Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fram
0
1
ÍBV
Halldór Arnarsson '32 , sjálfsmark 0-1
Viktor Bjarki Arnarsson '90
13.09.2013  -  17:30
Laugardalsvöllur
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Vindur, völlurinn góður
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
Halldór Hermann Jónsson ('67)
9. Haukur Baldvinsson ('46)
10. Orri Gunnarsson
11. Almarr Ormarsson
13. Viktor Bjarki Arnarsson
14. Halldór Arnarsson ('83)

Varamenn:
1. Denis Cardaklija (m)
8. Aron Þórður Albertsson ('83)
16. Aron Bjarnason ('46)
23. Benedikt Októ Bjarnason

Liðsstjórn:
Daði Guðmundsson

Gul spjöld:
Viktor Bjarki Arnarsson ('90)
Haukur Baldvinsson ('39)

Rauð spjöld:
Viktor Bjarki Arnarsson ('90)
Fyrir leik
Velkomin í beina textalýsingu frá Laugardalsvelli. Þar mætast Fram og ÍBV í 19. umferð Pepsi-deildar karla.
Fyrir leik
Athygli vekur að David James er ekki í rammanum hjá ÍBV í dag. Þá er líklegt að BT Sports hafi eitthvað með það að gera. Fróðlegt verður að sjá hvort að hann taki meiri þátt í þessu Íslandsmóti.
Fyrir leik
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Eyjamanna, mun þurfa að horfa á leikinn úr stúkunni í dag, en hann tekur út leikbann. Gregg Oliver Ryder mun því stýra liðinu í fjarveru hans. Eiður Aron Sigurbjörnsson tekur einnig út leikbann. Hinn ungi Jóns Ingason kemur því inn í lið Eyjamanna.
Fyrir leik
Hjá Frömurum tekur Sam Hewson hins vegar út leikbann og Jón Gunnar Eysteinsson kemur inn í hans stað. Þá kemur Jordan Halsman inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik.
Fyrir leik
Liðin eru á fullu í upphitun. 20 mínútur í leik.
Fyrir leik
Sem stendur er korter í leik og það eru fleiri inná vellinum en í stúkunni. Enda eru flestir að klára vinnu núna, spurning hversu margir mæta á þessum sérkennilega leiktíma á föstudegi.
Fyrir leik
Þá halda liðin til búningsherbergja. Tíu mínútur í leik.
Fyrir leik
Þá halda liðin út á völlinn.
1. mín
Eyjamenn hefja leik!
2. mín
Almarr Ormarsson bjargar á línu! Tonny Mawejje átti skot frá vítapunkti eftir hornspyrnu en Almarr skallaði boltann á línunni og Framarar hreinsuðu boltann frá.
6. mín
Eyjamenn stjórna ferðinni til að byrja með. Leikurinn fer nokkuð rólega af stað.
7. mín
Almarr Ormarsson með viðstöðulaust skot á lofti eftir góða fyrirgjöf Hauks Baldvinssonar frá vinstri. Þarna munaði litlu.
11. mín
Þvílíkt dauðafæri! Viktor Bjarki fékk boltann frá Ögmundi markverði eftir hornspyrnu ÍBV. Hann tók á rás og hljóp upp allan völlinn. Hann og Haukur Baldvinsson voru tveir gegn tveimur. Viktor lék sér að því að fara framhjá Jóni Ingasyni, skaut úr þröngu færi, Guðjón Orri varði boltann beint á Hauk Baldvinsson sem náði á einhvern ótrúlegan hátt að skjóta beint í liggjandi Guðjón Orra 2 metrum frá marki.
16. mín
Það hefur verið rólegt yfir þessu síðstu mínútur.
17. mín
Haukur Baldvins með slakt skot úr góðu færi, beint á Guðjón Orra.
18. mín
Fín sókn Framara. Hólmbert gefur út á Almarr sem á slakt skot hátt yfir úr fínu færi.
20. mín
Viktor Bjarki með gott skot fyrir utan teig en rétt framhjá.
21. mín
Þá á Almarr hörkuskot á lofti sem Guðjón Orri ver. Framarar að sækja hart að Eyjamönnum.
29. mín
Þetta hefur róast síðustu mínútur. Eyjamenn hafa haldið boltanum betur en skapa sér ekki neitt.
32. mín SJÁLFSMARK!
Halldór Arnarsson (Fram)
Matt Garner fékk flugbrautina á miðjunni, allan tímann í heiminum að auki. Skot hans var ekkert sérstakt en fór í Halldór Arnarsson og þaðan í markið. Ögmundur kom engum vörnum við.
37. mín
Ian Jeffs á skot með vinstri fæti sem fer rétt framhjá markinu.
39. mín Gult spjald: Haukur Baldvinsson (Fram)
45. mín
Hálfleikur - 0-1 fyrir Eyjamenn í hálfleik. Framarar verið betri heilt yfir en ekki náð smiðshögginu á sóknirnar.
46. mín
Inn:Aron Bjarnason (Fram) Út:Haukur Baldvinsson (Fram)
Framarar gera breytingu í hálfleik. Haukur hefur átt betri daga.
46. mín
Framarar hefja leik í síðari hálfleik.
48. mín
Dauðafæri! Almarr á sprett upp hægri kantinn, leikur á Brynjar Gauta, gefur fyrir á Hólmbert sem skýtur framhjá af markteig.
51. mín
Almarr með skot sem fer af varnarmanni í hliðarnetið, hornspyrna fyrir Fram.
53. mín
Aron Bjarnason á frábæran sprett, leikur á 3-4 en skot hans veldur ekki vandræðum. Hann hefur átt góða innkomu hingað til.
57. mín
Aaron Spear á fína tilraun af um 25 metra færi en framhjá fer knötturinn.
63. mín Gult spjald: Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
64. mín
Aftur gerir Aron Bjarnason vel á vinstri kantinum, kemur boltanum á Jón Gunnar Eysteinsson. Skot hans fór langt yfir hins vegar.
67. mín
Inn:Kristinn Ingi Halldórsson (Fram) Út:Halldór Hermann Jónsson (Fram)
69. mín
Inn:Gunnar Már Guðmundsson (ÍBV) Út:Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Víðir náði sér ekki á strik í dag.
70. mín
Tonny Mawejje vann boltann á miðjunni og þrumaði að marki með vinstri fæti, en rétt framhjá.
75. mín
Aaron Spear liggur óvígur eftir samstuð. Það er það merkilegasta sem hefur gerst í leiknum síðasta korterið.
79. mín
Eftir hornspyrnu Framara berst boltinn til Arons Bjarnasonar en skot hans er hátt yfir.
81. mín
Inn:Ragnar Pétursson (ÍBV) Út:Aziz Kemba (ÍBV)
83. mín
Inn:Aron Þórður Albertsson (Fram) Út:Halldór Arnarsson (Fram)
85. mín
Inn:Bjarni Gunnarsson (ÍBV) Út:Aaron Spear (ÍBV)
87. mín
Aron Bjarnason á skot úr þröngu færi sem Guðjón Orri slær í horn.
90. mín
Ian Jeffs í dauðafæri eftir skyndisókn Eyjamanna, afgreiðslan slök og Ögmundur ver.
90. mín Gult spjald: Viktor Bjarki Arnarsson (Fram)
90. mín Rautt spjald: Viktor Bjarki Arnarsson (Fram)
Hann fær sitt seinna gula spjald um hálfri mínútu eftir það fyrra!
Leik lokið!
0-1 sigur Eyjamanna staðreynd í heldur bragðdaufum leik.
Byrjunarlið:
Guðjón Orri Sigurjónsson
5. Jón Ingason (f)
6. Gunnar Þorsteinsson
11. Víðir Þorvarðarson ('69)

Varamenn:
17. Bjarni Gunnarsson ('85)
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Víðir Þorvarðarson ('63)

Rauð spjöld: