Fréttir Staðan Videohornið Vefsíða vikunnar Tvífarar Gullkorn Dómarahornið
Heim
Tenglar Myndir Hin hliðin Pistlar Spjall Gestabók Verslun Bein útsending Annað
Víkingur - 10. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá Víkingum 10. sæti í Landsbankadeildinni 2004.  Víkingar eru nýliðar í deildinni en þeir lentu í 2. sæti 1. deildar í fyrra.   Þeir hafa fengið góðan styrk fyrir sumarið, þar á meðal einn Íslandsmeistara frá síðustu leiktíð og leikmann úr hollensku deildinni en misst þar á móti nokkra leikmenn.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Aðalsteinn Víglundsson, Arnar Björnsson, Bjarni Jóhannsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðmundur Hreiðarsson, Guðmundur Steinsson, Halldór Einarsson, Heimir Karlsson, Hermann Gunnarsson, Kristinn R. Jónsson, Logi Ólafsson, Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Víðir Sigurðsson.


Hvað segir Bjarni?
Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeildina. Bjarni þjálfaði síðustu 6 tímabil í efstu deild hér á landi, hjá Fylki, ÍBV og Grindavík en var áður aðstoðarþjálfari hjá Fram og þjálfari Breiðabliks í efstu deild.

Styrkleikar
Víkingarnir komu upp í fyrra og eru með öflugt lið, duglegir, líkamlega sterkir og spila mjög öflugan varnarleik sem að verður þeirra styrkleiki í sumar.

Veikleikar
Sóknarleikurinn á eftir að valda þeim áhyggjum en þeir skoruðu 28 mörk í 18 leikjum í fyrstu deildinni í fyrra.

Lykilmaður að mati Bjarna
Víkingar hafa marga unga leikmenn en ég tel að varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen Jónsson verður alger lykilmaður í þessu liði í sumar.

Leikmaður sem að gaman verður að fylgjast með að mati Bjarna
Auk Sölva og ungu strákanna verður sem að eru að gera það gott hjá Víking þá held ég að það verði gaman að fylgjast með Viktori B. Arnarssyni sem að var að koma heim eftir dvöl í Hollandi.


Hin hliðin:
Viktor Bjarki Arnarsson er uppalinn Víkingur. Í ársbyrjun gekk þessi 21 árs leikmaður til liðs við Víkingar á ný eftir að hafa verið hjá Utrecht í Holland. Þar lék hann með unglingaliði félagsins en fór einnig á láni til Top Oss. Viktor lék níu leiki með U-17 ára landsliði Íslands og skoraði tvö mörk í þeim en hann var fyrirliði í þeim öllum. Hann á níu leiki að baki fyrir U-19 ára landsliðið og fimm leiki fyrir U-21 árs liðið. Smelltu hér til að lesa viðtalið við Viktor.  Við bendum einnig  á að sum nöfnin í leikmannalista Víkinga bera tengla sem vísa á viðtöl við þá ef smellt er.

Þjálfarinn:
Sigurður Jónsson er þjálfari Víkinga en hann hefur kynnst ýmsu í boltanum eftir að hafa verið atvinnumaður með liðum eins og Arsenal og Sheffield Wednesday. Þá hefur kappinn unnið titla með ÍA þar sem að hann lék á sínum yngri árum og einnig þegar að hann kom heim úr atvinnumennskunni. Siggi lék 65 leiki með A-landsliði Íslands og skoraði þrjú mörk en hann var fyrirliði í átján af leikjunum. Árið 2001 ætlaði Sigurður að spila með FH en gat ekki vegna meiðsla. Það sumar var hann aðstoðarmaður Loga Ólafssonar með liðið. Þegar að Logi fór til starfa til norska liðsins Lilleström tók Sigurður við liði FH og stýrði því sumarið 2002. Eftir tímabilið var honum sagt upp og hann tók við Víkingi R. Hann náði frábærum árangri með liðið síðasta sumar og kom því upp í Landsbankadeildina þar sem að hann mun halda áfram með liðið í sumar.

Völlurinn:
Víkingar leika heimaleiki sína Víkingsvelli í Fossvoginum.   Í heildina geta mætt um 2000 manns á leikina í Víkinni en stúkan tekur um 1100 manns í sæti og verður tilbúin rétt fyrir fyrsta heimaleik.

Klúbburinn:
Nýstofnaður er stuðningsmannaklúbbur Víkinga sem heitir Berserkirnir.  Klúbburinn er óháður deildinni en samstarf er þó á milli.  Inngöngugjald er 1000 krónur en meðlimir geta keypt treyju félagsins á 2500 krónur. 

Lukkudýr:
Víkingar hafa ekkert lukkudýr

Aðgangseyrir:
Börn 10 ára og yngri frítt,  Börn 11-16 ára kr. 300.- Fullorðnir kr. 1.200.-

Leikskrá:
Víkingar stefna að því að gefa út leikskrá fyrir hvern heimaleik liðsins í sumar. Henni verður dreift í hverfi 108 með Fréttablaðinu.

Vefsíðumál:
Tvær vefsíður fjalla um lið Víkinga. Opinbera síðan Víkingur.is er með þeim virkari af opinberu síðunum og segir reglulegar fréttir og á henni er að finna góðar upplýsingar um sögu félagsins.  Stuðningsmenn Víkinga hafa svo vef sem er með betri stuðningsmannavefum landsins,  Víkingur.net, þar sem hægt er að fá ýmsar gagnlegar upplýsingar um félagið, góðar leikskýrslur um leiki og stundum beinar útsendingar frá leikjum í textaformi auk virks spjallborðs.

Stuðningsmenn:

Meðal þekktra stuðningsmanna Víkinga eru Heimir Karlsson, Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður, Hallur Hallsson, Kormákur, Jóhann Óli auðjöfur, meðlimir hljómsveitarinnar Leaves, Guðni Már Henningsson, Gulli Helga, Sveppi, Logi Bergmann Eiðsson, séra Pálmi Matthíasson, Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og Kristinn Björnsson maður hennar,  Heimir Gunnlaugsson tölvunarfræðingur og Guðjón Guðmundsson viðskiptafræðingur

haflidi@fotbolti.net & maggi@fotbolti.net

Spáin

nr. Lið Stig
1 ÍA 130
2 KR 125
3 Fylkir 108
4 FH 107
5 Keflavík 68
6 Fram 60
7 KA 57
8 Grindavík 45
9 ÍBV 43
10 Víkingur 27

Um félagið

Knattspyrnufélagið Víkingur
Stofnað 1908

Titlar:
Íslandsmeistarar: 1920, 1924, 1981, 1982, 1991.
Bikarmeistarar: 1971



Búningar:
Prostar

Aðalbúningur:

Rauð/svört treyja, svartar buxur, hvítir/rauðir sokkar

Varabúningur:
Svört  treyja, Svartar buxur, Svartir sokkar

Opinber vefsíða:
Víkingur.is

Stuðningsmannasíða:
Víkingur.net


Komnir og farnir

Nýjir leikmenn frá síðasta sumri:
Jón Guðbrandsson frá Selfoss
Sigursteinn Gíslason frá KR
Viktor B. Arnarson frá Hollandi
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson frá Stjörnunni
Þorvaldur Már J. Guðmundsson frá Aftureldingu
Farnir frá síðasta sumri:
Daníel Hafliðason í Þrótt
Einar Oddsson í Njarðvík
Jón Björgvin Hermannson í Fylki
Jón Skaptason í ÍBV
Snorri Birgisson í Grindavík
 

Leikmenn Víkings sumarið 2004

nr. Nafn Staða
1. Ögmundur V. Rúnarsson Markvörður
2. Höskuldur Eiríksson Varnarmaður
3. Steinþór Gíslason Varnarmaður
4. Bjarni Lárus Hall Miðjumaður
5. Haukur Armin Úlfarsson Miðjumaður
6. Sölvi Geir Ottesen Varnarmaður
7. Sigurjón Þorri Ólafsson Varnarmaður
8. Kári Árnason Miðjumaður
9. Stefán Örn Arnarson Sóknarmaður
10. Daníel Hjaltason Sóknarmaður
11. Grétar S. Sigurðsson Varnarmaður
12. Magnús Þór Jónsson Markvörður
13. Sigursteinn Gíslason Varnarmaður
14. Egill Atlason Miðjumaður
15. Andri Tómas Gunnarsson Varnarmaður
16. Stefán Þórðarson Miðjumaður
17. Victor Knútur Victorsson Varnarmaður
18. Haraldur Ómarsson Sóknarmaður
19. Jón Guðbrandsson Miðjumaður
20. Þorvaldur  Guðmundson Sóknarmaður
21. Vilhjálmur R. Vilhjálmss. Miðjumaður
22. Victor Bjarki Arnarsson Miðjumaður
24. Martin Trancik Markvörður
 

Leikir Víkings sumarið 2004

Dags: Tími Leikur
16. maí 19:15 Fram - Víkingur
21. maí 20:00 Víkingur - KA
27. maí 19:15 KR - Víkingur
1. júní 19:15 Víkingur - FH
7. júní 19:15 Keflavík - Víkingur
15. júní 19:15 Fylkir - Víkingur
23. júní 19:15 Víkingur - ÍBV
29. júní 19:15 ÍA - Víkingur
8. júlí 19:15 Víkingur - Grindavík
13. júlí 19:15 Víkingur - Fram
18. júlí 19:15 KA - Víkingur
25. júlí 19:15 Víkingur - KR
8. ágúst 18:00 FH - Víkingur
16. ágúst 19:15 Víkingur - Keflavík
22. ágúst 18:00 Víkingur - Fylkir
28. ágúst 14:00 ÍBV - Víkingur
12. sept 14:00 Víkingur - ÍA
18. sept 14:00 Grindavík - Víkingur


 

 

 

 

 

 

 


Efnistaka af Fótbolti.net er með öllu óheimil nema með sérstöku leyfi ritstjóra

© Copyright 2001-2003 Fotbolti.net Hönnun DesignEuropA.com