Ísland
1
0
Færeyjar
Birkir Bjarnason '65 1-0
14.08.2013  -  19:45
Laugardalsvöllur
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Ágætar, milt veður og smá vindur
Dómari: Tore Hansen frá Noregi
Byrjunarlið:
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
2. Sölvi Geir Ottesen ('45)
3. Hallgrímur Jónasson ('45)
3. Kristinn Jónsson ('45)
7. Jóhann Berg Guðmundsson
8. Birkir Bjarnason
9. Kolbeinn Sigþórsson
14. Kári Árnason

Varamenn:
2. Birkir Már Sævarsson
4. Hjálmar Jónsson
6. Ragnar Sigurðsson ('45)
10. Gylfi Þór Sigurðsson ('76)
13. Jóhann Laxdal ('45)
16. Ólafur Ingi Skúlason
23. Ari Freyr Skúlason ('45)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Nei ekki var það þannig að þetta hefði verið síðasta sóknin. Kolli náði aftur að brjótast í gegn og vippaði boltanum yfir markmanninn en boltinn fór yfir markið. En leiknum er lokið með sigri Íslands sem hefði getað verið mun stærri.
92. mín
Líklegasta síðasta sókn Íslands í leiknum. Kolli komst með tærnar í boltann eftir sendingu en boltinn fór framhjá.
90. mín
Þrem mínútum er bætt við.
87. mín Gult spjald: Atli Gregersen (Færeyjar)
86. mín
Inn:Karl Lökin (Færeyjar) Út:Heini Vandsdal (Færeyjar)
83. mín
Inn:Leif Niclasen (Færeyjar) Út:Christian R. Mouritsen (Færeyjar)
82. mín
Falleg sókn hjá drengjunum þar sem hælspyrna kom m.a. við sögu og endaði sóknin með skoti frá Arnóri Smárasyni sem fór því miður beint á markmanninn.
80. mín
Íslenska liðið er nú búið að vera miklu betra í þessum leik en hafa því miður ekki náð að nýta sér það mun meira. En það er ekki hægt að kvarta yfir því að þeir séu yfir, en margur vill meira.

Færeyingar hafa ekki átt skot að marki Íslendinga.
76. mín
Inn:Gylfi Þór Sigurðsson (Ísland) Út:Helgi Valur Daníelsson (Ísland)
71. mín
Jóhann Berg komst einn inn fyrir á móti Gunnari í marki Færeyinga.....og skaut boltanum langt yfir! Þarna átti Jói að gera betur.
68. mín
Inn:Pól Jóhannus Justinussen (Færeyjar) Út:Jóan Simun Edmundsson (Færeyjar)
68. mín
Inn:Páll Klettaskarð (Færeyjar) Út:Arnbjörn Hansen (Færeyjar)
66. mín
Inn:Arnór Smárason (Ísland) Út:Alfreð Finnbogason (Ísland)
Alfreð ekki búinn að vera nógu beittur í kvöld.
65. mín MARK!
Birkir Bjarnason (Ísland)
Stoðsending: Eiður Smári Guðjohnsen
Jæja loksins kom markið sem við höfum beðið eftir!
60. mín
Falleg sókn þar sem Ari Freyr átti fallega fyrirgjöf, Alfreð náði að koma tánni í boltann en boltinn á einhvern ótrúlegan hátt fór framhjá markinu.
58. mín
Kolbeinn við það að komast í stórhættulegt færi eftir fallegt samspil sóknarinnar. En vörn Færeyingana stóð sig vel.
52. mín
Það er óskandi að við fáum að sjá einhver mörk og helst Íslensk nú í seinni hálfleik.
50. mín
Lars gerði 4 breytingar í hléinu og má sjá þær hér fyrir neðan.
45. mín
Inn:Ari Freyr Skúlason (Ísland) Út:Kristinn Jónsson (Ísland)
45. mín
Inn:Jóhann Laxdal (Ísland) Út:Hallgrímur Jónasson (Ísland)
45. mín
Inn:Eiður Smári Guðjohnsen (Ísland) Út:Emil Hallfreðsson (Ísland)
45. mín
Inn:Ragnar Sigurðsson (Ísland) Út:Sölvi Geir Ottesen (Ísland)
45. mín
Það er kominn hálfleikur. Við fáum okkur kaffi og með því á meðan liðin peppa sig upp í seinni hálfleikinn.
45. mín
Fyrri hálfleikur er að líða undir lok. Vona svo innilega að seinni hálfleikurinn verði fjörugri en sá fyrri!
39. mín
Jóhann Berg með skot að marki en boltinn fór framhjá markinu.
38. mín
Það er það mikið fjör í þessum leik að ég er nálægt því að detta í Candy Crush!
37. mín
Rógvi er kominn inn á aftur. Sem betur fer.
33. mín
Annar Færeyingur farinn af velli til aðhlynningar og í þetta sinn er það Rógvi Baldvinsson. Virðist blæða úr höfði hans.
31. mín
Góð fyrirgjöf frá Jóa Berg en sóknarmenn Íslands náðu ekki nýta sér hana og laus skalli datt niður í teiginn.
27. mín
Falleg sókn hjá Íslandi þar sem Kolli og Alfreð náðu að spila sig saman inn í vítateig Færeyja en Alfreð fór illa að ráði sínu með skotið.
25. mín
Hallur er kominn inn á með ansi fallegar umbúðir um höfuðið.
23. mín
Hallur Hansson er utan vallar að fá aðhlynningu eftir að hafa fengið sár á höfuðið.
18. mín Gult spjald: Rógvi Baldvinsson (Færeyjar)
13. mín
Ekki mikið í gangi á vellinum eins og er. Íslendingar eru þó mun meira með boltann og eitthvað sem segir mér að þeir muni setja eitt eða tvö mörk í fyrri hálfleik.
4. mín
Jóan Símun með skot að marki Íslands. Ágætis skot en boltinn fór yfir markið.
1. mín
Það er strax sókn hjá Íslandi. Birkir fékk fyrirgjöf og náði að koma höfðinu í boltann en því miður laus og átti Gunnar Nielsen í marki Færeyja ekki í erfileikum með að ná til boltans.
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Aron E Gunnarsson @AronGunnarsson1
Afram Island
Fyrir leik
Íslands þúsund ár!!! Þetta er að bresta á og við segjum með stolti. ÁFRAM ÍSLAND!
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn og þjóðsöngvarnir byrja fljótlega að óma.
Fyrir leik
A-landslið karla liðanna hafa mæst 24 sinnum, þetta er því 25 leikurinn. Ísland hefur unnið 22 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum en sá leikur var árið 2009.

Liðin mættu síðast á Laugardalsvellinum í fyrra og unnu Íslendingar þann leik 2 - 0 og skoraði Kolbeinn bæði mörkin.
Fyrir leik
Kolbeinn Sigþórsson er með fyrirliðabandið í kvöld. Ég held og verð þá bara leiðréttur ef ég fer með rangt mál, en að þetta sé í fyrsta sinn sem Kolli ber fyrirliðabandið í A-landsleik.
Fyrir leik
Byrjunarlið Færeyja er einnig komið í hús. Þar má sjá menn eins og Gunnar Nielsen sem var eitt sinn hjá Man City, Fróði Benjaminsen sem spilaði eitt sinn með Fram og ekki að ógleymdum Jónas Tór Næs sem spilar með Val.

En á bekknum er maður sem er með eitt svalasta nafn sem ég hef séð en það er hann Páll Klettaskarð, magnað!
Fyrir leik
Eins og sjá má er byrjunarlið Íslands komið í hús. Helstu tíðindin eru kannsku þau að Gunnleifur byrjar í marki sem og að Kristinn Jónsson byrjar inn á.
Fyrir leik
Dj-inn fer hamförum og spilar nú nasty boy með Trabant. Vel séð!
Fyrir leik
Við vitum allavegana það að Gylfi Sigurðsson verður ekki með í kvöld sökum smávægilegra meiðsla sem eru að hrjá hann og Aron Einar Gunnarsson er heldur ekki með að þessu sinni eins og flestir vita vegna meiðsla sem hann hlaut í síðasta landsliðsverkefni og var hann því ekki í hópnum í þetta sinnið.

En aðrir sem valdir voru í hópinn eru klárir og því verður fróðlegt að sjá liðsuppstillinguna. Hvort að Kristinn Jónsson eða Jóhann Laxdal fái tækifæri til að byrja eða hvað.
Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer á Laugardalsvellinum kl. 19:45 í kvöld. Byrjunarlið liðanna koma í hús vonandi á næstu mínútum og þá munum við sjá hvaða hetjur okkar byrja þennan leik.
Byrjunarlið:
16. Gunnar Nielsen (m)
2. Jónas Þór Næs
3. Viljormur Davidsen
4. Atli Gregersen
5. Rógvi Baldvinsson
6. Hallur Hansson
7. Fróði Benjaminsen (f)
8. Heini Vandsdal ('86)
9. Christian R. Mouritsen ('83)
10. Arnbjörn Hansen ('68)
11. Jóan Simun Edmundsson ('68)

Varamenn:
12. Teitur Gestsson (m)
23. Hans Jörgensen (m)
5. Pól Jóhannus Justinussen ('68)
12. Erling Jacobsen
14. Karl Lökin ('86)
15. Leif Niclasen ('83)
17. Kaj Leo í Bartalsstovu
18. Páll Klettaskarð ('68)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Rógvi Baldvinsson ('18)
Atli Gregersen ('87)

Rauð spjöld: