KR - 2. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá KR 2.
sæti í Landsbankadeildinni 2004. KRingar unnu
deildina í fyrra og hefur leikmannahópur þeirra breyst
nokkuð mikið síðan þá og munar þá um Veigar Pál
Gunnarssons er er farinn í Víking til Noregs. KR
leikur í Meistaradeild Evrópu þetta árið.
Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni
Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson,
Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson,
Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson,
Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.
Hvað
segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur
álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði
síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki,
ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og
þjálfari Breiðabliks í efstu deild.
Styrkleikar
KR-ingar eru með stóran og fjölmennan leikmannahóp. Þeir
eru vel mannaðir og hafa farið á því að mínu mati
undanfarin ár. Það sem að er athyglisvert hjá KR að
ungir og mjög efnilegir leikmenn hafa verið að fá
tækifæri á undirbúningstímaiblinu og verður gaman að sjá
hvort að þeir fái séns þegar að út í alvöruna er komið.
Þá verður einnig mjög gaman að fylgjast með sóknarleik
KR sem að hefur verið mjög sprækur á undanförnum árum
þegar að allir hafa verið heilir.
Veikleikar
Það sem að getur sett strik í þetta hjá þessum stóra og
sterka leikmannahóp er að það hefur verið alltof mikið
af meiðslum hjá þeim og þeir hafa getað notað alltof fáa
leikmenn á undirbúningstímabilinu til að móta liðið og
gera það að alvöruliði. Það er helsti veikleikinn hjá
þeim.
Lykilmaður að mati Bjarna
Kristján Finnbogason markvörður og fyrirliði liðsins.
Það mun mæða mikið á honum og hann mun draga vagninn hjá
þeim, kominn í landsliðið og hann verður lykilmaður hjá
KR.
Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati
Bjarna
Það er Theódór Elmar Bjarnason, maður veit ekki hversu
nálægt hann stendur en þar er mjög efnilegur leikmaður á
ferð. Einnig Sölvi Davíðsson og þetta eru strákar sem að
vert er að fylgjast með ef að þeir fá sénsinn.
Hin hliðin:
Miðjumaðurinn Kristinn Hafliðason hefur spilað með ýmsum
liðum. Eftir að hafa spilað með Fram, Víkingi og ÍBV hér
heima og meðal annars unnið Íslandsmótið með ÍBV þá
spilaði Kristinn í nokkra mánuði með þýska liði Salgau.
Eftir það kom hann aftur til ÍBV en í janúar 2000 gekk
hann til liðs við norska liðið Raufoss. Þar hætti hann
sumarið 2001 og gekk til liðs við KR þar sem að hann
spilar nú. Hann hefur unnið marga bikara á ferlinum og
einn þeirra í fyrra þegar að hann sigraði Íslandsmótið með
KR en Kristinn lék alla átján leikina með liðinu í
Landsbankadeildinni og skoraði í þeim tvö mörk. Hann á
einn A-landsleik að baki með Íslendingum, sex leiki með
U-21 árs landsliðinu og tvo með U-19 ára landsliðinu.
Smelltu hér til að lesa viðtalið við Kristinn.
Við bendum einnig á að sum nöfnin í leikmannalista
KR bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.
Þjálfarinn:
Willum Þór Þórsson er farsæll þjálfari.Hann
er eini íslenski þjálfarinn sem hefur stjórnað liði til
sigurs í öllum deildum. Hann kom til KR fyrir tímabilið í
hittifyrra eftir að hafa stýrt Haukum upp í 1. deildina og
á sínu fyrsta ári hjá KR stjórnaði hann sínu liði til
sigurs í deildinni og endurtók leikinn svo í fyrra er
liðið varð Íslandsmeistari. Willum hafði áður unnið
1. deild með Þrótti 1997, 3 deild með Haukum 2000 og 2.
deild með Haukum 2001.

Völlurinn:
Þrátt fyrir að fá sæti séu á KR vellinum og aðstaða
áhorfanda ekki eins og best þekkist er umgjörðin í kringum
leiki liðsins langflottust í deildinni. Alls
komast 3500 áhorfendur á KR völlinn en þar af eru aðeins
550 sæti.
Klúbburinn:
Ítarlegar
upplýsingar um klúbbinn og hvað er í boði fyrir hvern
aðgang má lesa hér.
Lukkudýr:
Rauða ljónið er elsta og þekktasta lukkudýrið í deildinni.
Mætir á alla heimaleiki og skemmtir áhorfendum, nokkuð sem
undirstrikar frábæra umgjörð hjá félaginu.
Aðgangseyrir:
Börn 10 ára og yngri frítt, Börn 11-16 ára kr.
300.- Fullorðnir kr. 1.200.-
Leikskrá:
Engin leikskrá er gefin út fyrir leiki KR.
Vefsíðumál:
KR er með vefsíðu undir
KR.is en án þess að draga neitt úr þá er skömm að
henni. Að ríkasta félag deildarinnar skuli vera með
eldgamla vefsíðu sem ekkert er uppfærð er mjög undarlegt.
Spjallborðið er mjög gamaldags en einnig mjög virkt enda
sjá stuðningsmennirnir um að uppfæra það en ekki félagið.
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna KR eru: Björgólfur
Guðmundsson, Björgólfur Thor, Bubbi Morthens poppstjarna,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaþingkona, Bogi Ágústsson
fréttamaður, Þröstur Emilsson fréttamaður, Mörður Árnason
þingmaður, Egill Helgason, Haukur Hólm, Geir H. Haarde
fjármálaráðherra, Óli Björn Kárason, Gunnar Smári Egilsson
ritstjóri, Bjarni Felixson íþróttafréttamaður.
haflidi@fotbolti.net &
maggi@fotbolti.net
|