennaliðið spila Drillo knattspyrnu. Skulum vona að þær séu með jafn hæfileikasnauða miðjumenn og norsk.karlal.
Brynjar Ingi Erluson
7. mín
Hallbera með glæsilega sendingu upp kantinn á Hólmfríði sem lék á varnarmann og átti fyrirgjöf sem skapaði hættu en Ísland náði ekki skoti. Góð sókn.
12. mín
Fanndís með fyrsta skot Íslands á markið en það var laflaust.
Anna Garðarsdóttir, leikmaður Selfoss
Með Dóru og Hallberu í vörninni eru 0% líkur á að við fáum á okkur mark. Nú er bara að vona að MLV9 setji eitt og þá er þetta komið!
Brynjar Ingi Erluson
14. mín
Caroline Hansen spræk í byrjun. Hún með skot sem skapaði ekki hættu.
16. mín
Margrét Lára Viðarsdóttir með mjög laust skot, auðvelt viðureignar fyrir Ingrid Hjelmseth, markvörð Noregs.
17. mín
Sif Atladóttir með misheppnaða hreinsun, beint á andstæðing. Noregur með skot sem hitti ekki rammann.
22. mín
Fanndís í fínni stöðu fyrir fyrirgjöf en átti mjög misheppnaða spyrnu.
24. mín
Vængmenn norska liðsins, Hansen og Hegland, eru að gera okkur erfitt fyrir.
26. mín MARK!
Kristine Nöstmo (Noregur)
Arfadapur varnarleikur íslenska liðsins. Boltinn fór yfir Katrínu og svo misstu Dóra og Sif norska leikmanninn sem komst einn í gegn og skoraði stöngin inn. Svona varnarleikur á ekki að sjást á þessum styrkleika.
32. mín
Íslenska liðið reynir að vinna sig úr þessu áfalli sem þetta herfilega mark var. Ísland átt nokkur skot á markið en öll verið mjög laus.
34. mín
Hallbera er í yfirvinnu að reyna að stöðva Hansen.
35. mín Gult spjald: Hólmfríður Magnúsdóttir (Ísland)
Fyrir brot.
37. mín
Hansen með skot yfir úr aukaspyrnu.
38. mín
Stórhættulegt skot frá Hegerberg naumlega framhjá. Mun meira bit í norska liðinu. Því miður.
42. mín
Hólmfríður gerir vel varnarlega. Besti leikmaður Íslands í leiknum til þessa.
45. mín
Hálfleikur - Dapur fyrri hálfleikur af hálfu Íslands. Ýmislegt sem Siggi Raggi þarf að fara yfir. Varnarlínan ekki nægilega vel samstillt og sóknarlega þurfa hlutirnir að gerast hraðar og bitið að vera meira. Hólmfríður án nokkurs vafa besti leikmaður Íslands í fyrri hálfleiknum.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn - Engar breytingar á liðsskipan.
51. mín
Ágætis spil og Hólmfríður komst í gott færi en var flögguð rangstæð.
55. mín
Allt með kyrrum kjörum. Norska liðið er alls ekki að spila vel en því miður hefur íslenska liðið alls ekki náð sér á strik.
57. mín
Harpa Þorsteinsdóttir að gera sig klára. Aðstoðarþjálfarinn Guðni Kjartansson kom þá með skilaboð til Glódísar. Breytinga er þörf.
62. mín
Það er ekkert eðlilegt við það að boltinn fái ítrekað að skoppa í og við íslenska teiginn.
62. mín
Inn:Harpa Þorsteinsdóttir (Ísland) Út:Fanndís Friðriksdóttir (Ísland)
62. mín
Inn:Glódís Perla Viggósdóttir (Ísland) Út:Sif Atladóttir (Ísland)
65. mín
Hólmfríður með ágætis skottilraun en framhjá fór boltinn.
72. mín
Hættulegasta marktilraun Íslands til þessa! Dóra María gerði vel og sendi fyrir á Hörpu sem náði fínu skoti en markvörður Noregs varði.
74. mín
Rakel Hönnu skallaði yfir! Jæja tvær fínar tilraunir með stuttu millibili! Vonandi láta stelpurnar kné fylgja kviði.
75. mín
Inn:Elise Thorsnes (Noregur) Út:Stine Reinas (Noregur)
75. mín
Inn:Kristine Minde (Noregur) Út:Gunhild Herregarden (Noregur)
76. mín
Besti kafli Íslands í leiknum. Sara Björk í hörkufæri en varnarmaður Noregs náði að fleygja sér fyrir boltann!
79. mín
3.867 áhorfendur á leiknum.
81. mín
Hólmfríður í fínu færi en skot hennar beint á norska markvörðinn. Virðist vera komin meiri trú í íslenska liðið.
83. mín
Inn:Katrín Ómarsdóttir (Ísland) Út:Dagný Brynjarsdóttir (Ísland)
85. mín
Inn:Hege Hansen (Noregur) Út:Caroline Hansen (Noregur)
86. mín
Víti!!! Brotið á Söru og Ísland fær víti!
87. mín Mark úr víti!
Margrét Lára Viðarsdóttir (Ísland)
Já þarna kom það!! Margrét Lára á punktinn og sendi markvörð Noregs í rangt horn!
89. mín
Harpa Þorsteins við það að sleppa í gegn en skorti aðeins meiri hraða.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma.
93. mín
Thorsnes með skot rétt framhjá. Líklega síðasta tilraun leiksins...
Leik lokið!
Eftir arfadapran fyrri hálfleik náði íslenska liðið að vinna sig inn í leikinn og ná fyrsta stigi sínu á stórmóti. Undir lokin var norska liðið nálægt því að stela sigrinum.
Byrjunarlið:
1. Ingrid Hjelmseth (m)
23. Kristine Nöstmo (m)
3. María Þórisdóttir
4. Gunhild Herregarden ('75)
5. Andrine Tomter
6. Maren Mjelde
7. Trine Ronning
8. Solveig Gulbrandsen
10. Caroline Hansen ('85)
19. Ingvild Isaksen
29. Stine Reinas ('75)

Varamenn:
12. Cecilie Fiskerstrand (m)
2. Marite Lund
9. Elise Thorsnes ('75)
14. Ade Hegerberg
17. Kristine Minde ('75)
25. Synne Jensen
27. Hege Hansen ('85)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: