Fréttir Staðan Videohornið Vefsíða vikunnar Tvífarar Gullkorn Dómarahornið
Heim
Tenglar Myndir Hin hliðin Pistlar Spjall Gestabók Verslun Bein útsending Annað
ÍBV - 9. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá ÍBV  9. sæti í Landsbankadeildinni 2004. ÍBV endaði í fimmta sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.  Miklar breytingar hafa orði á leikmannahópi þeirra en 6 leikmenn eru farnir og 6 komu í staðinn.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson, Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson, Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson, Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.


Hvað segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki, ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og þjálfari Breiðabliks í efstu deild.

Styrkleikar:
Eyjamenn eru algert spurningarmerki. Þeir eru búnir að fá mikið af nýjum leikmönnum, leikmannahópurinn þeirra er breyttur. Helsti styrkur þeirra er jafn hópur og það er náttúrulega alltaf stemming í þessum Eyjamönnum. Sóknarleikurinn er alltaf sterkur í Vestmannaeyjum og verður styrkur liðsins í sumar.

Veikleikar:
Þeir voru í vandræðum í fyrra og held ég að þeir verði það áfram. Ég held að þeir eiga eftir að lenda í erfiðum með varnarleikinn, hann verði þeirra höfuðverkur í sumar.

Lykilmaður að mati Bjarna:
“Stuðmaðurinn” Birkir Kristinsson en það á eftir að mæta mikið á honum. Hann er alger lykilmaður í þessu liði.

Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati Bjarna:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, það verður gaman að fylgjast með honum í sumar.


Hin hliðin:
Hjá ÍBV er það Atli Jóhannsson sem að sýnir á sér hina hliðina en hann er mjög efnilegur leikmaður. Atli sem að leikur oftast á vinstri kanti spilaði sextán leiki með ÍBV í Landsbankadeildinni í fyrra og skoraði í þeim tvö mörk. Hann á tvo leiki að baki fyrir U-21 árs landslið Íslands og fimm leiki að baki fyrir U-19 ára liðið.
Smellið hér til að lesa viðtalið við Atla.  Við bendum einnig á að sum nöfnin í leikmannalista ÍBV bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.

Þjálfarinn:
Magnús Gylfason tók við ÍBV í nóvember 2002 og gerði tveggja ára samning.  Hann hafði áður þjálfað yngri landslið Íslands við góðan orðstýr auk þess að stjórna 2. flokki KR og hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR.

Völlurinn:
ÍBV leikur heimaleiki sína á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.   Á vellinum er nýleg stúka sem byggð var fyrir tveimur árum.   Völlurinn tekur um 3000 áhorfendur í heildina en stúkan ein og sér tekur 540 í sæti.

Klúbburinn:
ÍBV eru með tvo stuðningsmannaklúbba, einn í Reykjavík og einn í Vestmannaeyjum.  Í Eyjum kostar 15.000,- kr árgjaldið og innifalið í honum er ársmiði á heimleiki ÍBV liðsins í sumar ásamt kaffi og með því í leikhlé heimaleikja liðsins.  Einnig fær stuðningsmaðurinn veglega gjöf í upphafi hvers móts.

Lukkudýr:
Lukkudýr ÍBV er að sjálfsögðu Lundinn!

Aðgangseyrir:
Börn yngri en 11 ára fá frítt, 11-16 ára greiða 300 krónur og fullorðnir 1000.

Leikskrá:
Leikskrá hefur verið fyrir heimaleiki, þau mál eru en til skoðunar fyrir þetta sumar

Vefsíðumál:
Tvær vefsíður fjalla um ÍBV.   Þveröfugt við það sem gengur og gerist þá er það opinbera síðan sem er mun betri hjá Eyjamönnum.  Þar má yfirleitt treysta á að fá allar fréttirnar beint í æð en einnig er boðið uppá að fá þær sendar til sín með tölvupósti.   Mjög virkt spjallborð er á þeirri síðu, góð umfjöllun um leiki félagsins og margt fleira.  Hin síðan er mun síðri, birtir færri og styttri fréttir.

Stuðningsmenn:

Meðal þekktra stuðningsmanna ÍBV eru
Þorsteinn Gunnarsson sjónvarpsmaður, Robert Marshall fréttamaður, Árni Johnsen fyrrum þingmaður, Páll Magnússon frétamaður, Lúðvík Berginsson alþingismaður, Guðjón Hjörleifsson alþingismaður, Dario Gradi, framkvæmdastjóri, Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona, Sighvatur Jósson fréttamaður Eiður Arnarsson bassaleikari, Ragnar Sigurjónsson staðarhaldari í Viðey og Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari

haflidi@fotbolti.net & maggi@fotbolti.net
 

Spáin

nr. Lið Stig
1 ÍA 130
2 KR 125
3 Fylkir 108
4 FH 107
5 Keflavík 68
6 Fram 60
7 KA 57
8 Grindavík 45
9 ÍBV 43
10 Víkingur 27

Um félagið

Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Stofnað 1945

Titlar:
Íslandsmeistarar: 1979, 1997, 1998
Bikarmeistarar: 1968, 1972, 1981, 1998
Deildarbikarmeistarar: 1997



Búningar:
Hummel

Aðalbúningur:

Hvít treyja, hvítar buxur, hvítir sokkar

Varabúningur:
Rauð  treyja, rauðar buxur, rauðir sokkar

Opinber vefsíða:
ÍBV.is/Fótbolti

Stuðningsmannasíða:
ÍBVSport.is


Komnir og farnir

Nýjir leikmenn frá síðasta sumri:
Einar Þór Daníelsson frá KR
Hrafn Davíðsson frá Fylki
Jón Skaptason frá Víkingi (KR)
Magnús Már Lúðvíksson frá Drang
Matt Garner frá Crewe Alexandra
Mark Schulte frá Minnisota Thunder
Farnir frá síðasta sumri:
Igor Bjarni Kostic til Færeyja
Ingi Sigurðsson er hættur
Hjalti Jóhannesson er hættur
Hjalti Jónsson hættur með félaginu
Tom Betts til Crewe Alexandra
Unnar Ólafsson ekki með vegna vinnu og meiðsla
 

Leikmenn ÍBV sumarið 2004

nr. Nafn Staða
1. Birkir Kristinsson Markvörður
3. Tryggvi Sveinn Bjarnason Varnarmaður
4. Matt Garner Varnarmaður
5. Einar Hlöðver Sigurðsson Varnarmaður
6. Jón Skaptason Miðjumaður
7. Atli Jóhannsson Miðjumaður
8. Ian David Jeffs Miðjumaður
9. Einar Þór Daníelsson Miðjumaður
10. Bjarnólfur Lárusson Miðjumaður
11. Steingrímur Jóhannesson Framherji
12. Hrafn Davíðsson Markvörður
13. Mark Schulte Varnarmaður
14. Bjarni Geir Viðarsson Varnar/miðjumaður
15. Andri Ólafsson Miðjumaður
16. Bjarni Rúnar Einarsson Framherji
17. Adolf Sigurjónsson Varnarmaður
18. Pétur Runólfsson Miðjumaður
19. Hafþór Atli Rúnarsson Miðjumaður
20. Páll Þorvaldur Hjarðar Varnarmaður
21. Magnús Már Lúðvíksson Framherji
23. Gunnar Heiðar Þorvaldss. Framherji
25. Guðjón Magnússon Markvörður
27. Sindri Viðarsson Varnarmaður
28. Ólafur Þór Berry Miðjumaður
29. Finnbogi Friðfinnson Markvörður
 

Leikir ÍBV sumarið 2004

Dags: Tími Leikur
16. maí 14:00 Grindavík - ÍBV
20. maí 14:00 ÍBV - Fram
27. maí 19:15 KA - ÍBV
1. júní 19:15 ÍBV - KR
7. júní 19:15 FH - ÍBV
15. júní 19:15 ÍBV - Keflavík
23. júní 19:15 Víkingur - ÍBV
29. júní 19:15 Fylkir - ÍBV
10. júlí 14:00 ÍBV - ÍA
13. júlí 19:15 ÍBV - Grindavík
18. júlí 19:15 Fram - ÍBV
28. júlí 19:15 ÍBV - KA
8. ágúst 18:00 KR - ÍBV
15. ágúst 18:00 ÍBV - FH
22. ágúst 18:00 Keflavík - ÍBV
28. ágúst 14:00 ÍBV - Víkingur
12. sept 14:00 ÍBV - Fylkir
18. sept 18:00 ÍA - ÍBV

Efnistaka af Fótbolti.net er með öllu óheimil nema með sérstöku leyfi ritstjóra

© Copyright 2001-2003 Fotbolti.net Hönnun DesignEuropA.com