Fréttir Staðan Videohornið Vefsíða vikunnar Tvífarar Gullkorn Dómarahornið
Heim
Tenglar Myndir Hin hliðin Pistlar Spjall Gestabók Verslun Bein útsending Annað
FH - 4. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá FH 4. sæti í Landsbankadeildinni 2004.  FH var spútnik lið síðustu leiktíðar.  Var spáð falli í upphafi móts en spiluðu frábæran fótbolta með Danina Allan Borgvardt og Tommy Nielsen í fararbroddi og enduðu í 2. sæti í deild og bikar.  FH hefur fengið til sín tvo sterka leikmenn og misst einn í meiðsli sem verður ekki með í sumar.  FH leikur í Evrópukeppni félagsliða, UEFA Cup á þessari leiktíð.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:

Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson, Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson, Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson, Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.

Hvað segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki, ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og þjálfari Breiðabliks í efstu deild.

Styrkleikar
Liðið er betur mannað en í fyrra þegar að það kom bakdyramegin að þessu og endaði mótið geysilega vel. Það er spurning hvort að þeir nái að fylgja þessu eftir en það verður mjög erfitt fyrir þá. Þeirra styrkur er jafnt lið og þeir spila mjög skemmtilegan fótbolta og ferskan sóknarleik.

Veikleikar
FH-liðið verður undir mikilli pressu þetta ár og það gæti reynst veikleiki. Spurning hvernig þeim gengur að stjórna leikjunum núna en í fyrra lágu svolítið til baka og nú reynir á að þeir taki frumkvæðið í leikjunum.

Lykilmaður að mati Bjarna
Lykilmaður hjá þeim í sumar verður danski varnarmaðurinn Tommy Nielsen.

Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati Bjarna
Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati Bjarna:
Það verður að benda á það að þeir eru með efnilega stráka og það verður gaman að sjá Emil Hallfreðsson en hann er einn af mörgum kandídötum FH-inga í U-21 árs landsliðið.


Hin hliðin:
Simon Karkov gekk til liðs við FH á vordögum. Karkov sem er 27 ára gamall lék með Herfolge í Danmörku áður en Ólafur Jóhannesson þjálfari FH sá hann spila með liði sínu og bauð honum heim. Karkov hefur leikið 32 leiki með yngri landsliðum Dana og á sinn eigin aðdáendaklúbb í Danmörku sem fylgist vel með honum. Simon sýnir á sér Hina hliðina í dag.  Smelltu hér til að lesa viðtalið við Simon.  Við bendum á að sum nöfnin í leikmannalista FH bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.

Þjálfarinn:
Smiðurinn Ólafur Jóhannesson þjálfar FH annað árið í röð.  Honum til aðstoðar er skólastjórinn Leifur Garðarsson en saman mynda þeir eitt skemmtilegasta þjálfarapar sem sögur fara af hér á landi og þykir oft kostulegt að fylgjast með þeim við hliðarlínuna.   Ólafur lék með FH í mörg ár og hefur áður þjálfað FH árin 1988-1991 og svo aftur árið 1995 þegar hann hætti á miðju tímabili.  Ólafur hefur náð bestum árangri allra þjálfara með liðið er FH var nokkrum mínútum frá því að verða Íslandsmeistari 1989 en endaði í 2. sæti á eftir KA.  Leifur er einnig fyrrum leikmaður félagsins en hefur getið sér betra orð sem körfuknattleiksdómari og þykir með þeim bestu í Evrópu á því sviði.

Völlurinn:
FH leikur heimaleiki sína á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.  Völlurinn tekur um 5000 áhorfendur en sæti eru fyrir um 700 í stúku og gegnt henni eru svo tröppur sem taka endalaust við.  Auk þess er góð aðstaða fyrir áhorfendur fyrir aftan bæði mörkin.  Grasið var tekið upp fyrir tveimur árum.

Klúbburinn:
FHingar hafa stuðningsmannaklúbb, FH klúbbinn, sem hittist í félagsheimili FHinga, Sjónarhóli í Kaplakrika fyrir alla leiki.  Þar eru málin rædd og Ólafur Jóhannesson þjálfari liðsins kemur fyrir heimaleikina og ræðir uppstillinguna við félagsmenn.  Kostnaður við að ganga í Klúbbinn er 15 þúsund krónur og er innifalinn miði á alla heimaleiki sumarsins og veitingar.

Þá hefur einnig verið stofnaður annar stuðningsmannaklúbbur fyrir stuðningsmenn félagsins, Stuðningsmannaklúbbur FH Klúbburinn var stofnaður í gærkvöld og hefur aðsetur á Snóker Sportbar við Flatahraun í Hafnarfirði.  Ekkert félagsgjald er í hann.

Lukkudýr:
FHingar hafa ekkert lukkudýr en það mál er þó í vinnslu

Aðgangseyrir:
1200 krónur inn fyrir fullorðna, 300 fyrir 16 ára og yngri.

Leikskrá:
FHingar gefa út leikskrá fyrir alla heimaleiki sína í sumar.

Vefsíðumál:
Tvær vefsíður fjalla um lið FH. Opinbera síðan FHingar.is er ekki nægilega virk og ekki miklar upplýsingar á henni að græða.  Þveröfugt er farið með stuðningsmannasíðuna This.is/FH sem er upfull af gagnlegum upplýsingum og reglulegum fréttum.  Þar er hægt að fá nýjustu fréttirnar strax, umfjöllun um leiki félagsins að þeim loknum, umfjöllun um leikmenn liðsins, virkt spjallborð og margt fleira.

Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna FH eru Logi Ólafsson landsliðsþjálfari, Halli og Heiðar úr Botnleðju, Magnús Ólafsson leikari, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og útvarpsmaður, Árni Mathisen sjávarútvegsráðherra, Hörður Magnússon sjónvarpsmaður, Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður, Björgvin Halldórsson söngvari, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Menntamálaráðherra, Hjálmar Árnason þingmaður, Magnús Stefánsson þingmaður, Albert Eymundsson bæjarstjóri á Höfn, Tryggvi Harðarson bæjarstjóri á Seyðisfirði, Ólafur Þ. Harðarson Prófessor í stjórnmálfræði við HÍ, Ingvar Viktorsson fyrrum bæjarstjóri í Hfj.

Spáin

nr. Lið Stig
1 ÍA 130
2 KR 125
3 Fylkir 108
4 FH 107
5 Keflavík 68
6 Fram 60
7 KA 57
8 Grindavík 45
9 ÍBV 43
10 Víkingur 27

Um félagið

Fimleikafélag Hafnarfjarðar
Stofnað 1929, knattspyrnudeild stofnuð 1939.

Titlar:
Deildarmeistarar 2002 og 2004

Búningar:
Adidas

Aðalbúningur:

Hvít treyja, svartar buxur, hvítir sokkar

Varabúningur:
Blá treyja, bláar buxur, bláir sokkar

Opinber vefsíða:
FHingar.is

Stuðningsmannasíða:
This.is/FH


Komnir og farnir

Nýjir leikmenn frá síðasta sumri:
Simon Karkov frá Herfølge
Ármann Smári Björnsson
frá Val
Birkir H. Sverrisson frá BÍ
Matthías Vilhálmsson frá BÍ
Farnir frá síðasta sumri:
Hermann Albertsson verður frá vegna meiðsla
 

Leikmenn FH sumarið 2004

nr. Nafn Staða
1. Daði Lárusson Markvörður
2. Magnús Ingi Einarsson Varnarmaður
3. Simon Karkov Miðjumaður
4. Tommy Nielsen Varnarmaður
5. Freyr Bjarnason Varnarmaður
6. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson Miðjumaður
7. Jónas Grani Garðarsson Sóknarmaður
8. Baldur Bett Miðjumaður
9. Sigmundur P. Ástþórsson Sóknarmaður
10. Heimir Guðjónsson Miðjumaður
11. Jón Þorgrímur Stefánsson Miðjumaður
12. Ágúst Bjarni Garðarsson Markvörður
13. Róbert Örn Óskarsson Markvörður
14. Guðmundur Sævarsson Sóknarmaður
15. Ármann Smári Björnsson Sóknarmaður
16. Birgir Jóhannsson Varnarmaður
17. Atli Viðar Björnsson Sóknarmaður
18. Hermann Albertsson Miðjumaður
19. Víðir Leifsson Miðjumaður
20. Sverrir Garðarsson Varnarmaður
21. Atli Guðnason Framherji
22. Allan Borgvardt Sóknarmaður
23. Heimir Snær Guðmundss. Varnarmaður
24. Davíð Örvar Ólafsson Miðjumaður
25. Emil Hallfreðsson Miðjumaður
26. Þorgeir Arnar Jónsson Varnarmaður
 

Leikir FH sumarið 2004

Dags: Tími Leikur
15. maí 16:00 KR - FH
20. maí 19:15 Fylkir - FH
27. maí 19:15 FH - Keflavík
1. júní 19:15 Víkingur - FH
7. júní 19:15 FH - ÍBV
16. júní 19:15 ÍA - FH
23. júní 19:15 FH - Grindavík
28. júní 19:15 Fram - FH
6. júlí 19:15 FH - KR
11. júlí 19:15 FH - KA
19. júlí 19:15 FH - Fylkir
25. júlí 19:15 Keflavík - FH
8. ágúst 18:00 FH - Víkingur
15. ágúst 18:00 ÍBV - FH
22. ágúst 18:00 FH - ÍA
29. ágúst 18:00 Grindavík - FH
12. sept 14:00 FH - Fram
18. sept 18:00 KA - FH











 

 

 

 







Efnistaka af Fótbolti.net er með öllu óheimil nema með sérstöku leyfi ritstjóra

© Copyright 2001-2003 Fotbolti.net Hönnun DesignEuropA.com