Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fjölnir
0
1
KA
0-1 Carsten Faarbech Pedersen '86
27.07.2013  -  14:00
Fjölnisvöllur
1. deild karla
Dómari: Sigurður Óli Þórleifsson
Byrjunarlið:
3. Bergsveinn Ólafsson (f)
10. Aron Sigurðarson
15. Haukur Lárusson
16. Guðmundur Böðvar Guðjónsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Fjölnis og KA í 13. umferð 1. deildar karla.

Fjölnir er í 5. sæti deildarinnar með 21 tig og gæti jafnað Grindavík í 2. sætinu að stigum takist þeir að vinna í dag. KA er í sjötta sætinu og sigur dugir þeim til að hafa sætaskipti við Fjölni.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarlðin eru klár hér sitthvorum megin við textann. Fjölnir teflir fram Þóri Guðjónssyni í byrjunarliði en hann kom til félagsins frá Val í vikunni. Þar á bæ fagna menn líka endurkomu liðsstjórans Einars Hermannssonar sem er í fyrsta sinn í sumar á bekknum.

Fjölnir vann KF í síðasta leik og þrjár breytingar eru á liðinu, Þórir, Marino Þór Jakobsson og Guðmundur Pétursson koma inn fyrir Viðar Ara Jónsson, Ágúst Örn Arnarson og Illuga Gunnarsson.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
KA vann dramatískan 4-3 sigur á Selfossi í síðasta leik. Gunnar Valur Gunnarsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson snúa aftur í byrjunarliðið frá þeim leik fyrir Orri Gústafsson og Ivan Dragicevic en sá síðastnefndi er í leikbanni.

Hallgrímur Mar hefur verið frábær í sumar og félög í efstu deild hafa sýnt honum áhuga. Hann fer samt ekkert í sumar og ætlar að klára tímabilið með KA.
Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Leikurinn er hafinn. Fjölnir er í venjulegum gulum treyjum og bláum buxum. Þar sem það er eins og aðalbúningur KA leika gestirnir í dag í ljósbláum búningum. Fjölnir byrjar með boltann og leikur í átt að Gullöldinni.
Hafliði Breiðfjörð
3. mín Gult spjald: Gunnar Valur Gunnarsson (KA)
Gunnar Valur braut á Þóri á vítateigslínunni og aukaspyrna dæmd sem ekkert kom úr.
Hafliði Breiðfjörð
12. mín
Það er ekkert stórt að gerast enn sem komið er. Liðin eru að þreifa fyrir sér, KA menn liggja til baka og láta Fjölni koma á sig og verjast þeim þar.
Hafliði Breiðfjörð
16. mín
Bjarki tók góðan snúning í teignum og fór framhjá varnarmanni Fjölnis og þrumaði svo að marki en hátt yfir.
Hafliði Breiðfjörð
28. mín
Það er afskaplega rólegt yfir þessu í Grafarvoginum. Tempóið lágt og menn leyfa sér að njóta góða veðursins.

Enda einmuna veðurblíða í Grafarvoginum og líklega hvergi betra að vera þegar veðrið er svona gott.
Hafliði Breiðfjörð
34. mín
Guðmundur Böðvar skallar rétt yfir eftir aukaspyrnu Þóris Guðjónssonar úti hægra megin.
Hafliði Breiðfjörð
39. mín
Fyrsta alvöru færið í leiknum. Aron kom upp vinstra megin inn í teiginn og þrumaði að marki en Sandor Matus varði í horn. Eftir hornið komst Þórir í dauðafæri en varið frá honum.
Hafliði Breiðfjörð
42. mín
Inn:Orri Gústafsson (KA) Út:Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Hallgrímur hefur kveiknað sér og verður að fara af velli. Hann byrjaði ekki síðastsa leik og nær ekki að klára þennan.
Hafliði Breiðfjörð
45. mín Gult spjald: Sandor Matus (KA)
Markvörður KA fær áminningu fyrir að skamma Sigurð Óla dómara fyrir að flauta ekki á það sem hann taldi brot á sér í teignum.
Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Kominn hálfleikur, markalaust og lítið í gangi.
Hafliði Breiðfjörð
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Hafliði Breiðfjörð
47. mín
Stórhætta upp við mark Fjölnis strax í upphafi seinni hálfleiks en á síðustu stundu náðu heimamenn að hreinsa boltanum í burtu.
55. mín
Hættuleg sókn KA. Vel gert hjá Ævari Inga og skyndilega var Orri Gústafsson kominn einn gegn markverði en var flaggaður rangstæður.
60. mín
KA-menn hættulegri í upphafi seinni hálfleiks. Fengu aukaspyrnu á hættulegum stað. Brian Gilmour tók spyrnuna en boltinn í vegginn og í horn.
62. mín
Bjarki Baldvinsson í mjög góðu færi en hitti ekki boltann!
68. mín
Inn:Viðar Ari Jónsson (Fjölnir) Út:Marinó Þór Jakobsson (Fjölnir)
74. mín
Gríðarlega rólegur leikur. Fjölnismenn búnir að komast betur inn í þetta og Guðmundur Pétursson átti ágætis skottilraun en boltinn sigldi framhjá.
77. mín
Inn:Ómar Hákonarson (Fjölnir) Út:Þórir Guðjónsson (Fjölnir)
82. mín Gult spjald: Brian Gilmour (KA)
84. mín
Inn:Atli Már Þorbergsson (Fjölnir) Út:Guðmundur Pétursson (Fjölnir)
86. mín MARK!
Carsten Faarbech Pedersen (KA)
KA tekur forystuna eftir horn! Carsten Pedersen stangaði knötinn í netið. Brian Gilmour með hornspyrnuna.
88. mín
Inn:Bessi Víðisson (KA) Út:Ævar Ingi Jóhannesson (KA)
90. mín
Komið að uppbótartíma. Ef þetta verða úrslitin eru liðin jöfn að stigum, með 21 stig hvort lið í 5. og 6. sæti. Gleymum samt ekki að Fjölnismenn hafa verið duglegir að skora í blálok leikja sinna...
91. mín
Fjölnir átt nokkrar skottilraunir síðustu mínútur en ekki náð að hitta rammann.
Leik lokið!
Góður dómari leiksins, Sigurður Óli Þórleifsson flautar þennan bragðlitla leik af. Í uppbótartímanum fékk Bjarni Jóhannsson, þjálfari KA, brottvísun frá aðstoðardómaranum. Var rekinn upp í stúku.
Byrjunarlið:
29. Sandor Matus (m)
Davíð Rúnar Bjarnason
2. Gunnar Valur Gunnarsson
5. Ómar Friðriksson
6. Atli Sveinn Þórarinsson
7. Bjarki Baldvinsson
7. Ævar Ingi Jóhannesson ('88)
8. Brian Gilmour
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson ('42)
25. Carsten Faarbech Pedersen
27. Darren Lough

Varamenn:
18. Fannar Hafsteinsson (m)
4. Andrés Vilhjálmsson
10. Bessi Víðisson ('88)
18. Jón Heiðar Magnússon
28. Jakob Hafsteinsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Brian Gilmour ('82)
Sandor Matus ('45)
Gunnar Valur Gunnarsson ('3)

Rauð spjöld: