Keflavík - 5. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Keflavík
5. sæti í Landsbankadeildinni 2004. Keflvíkingar
unnu 1. deildina með yfirburðum í fyrra og litlar
mannabreytingar hafa orðið á hópnum þó þeir hafi misst frá
sér einn besta markvörð Íslendinga.Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni
Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson,
Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson,
Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson,
Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.
Hvað segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur
álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði
síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki,
ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og
þjálfari Breiðabliks í efstu deild.
Styrkleikar
Ég held að Keflavík verði "Spútninkarnir" í ár þeir voru
með yfirburðalið í fyrstu deild í fyrra og eru með mjög
skemmtilega stráka. Eru með nokkuð hratt lið og það er
fínn "standard" á liðinu. Styrkleikur þeirra er
tvímælalaust sóknarleikurinn hann er mjög ferskur og
þeir eru fljótir fram á við.
Veikleikar
Spurningamerki og veikleiki þeirra er tvímælalaust
varnarleikurinn og þeir eiga eftir að lenda í vandræðum
með varnarleikinn verði Haraldur Freyr Guðmundsson
seldur til FC Zurich sem er einn albesti varnarmaður
landsins í dag þá verður erfitt að fylla hans skarð. Við
sjáum á þeim leikmönnum sem að þeir eru að fá til sín
núna er að þeir hafa áhyggjur af varnarleiknum og nýr
markvörður er algert skilyrði fyrir því að þeir nái
góðum árangri í ár.
Lykilmaður að mati Bjarna
Lykilmaður í þeirra liði tel ég að verði Stefán Gíslason
miðjumaður liðsins. Ég tel að það eigi eftir að mæta
mikið á honum og held ég að hann eigi alveg eftir að
geta staðið undir þeim væntingum..
Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati
Bjarna
Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati
Bjarna
Ég tel að það verði athyglisvert að fylgjast með Herði
Sveinssyni en hann hefur skorað mikið fyrir þá og er
gríðarlega öflugur sóknarmaður. Hann er kantídat í U-21
árs landsliðið og það verður gaman að fylgjast með
honum.
Hin hliðin:
Guðjón Árni Antoníusson sýnir á sér hina hliðina í dag en
hann er 21 árs. Kappinn kom til Keflavíkur árið 2001 frá
Víði og þykir fjölhæfur leikmaður og getur spilað margar
stöður þó að hann hafi mest verið í hægri bakverðinum.
Guðjón lék fimmtán leiki með Keflavík í
Landsbankadeildinni í fyrra og skoraði eitt mark.
Smelltu hér til að lesa viðtalið við Guðjón. Við bendum
einnig á að sum nöfnin í leikmannalista Keflavíkur bera
tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.
Þjálfarinn:
Milan Stefán Jankovic þjálfar Keflavíkurliðið. Hann
tók við liðinu fyrir síðasta tímabil af Kjartani Mássyni
eftir að liðið hafði fallið í 1. deildina. Hann kom
liðinu beint upp aftur en Keflavík rúllaði yfir 1.
deildina og fór beint upp aftur.

Völlurinn:
Alls komast um 4000 áhorfendur á Keflavíkurvöll en þar eru
steypt stæði öðrumegin við völlinn og yfir hluta þeirra er
þak.
Klúbburinn:
Stuðningsmannaklúbburinn heitir K-Klúbburinn og er
aðgöngugjald í hann 20 þúsund krónur. Innifalið í
því er frítt á alla leiki í deildinni, veitingar í
hálfleik og fleira.
Lukkudýr:
Keli Keflvíkingur er lukkudýr Keflvíkinga.
Aðgangseyrir:
Börn 10 ára og yngri frítt, Börn 11-16 ára kr. 300.-
Fullorðnir kr. 1.200.-
Leikskrá:
Stefnt er að því að gefa út leiksskrá fyrir heimaleiki
Keflavíkur í sumar
Vefsíðumál:
Vefsíða Keflavíkur skipar sér ekki í hóp bestu vefsíðna
meðal Landsbankadeildarliðanna en stendur þó fyrir sínu.
Fréttaflutningur er reglulegur og yfirleitt má lesa
fréttir af Keflavíkurliðinu fyrst á henni. Að
öðru leiti er hún nokkuð dauf þó upplýsigar séu
miklar og saknar maður þá helst þess að ekki skuli vera á
henni spjallborð.
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna Keflavíkur eru: Rúnar
Júlíusson eilífðarrokkari og fyrrum landsliðsmaður í
knattspyrnu, Kjartan Másson, Guðni Kjartansson.
haflidi@fotbolti.net &
maggi@fotbolti.net
|