ÍA - 1. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá ÍA
Íslandsmeistaratitlinum í Landsbankadeildinni 2004.
Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni
Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson,
Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson,
Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson,
Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.
Hvað
segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur
álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði
síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki,
ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og
þjálfari Breiðabliks í efstu deild.
Styrkleikar
Ég tel að Skaginn verði Íslandsmeistari í ár. Ég byggi
það á því að þeir hafa svipaðan mannskap og í fyrra og
hafa heldur styrkst með komu Haraldar Ingólfssonar sem
að var einn alskemmtilegasti sóknarmaður áður en að hann
fór í atvinnumennskuna. Ég tel að Skaginn muni ekki eiga
slæma byrjun eins og í fyrra og það mega þeir
náttúrulega alls ekki. Þeir eru mjög vel mannaðir með
mjög gott byrjunarlið. Þetta er örlítið spurningarmerki
með Grétar Rafn sem að er erlendis núna en verði hann
með tel ég að fátt geti stoppað ÍA. Þetta eru strákar
sem að hafa verið lengi saman flest allir. Þeir hafa
spilað á þessum kjarna undanfarin ár, flestir þeirra eru
af Skaganum sem að hefur alltaf reynst vel þ.e.a.s
flestir leikmennirnir eru uppaldir á Akranesi.
Veikleikar
Þeir verða stundum svolítið pirraðir og óþolinmóðir
þegar að allt gengur ekki upp en ef að þeir laga það og
verða aðeins agaðari í leik sínum þá tel ég að þeir
hampi titlinum í haust.
Lykilmaður að mati Bjarna
Það er tvímælalaust Gunnlaugur Jónsson hann hefur verið
leiðtogi liðsins í mörg ár. Afar traustur leikmaður.
Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati
Bjarna
Grétar Rafn Steinsson verði hann í liðinu.
Hin hliðin:
Guðjón Heiðar Sveinsson er örfættur og leikur ýmist á
vinstri kanti eða í vinstri bakverði. Hann kom til ÍA árið
1998 frá Hvöt á Blönduósi þar sem að hann lék á sínum
yngri árum. Guðjón á alls sextíu leiki að baki með
meistaraflokki ÍA og hefur skorað í þeim níu mörk en hann
skoraði fjögur mörk í sautján leikjum með liðinu í
Landsbankadeildinni í fyrra.
Smelltu hér til að lesa viðtalið við Guðjón.
Við bendum einnig á að sum nöfnin í leikmannalista
ÍA bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.
Þjálfarinn:
Gamli jaxlinn Óli
Þórðar hefur komið víða við á sínum ferli en þrátt fyrir
það hefur hann verið gallharður Skagamaður allan tímann.
Hann hóf sinn þjálfunarferil hjá Fylki en þar þjálfaði
hann við góðan orðstír 1998-1999. Ólafur tók síðan við
þjálfun ÍA fyrir síðasta leik liðsins haustið 1999 og
hefur hann verið þjálfari liðsins síðan. Undir hans stjórn
hefur ÍA einu sinni orðið Íslandsmeistari, tvisvar sinnum
bikarmeistari og deildabikarmeistari í fyrra.

Völlurinn:
Akranesvöllur tekur í
heildina um 6000 áhorfendur. Stúkan sem er öðrum
megin við völlinn tekur 570 í sæti en auk þess er pláss
fyrir áhorfendur allt í kringum völlinn meðal annars í
grasbrekkum.
Klúbburinn:
Skagamenn hafa engan stuðningsmannaklúbb
Lukkudýr:
Lukkudýr Skagamanna heitir Gulur og er gormur.
Aðgangseyrir:
Börn 10 ára og yngri frítt, Börn 11-16 ára kr.
300.- Fullorðnir kr. 1.200.-
Leikskrá:
Engin leikskrá er gefin út fyrir leiki ÍA.
Vefsíðumál:
Skagamenn eru langduglegastir á netinu af öllum liðum
landsins. Við getum bent á fjórar síður sem fjalla
um liðið sem er meira en um nokkuð annað lið deildarinnar.
Opinbera síðan,
ÍA.is/KIA,
er oftast fyrst með fréttirnar af liðinu, er með góða
umfjöllun um leikmenn og fleira. Spjallborðið er
nýtt og af bestu sort. Annað af tveimur félögum
með gott spjallborð.
Stuðningsmannasíðurnar eru svo 3. Gulir.is er með
virkasta spjallborðið sem þó er gamaldags, annar tilgangur
síðunnar er enginn nema að linka sig á aðrar síður.
Skagamenn.com birtir svo pistla og greinar.
Þriðja síðan,
Freewebs.com/IAUK er svo ensk og sá sem heldur henni
úti er Englendingur sem hefur aldrei séð liðið spila eða
komið til Íslands en heldur þó ástfóstri við liðið þótt
undarlegt sé. Síðan hans er með ágætum, reglulegar
fréttir og skákar sumum af opinberum síðum liðanna í
Landsbankadeildinni!
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna ÍA eru: Brynjólfur Þór
Guðmundsson blaðamaður á Fréttablaðinu, Jóhann Ársælsson
alþingismaður, Gísli Gíslason bæjarstjóri, Óli Palli
dagskrárgerðarmaður á Rás 2, Gunni Sig bakari, Valdimar K
Friðriksson varaþingmaður, Árni Ibsen rithöfundur, Jakob
Einarsson leikari, Gísli S. Einarsson varaþingmaður,
Benedikt Helgason bakari á Akureyri.
haflidi@fotbolti.net &
maggi@fotbolti.net
& olingi@fotbolti.net
|