Fréttir Staðan Videohornið Vefsíða vikunnar Tvífarar Gullkorn Dómarahornið
Heim
Tenglar Myndir Hin hliðin Pistlar Spjall Gestabók Verslun Bein útsending Annað
KA - 7. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá KA mönnum 7. sæti í Landsbankadeildinni 2004.  KA liðið hefur misst nokkra menn frá síðasta sumri og einnig bætt við sig nokkrum, þar á meðal tveimur nágrönnum sínum úr Þór.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson, Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson, Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson, Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.


Hvað segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki, ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og þjálfari Breiðabliks í efstu deild.

Styrkleikar:
Þetta er jafnt og ágætis lið. Sóknarleikurinn verður skæður hjá þeim í sumar.

Veikleikar:
Varnarleikurinn verður spurningarmerki. Það er ákveðin nýliðun í liðinu, Þorvaldur Örlygsson og Míló (Slobodan Milisic) eru hættir og þeir hafa misst Þorvald Makan sem að hefur verið lykilmaður í miðjuspili þeirra. Það er spurning hvernig þeir leysa það.

Lykilmaður að mati Bjarna:
Jóhann Þórhallsson. Ég held að hann eigi eftir að skora mikið af mörkum.

Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati Bjarna:
Það verður gaman að fylgjast með Jóhanni og einnig Pálma Rafni Pálmasyni sem að er tvímælalaust einn efnilegasti miðjumaður landsins


Hin hliðin:
Jóhann Helgason sem að leikur ýmist á miðjunni eða frammi ristarbrotnaði í vor og mun missa af byrjun Íslandsmótsins. Hann lék þrettán leiki með KA í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark. Hann á fimm leiki að baki fyrir U-19 ára landslið Íslands og einn leik fyrir U-21 árs landsliðið.  Smellið hér til að lesa viðtalið við Jóhann.  Við bendum einnig á að sum nöfnin í leikmannalista KA bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.

Þjálfarinn:
Þorvaldur Örlygsson er gamalreyndur kappi úr íslenska landsliðinu .  Hann hóf ferilinn hjá KA og er kominn þar aftur til að ljúka honum.   Þorvaldur hefur komið víða við á ferlinum en getur meðal annars státað af því að hafa verið fyrsti íslenski leikmaðurinn hjá Stoke.  Þorvaldur er að þjálfa KA fjórða árið í röð en fyrsta árið kom hann liðinu í efstu deild og annað endaði KA í fjórða sæti.  KA endaði síðasat mót í 8. sæti.

Völlurinn:
KA leikur heimaleiki sína á Akureyrarvelli.  Völlurinn er oft í mismunandi ásigkomulagi þegar mótið hefst en lítur nokkuð vel út núna.   Samtals komast um 2000 áhorfendur á völlinn, þar af 600 í stúkunni.

Klúbburinn:
Nokkrir stuðningsmannaklúbbar koma að liði KA þó enginn þeirra sé á vegum félagsins.  Klúbbarnir  heita Vinir Móða, Erlingur.com og Lókurinn.  Engin félagsgjöld eru en frjáls framlög vel þegin.

Lukkudýr:
KA menn hafa ekkert lukkudýr en það er þó í farvatninu

Aðgangseyrir:
Börn 10 ára og yngri frítt,  Börn 11-16 ára kr. 300.- Fullorðnir kr. 1.200.-

Leikskrá:
KA menn gefa út leikskrá fyrir heimaleiki sína

Vefsíðumál:
Tvær vefsíður fjalla um KA.   Opinbera síðan, KA-Sport.is/fot, hefur ýmsar gagnlegar upplýsingar.  Verður seint talin hafa útlitið með sér en innri gæði er það sem gildir þar.  Fréttir eru reglulega uppfærðar og annað efni á síðunni virðist vera lögð góð vinna í.  Spjallborðið er af elstu sort og ekki mjög líflegt.   Stuðningsmannasíðan er
Erlingur.com.  Fréttir eru skrifaðar reglulega þar inn auk ýmiss annars efnis.   Spjallborðið er líflaust.

Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna KA eru Gestur Einar leikari og útvarpsmaður, Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður, Kristján Kristjánsson úr Kastljósinu, Þorsteinn Baldvinsson kvótakóngur, Erlingur Kristjánsson, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri, Alfreð Gíslasonn handboltaþjálfari í Þýskalandi, Snorri Sturluson fyrrum íþróttafréttamaður og framkvæmdastjóri KKÍ,

haflidi@fotbolti.net & maggi@fotbolti.net
 

Spáin

nr. Lið Stig
1 ÍA 130
2 KR 125
3 Fylkir 108
4 FH 107
5 Keflavík 68
6 Fram 60
7 KA 57
8 Grindavík 45
9 ÍBV 43
10 Víkingur 27

Um félagið

Knattspyrnufélag Akureyrar
Stofnað 1928

Titlar:
Íslandsmeistarar: 1989.




Búningar:

Aðalbúningur:

Gul treyja, bláar buxur, gulir sokkar

Varabúningur:
Hvit treyja, Bláar buxur, Hvítir sokkar

Opinber vefsíða:
KA-Sport.is/fot

Stuðningsmannasíða:
Erlingur.com


Komnir og farnir

Nýjir leikmenn frá síðasta sumri:
Baldvin Ólafsson úr Dalvík
Haukur I Sigurbergsson úr Þrótti N
Hjalti Guðmundsson úr Snörtur
Jóhann Þórhallson úr Þór
Jón Gunnar Eysteinsson frá Þrótti N
Kristján Elí Örnólfsson úr Þór
Matus Sandor
Farnir frá síðasta sumri:
Jón Örvar Eiríksson í Dalvík
Steinar Tenden til Noregs
Sören Byskov til Danmerkur
Þorleifur Árnason í Dalvík
Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson í Fram
Þorvaldur Örlygsson hættur
Slobodan Milisic hættur
 

Leikmenn KA sumarið 2004

nr. Nafn Staða
1. Matus Sandor Markvörður
3. Þorvaldur S.Guðbjörnsson Varnarmaður
4. Dean Martin Miðjumaður
5. Ronni Hartvig Varnarmaður
6. Kristján Elí Örnólfsson Miðjumaður
7. Steinn Vðar Gunnarsson Varnarmaður
8. Pálmi Rafn Pálmason Miðjumaður
9. Jóhann Þórhallsson Framherji
10. Hreinn Hringsson Framherji
11. Steingrímur Örn Eiðsson Miðjumaður
12. Árni Kristinn Skaftason Markvörður
13. Örlygur Þór Helgason Miðjumaður
14. Haukur I. Sigurbergsson Varnarmaður
15. Elmar Dan Sigþórsson Framherji
16. Örn Kató Hauksson Miðjumaður
17. Óli Þór Birgisson Miðjumaður
18. Sigurður Skúli Eyjólfsson Miðjumaður
19. Jóhann Helgason Miðjumaður
20. Jón Gunnar Eysteinsson Miðjumaður
21. Logi Ásbjörnsson Markvörður
22. Bjarni Pálmason Framherji
23. Hjörvar Maronsson Varnarmaður
24. Gunnar Þórir Björnsson Varnarmaður
25. Hjalti Guðmundsson Miðjumaður
26. Aðalgeir Ásvaldsson  
27. Baldvin Ólafsson  
  Atli Sveinn Þórarinsson Varnarmaður
 

Leikir KA sumarið 2004

Dags: Tími Leikur
16. maí 14:00 KA - Keflavík
21. maí 20:00 Víkingur - KA
27. maí 19:15 KA - ÍBV
1. júní 19:15 ÍA - KA
7. júní 19:15 KA - Grindavík
16. júní 19:15 Fram - KA
23. júní 19:15 KA - Fylkir
27. júní 16:00 KA - KR
11. júlí 19:15 FH - KA
14. júlí 19:15 Keflavík - KA
18. júlí 19:15 KA - Víkingur
28. júlí 19:15 ÍBV - KA
8. ágúst 18:00 KA - ÍA
15. ágúst 18:00 Grindavík - KA
21. ágúst 16:00 KA - Fram
29. ágúst 18:00 Fylkir - KA
12. sept 14:00 KR - KA
18. sept 18:00 KA - FH

Efnistaka af Fótbolti.net er með öllu óheimil nema með sérstöku leyfi ritstjóra

© Copyright 2001-2003 Fotbolti.net Hönnun DesignEuropA.com