Fylkir - 3. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Fylki
3. sæti í Landsbankadeildinni 2004. Fylkismenn
enduðu í fjórða sæti deildarinnar á síðustu leiktíð eftir
að hafa misst flugið enn eitt árið frá ágústmánuði.
Miklar breytingar hafa verið á leikmannahópi þeirra.
Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni
Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson,
Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson,
Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson,
Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.
Hvað
segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur
álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði
síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki,
ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og
þjálfari Breiðabliks í efstu deild.
Styrkleikar
Liðið er með sterkan leikmannahóp og ég tel að vörnin
verði þeirra styrkleiki.
Veikleikar
Fylkir er lið sem að allir gera sér ekki grein fyrir
þá hafa þeir misst marga af lykilmönnum frá því í fyrra.
Kjartan Sturluson farinn úr markinu, Sverrir er farinn
og Ólafur Ingi Skúlason farinn í burtu og þá meiddust
Haukur Ingi og Hrafnkell. Ég tel að þeir þurfi svolítinn
tíma til að búa til nýtt lið en þetta hefur verið
hryggurinn í þessu liði síðustu ár. Sóknarleikurinn gæti
orðið veikleiki á meðan að þeir verða að púsla saman
nýju liði.
Lykilmaður að mati Bjarna
Ég tel að það muni mæða mikið á Vali Fannari Gíslasyni
sem að er fyrirliði liðsins og ég tel að hann verði
lykilmaður í þessu Fylkisliði í sumar.
Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati
Bjarna
Björgólfur Takefusa hann átti gott tímabil með Þrótti í
fyrra og það verður spennandi að sjó hvort að hann
"Dammi" sig vel hjá Fylki.
Hin hliðin:
Gunnar Þór Pétursson hefur leikið í vinstri bakvarðarstöðu
Fylkis í mörg ár og upplifað margt hjá félaginu. Hann
hefur þrívegis fallið með liðinu úr úrvalsdeildinni, hann
hefur orðið bikarmeistari og leikið í Evrópukeppni. Gunnar
Þór þykir fínn spyrnumaður og hefur skorað nokkur mörkin
beint úr aukaspyrnum. Hann lék tíu leiki í
Landsbankadeildinni og skoraði í þeim tvö mörk.Smelltu
hér til að lesa viðtalið við Gunnar.
Við bendum einnig á að sum nöfnin í leikmannalista
Fylkis bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.
Þjálfarinn:
Þorlákur Árnason er yngsti þjálfari deildarinnar aðeins 35
ára gamall. Hann þjálfaði Val á síðustu leiktíð en tók
svo við Fylki í vetur. Hann tók við Valsmönnum í
hittifyrra og kom liðinu beint upp í efstu deild á sínu
fyrsta ári, sæti sem var heldur betur verðskuldað enda var
Valur löngubúið að tryggja sér sigur í deildinni er mótinu
lauk. Þorlákur tók fram takkaskóna í lokaleik
deildarinnar og lék með liðinu hluta af lokaleik mótsins á
Hlíðarenda við mikinn fögnuð áhorfenda. Hann
stjórnaði svo Val í Landsbankadeildinni í fyrra en liðið
féll þá í 1. deild á ný.

Völlurinn:
Fylkir leikur heimaleiki sína á
Fylkisvelli í Árbænum.
Völlurinn er sagður taka um 2000 áhorfendur en þrátt fyrir
það tókst að troða 4833 áhorfendum á leik liðsisn gegn KR
fyrir tveimur árum. Engin sæti eru á Fylkisvelli
heldur verða áhorfendur að láta sér stæði eða grasbrekkur
nægja.
Klúbburinn:
Stuðningsmannaklúbbur Fylkismanna heitir Club Orange.
Árgjaldið í hann er 5000 krónur og er innifalinn aðgangur
að töflufundi með þjálfara fyrir leiki, veitingar í
hálfleik og fleira.
Lukkudýr:
Fylkismenn eru að láta útbúa myndarlegt tígrisdýr sem
verður lukkudýr þeirra í sumar. Enn á eftir að finna
á það nafn en í tengslum við fyrsta heimaleik þeirra
verður nafnasamkeppni.
Aðgangseyrir:
Börn 10 ára og yngri frítt, Börn 11-16 ára kr.
500.- Fullorðnir kr. 1.200.- Elli og
örorkulífeyrisþegar 600 kr. Börn í START klúbbi
Sparisjóðs Vélstjóra fá frítt.
Leikskrá:
Fylkismenn gefa út leikskrá fyrir alla heimaleiki.
Vefsíðumál:
Vefsíða Fylkismanna, Fylkir.com er mjög góð. Miklar
upplýsingar er þar að finna og fréttaflutningur mjög
reglulegur. Spjallborðið er nýlegt en þó mjög
lélegt. Þrátt fyrir að vera mjög virkt er mjög
óþægilegt að vinna á því og skoða það.
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna Fylkis eru: Jón
Magnússon, Sigurður G. Guðjónsson forstjóri Norðurljósa,
Haraldur í Andra, Jói úr 70 mínútum og Idolinu, Kári
Sturluson tónleikahaldari, Hreggviður Jónsson fyrrum
forstjóri Norðurljósa, Dagur Eggersson læknir.
haflidi@fotbolti.net &
maggi@fotbolti.net
|