|
Þessa
dagana er Fótbolti.net að kynna spá sína fyrir
Landsbankadeild karla 2004.
Leikurinn fór þannig fram að haft var
samband við 15 þjóðþekkta fótboltasérfræðinga og þeir
beðnir að spá. Hver
sérfræðingur gaf liðunum sem taka þátt stig, liðið sem
þeir spá efsta sæti fékk 10 stig, annað sæti 9 stig og
þannig niður töfluna niður í 10 sæti sem gaf 1 stig. Hér
til hliðar má sjá spána eins og hún er í dag en eitt lið
er tilkynnt á dag en hægt er að smella á nöfn liðanna til
að sjá frekari umfjöllun um þau.
Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni
Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson,
Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson,
Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson,
Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.
|