Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
Besta-deild karla
Fylkir
19:15 0
0
Stjarnan
Besta-deild karla
Valur
14' 0
0
Fram
Man City
0
0
Arsenal
31.03.2024  -  15:30
Etihad
Enska úrvalsdeildin
Dómari: Anthony Taylor
Byrjunarlið:
18. Stefan Ortega (m)
3. Ruben Dias
6. Nathan Ake ('27)
8. Mateo Kovacic ('62)
9. Erling Haaland
16. Rodri
17. Kevin De Bruyne
20. Bernardo Silva
24. Josko Gvardiol
26. Manuel Akanji
47. Phil Foden ('62)

Varamenn:
33. Scott Carson (m)
5. John Stones
10. Jack Grealish ('62)
11. Jeremy Doku ('62)
19. Julian Alvarez
21. Sergio Gomez
27. Matheus Nunes
52. Oscar Bobb
82. Rico Lewis ('27)

Liðsstjórn:
Pep Guardiola (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Vonbrigði Leikurinn ekki mikil skemmtun og skilur ekki mikið eftir sig. Stuðningsmenn Liverpool geta glaðst yfir þessum úrslitum
94. mín
Klukkan tifar... Man City sótt allan uppbótartímann en Arsenal stendur vörnina vel.
92. mín
Þvaga í teignum og boltinn endar í öruggum höndum Raya.
92. mín
Doku með flotta hraðabreytingu og vinnur hornspyrnu.
91. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 5 mínútur
90. mín
Marktilraunir: 10-6
Á markið: 1-2
90. mín
Svona er staðan Liverpool 67 stig
Arsenal 65 stig
Man City 64 stig
89. mín
Áðan átti Arsenal marktilraun, Trossard með skot úr þröngri stöðu og Ortega lokaði.
88. mín
Silva vinnur hornspyrnu frá vinstri. De Bruyne tekur spyrnuna en dæmt er sóknarbrot á Rodri.
85. mín
Þessi leikur hefur aldrei náð neinu flugi, en það væri gaman að fá einhverja dramatík í lokin.
84. mín
Haaland hittir ekki boltann City nálægt því að finna mark, boltinn dettur á Haaland á fjærstönginni en hann hittir ekki boltann!
83. mín
Doku reynir að stýra boltanum á markið en er talsvert frá því að takast það. Arsenal menn fjölmennir í eigin vítateig.
81. mín
Marktilraunir í seinni hálfleik: 4-0
79. mín Gult spjald: David Raya (Arsenal)
Markvörður Arsenal fær gult spjald fyrir að tefja.
78. mín
Inn: Gabriel Martinelli (Arsenal) Út:Bukayo Saka (Arsenal)
Saka var tæpur fyrir leikinn og hálfhaltrar af velli, verið duglegur í dag.
78. mín
Doku í hættulegri stöðu en skýtur framhjá markinu. Hitti boltann ömurlega.
76. mín
City að sækja en það er afar fjölmennt í vítateignum og erfitt að koma boltanum á rétta menn. City fær hornspyrnu.
72. mín
Inn: Leandro Trossard (Arsenal) Út:Gabriel Jesus (Arsenal)
71. mín
City algjörlega að einoka boltann og Arsenal í varnarstöðu á meðan heimamenn láta boltann rúlla sín á milli.
67. mín Gult spjald: Gabriel Jesus (Arsenal)
Uppsafnað. Loksins ákvað Anthony Taylor að lyfta upp gula spjaldinu. Fengið nokkur tækifæri til þess í leiknum en haldið svörtu bókinni í vasanum.
66. mín
Inn: Takehiro Tomiyasu (Arsenal) Út:Jakub Kiwior (Arsenal)
66. mín
Inn: Thomas Partey (Arsenal) Út:Jorginho (Arsenal)
65. mín
Bukayo Saka brýtur á Grealish, aukaspyrna á vinstri vængnum sem Man City fær.
62. mín
Inn:Jeremy Doku (Man City) Út:Phil Foden (Man City)
62. mín
Inn:Jack Grealish (Man City) Út:Mateo Kovacic (Man City)
62. mín
De Bruyne með misheppnaða sendingu sem flýgur afturfyrir endamörk. Pep Guardiola að framkvæma tvöfalda skiptingu...
61. mín
Manchester City fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Foden sparkaður niður af Ödegaard. Það eru jákvæðari teikn á lofti núna í þessum leik. Þetta er orðið aðeins opnara og meiri hugur í liðunum.
58. mín
Sóknarlota City endar með því að flaggið fer á loft. De Bruyne rangstæður.
54. mín
Aðeins meiri ákefð og skap í mönnum, það er vonandi merki um að við séum að fara að fá meira fjör.
53. mín
Stórhættuleg sókn Arsenal! Saka rennir boltanum fyrir meðfram jörðinni og Jesus svoooo nálægt því að ná til hans en hann rennur framhjá honum.
51. mín
Ödegaard með stungusendingu sem er ekki langt frá því að rata á Havertz, góð hugmynd.
47. mín
Kovacic með skot framhjá Öflug sókn hjá Manxhester City og Króatinn tekur skot fyrir utan teig en framhjá fer boltinn.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað Við hljótum að fá meiri skemmtun en í fyrri hálfleik... það er eiginlega ekki annað hægt.
45. mín
Schmeichel: Arsenal hefur lagt rútunni „Það hefur ekkert komið á óvart. Það var vitað að Manchester City yrði meira með boltann og Mikel Arteta er með áætlun til að verjast því. Arsenal hefur lagt rútunni," segir Peter Schmeichel sérfræðingur BBC.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik Stuðningsmenn Liverpool eru manna ánægðastir með þessa hálfleiksstöðu. Ekki mikið um opin færi í þessum leik.
45. mín
Marktilraunir: 3-4
Skot á mark: 1-1
45. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Mynd: Getty Images
45. mín
Phil Foden með skot sem varnarmaður kemst fyrir.
42. mín
Frekar dauft allt saman... Stórleikur sem hefur ekki staðið undir væntingum hingað til. Það vantar eitthvað krydd í þetta.
38. mín
Fyrirgjöf og Erling Haaland, sem hefur haft hægt um sig til þessa, í baráttu í teignum en er í strangri gæslu og nær ekki að stýra boltanum á markið.
35. mín
City miklu meira með boltann en er lítið að gera með hann, það er meira bit í Arsenal og Jesus hefur verið hættulegasti leikmaður vallarins hingað til.
34. mín
Snertingar á boltann í vítateig andstæðingana: 2-6
32. mín
Jesus með skot framhjá Flott sókn hjá Arsenal, Jesus fær boltann í D-boganum og kemur sér inn í teiginn, tekur skotið en framhjá fer boltinn.
29. mín
Kiwior braut á Silva við hliðarlínuna og City fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Kevin De Bruyne tekur spyrnuna en Arsenal kemur boltanum frá.
27. mín
Inn:Rico Lewis (Man City) Út:Nathan Ake (Man City)
Ake meiddur og þarf að fara af velli.
26. mín
Arsenal í sókn og Jesus sendir á Havertz en Ortega markvörður City kemur út á móti og er fyrstur í boltann. Havertz rennir sér svo á Orteta þegar hann reynir að komast í boltann.
23. mín
Man City miklu meira með boltann Með boltann: 73% - 27%
Sendingar: 170 - 60
17. mín
Arsenal fékk sitt fyrsta horn en Ortega handsamaði boltann af öryggi.
16. mín
Stórhætta við mark Arsenal eftir horn Nathan Ake kemur boltanum á rammann en sem betur fer fyrir Arsenal er David Raya réttur maður á réttum stað og nær að verja af mjög stuttu færi.
12. mín
Manchester City miklu meira með boltann, Arsenal sýnir þolinmæði og bíður. City hefur enn ekki náð að láta reyna á David Raya.
10. mín
Tveir með svaðalegan sköpunarmátt
Mynd: Getty Images

8. mín
Jesus með skot rétt framhjá Ben White með fyrirgjöf á fjærstöngina, Saka tekur boltann niður og tekur skot sem sleikir utanvert hliðarnetið. Flott tilraun.
5. mín
De Bruyne með flotta fyrirgjöf úr aukaspyrnunni en Ben White mættur og stangar boltann afturfyrir. Fyrsta hornspyrna leiksins fer til City.
4. mín
Bernardo Silva með gott hlaup, kemst framhjá Kiwior og Jesus. Sá síðarnefndi tekur hann niður og City fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Jesus heppinn að fá ekki gult!
3. mín
Erling Haaland fór niður í teignum en flaggið fór á loft. Rangstaða.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir frá Arsenal hófu leik Veisla framundan!
Fyrir leik
Eins og að spila á móti vegg
Mynd: Getty Images

„Að spila gegn Declan Rice er eins og að spila á móti vegg. Andstæðingarnir geta sparkað í hann og sært hann en hann heldur áfram allt til loka og helst sterkur andlega og líkamlega. Hann eltir þig allan tímann og innkoma hans hefur breytt Arsenal mikið frá síðasta tímabili," segir Emmanuel Petit, fyrrum leikmaður Arsenal.
Fyrir leik
Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal að fara yfir málin í upphitun
Mynd: Getty Images

Fyrir leik
Svona er staðan þegar flautað verður til leiks:

Fyrir leik
Tvær breytingar á byrjunarliði City frá síðasta leik Manchester City gerir tvær breytingar á liði sínu frá sigrinum gegn Newcastle fyrir landsleikjagluggann. Nathan Ake kemur inn í staðinn fyrir meiddan Kyle Walker og Kevin de Bruyne kemur inn fyrir Jeremy Doku.

John Stones varð fyrir höggi í landsleikjaglugganum en er meðal varamanna. Aðalmarkvörðurinn Ederson er enn fjarverandi svo Stefan Ortega heldur áfram að verja mark City.

Fyrir leik
Saka klár í að byrja hjá Arsenal Arsenal gerir eina breytingu frá síðasta leik, þegar liðið vann Porto í vítakeppni í Meistaradeildinni. Gabriel Jesus kemur inn í fremstu víglínu fyrir Leandro Trossard.

Stóru fréttirnar fyrir Arsenal eru þær að Bukayo Saka er klár í að byrja en hann missti af landsleikjum Englands gegn Brailíu og Belgíu. Gabriel Martinelli er í hóp en hann byrjar á bekknum.

Fyrir leik
Byrjunarlið Man City - Ortega áfram í markinu
Fyrir leik
Byrjunarlið Arsenal - Jesus inn fyrir Trossard
Fyrir leik
Gabriel Jesus mættur á sinn gamla heimavöll
Mynd: Getty Images

Fyrir leik
Jafntefli líklegasta niðurstaðan?
Mynd: Fótbolti.net

Fyrir leik
Vinnur Man City þrennuna aftur?
Mynd: Getty Images

Sama hvað Pep Guardiola talar það niður þá er svo sannarlega raunhæfur möguleiki á því að hið ótrúlega lið Manchester City vinni þrennuna annað tímabilið í röð. Liðið á framundan einvígi gegn Real Madrid í Meistaradeildinni og undanúrslitaleik gegn Chelsea í FA-bikarnum.

Besti leikmaður fjórðungsins
Þriðja fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar var á dagskrá á X977 í gær. Kristján Atli sérfræðingur þáttarins valdi Phil Foden sem besta leikmanninn á þeim kafla.

   30.03.2024 14:27
Útvarpsþátturinn - Vetrarverðlaunin og enska hringborðið
Fyrir leik
Arsenal á flugi
Mynd: Getty Images

Átta sigurleikir í átta síðustu leikjum og Arsenal hélt toppsætinu yfir landsleikjagluggann. Í síðustu þremur útileikjum í deildinni hefur liðið skorað sautján mörk án þess að fá neitt á sig. Mikel Arteta var verðskuldað stjóri mánaðarins í síðasta mánuði og það eru spennandi vikur framundan hjá liðinu. Þar á meðal einvígi gegn Bayern München í Meistaradeildinni.
Fyrir leik
Baldur Sigurðsson spáir í leikinn:
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Man City 0 - 1 Arsenal
Veisla að fá þennan leik beint í kjölfarið á landsleikjahlénu. Það er einhver mótvindur í gangi hjá City, meiðsli og fleira, þannig að þeir tapa óvænt á heimavelli sem gerir það að verkum að Arsenal og Liverpool berjast á toppnum til enda. Rice tryggir sigurinn með langskoti.
Fyrir leik
Anthony Taylor dæmir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Að sjálfsögðu er einn fremsti dómari Englands settur á þennan leik. Anthony Taylor var meðal dómara á HM í Katar og hefur lengi dæmt í ensku úrvalsdeildinni. Hann var með flautuna á dögunum þegar Ísrael og Ísland mættust í umspilinu. Jared Gillett er VAR dómari dagsins.
Fyrir leik
Staðan á leikmannahópunum Ensku landsliðsvarnarmennirnir Kyle Walker og John Stones hjá Manchester City eru báðir að glíma við meiðsli og geta ekki tekið þátt í leiknum í dag.

Manuel Akanji er leikfær og Ederson snýr væntanlega aftur í markið. Kevin De Bruyne mun að öllum líkindum byrja einnig og Jack Grealish er klár en búast má við þvi að hann byrji á bekknum.

Líklegt byrjunarlið Man City:
Ederson; Lewis, Dias, Akanji, Ake; Silva, Rodri, De Bruyne; Foden, Haaland, Doku

   29.03.2024 12:47
Walker og Stones ekki með gegn Arsenal


Gabriel Magalhaes, Bukayo Saka og Gabriel Martinelli voru allir að glíma við smávægileg meiðsli í kringum landsleikjagluggann en þremenningarnir eru allir í líklegu byrjunarliði Arsenal.

Líklegt byrjunarlið Arsenal:
Raya; White, Saliba, Gabriel, Zinchenko; Odegaard, Jorginho, Rice; Saka, Havertz, Martinelli

   29.03.2024 14:30
Saka og Martinelli hafa ekkert æft - Tæpir fyrir stórleikinn
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan Páskadag! Það er svakalegur leikur framundan á Etihad, innbyrðis titilbaráttuslagur milli meistara Manchester City og Arsenal. Tilvalið að maula páskaeggið yfir þessum slag! Sem stendur er Arsenal stigi á undan City og getur því komist fjórum stigum á undan þeim með sigri í dag. Þriðja liðið í titlbaráttunni er svo Liverpool sem verður búið að spila gegn Brighton þegar þessi leikur verður flautaður á.

Mynd: Getty Images
Byrjunarlið:
22. David Raya (m)
2. William Saliba
4. Ben White
6. Gabriel
7. Bukayo Saka ('78)
8. Martin Ödegaard
9. Gabriel Jesus ('72)
15. Jakub Kiwior ('66)
20. Jorginho ('66)
29. Kai Havertz
41. Declan Rice

Varamenn:
1. Aaron Ramsdale (m)
5. Thomas Partey ('66)
10. Emile Smith-Rowe
11. Gabriel Martinelli ('78)
14. Eddie Nketiah
18. Takehiro Tomiyasu ('66)
19. Leandro Trossard ('72)
21. Fábio Vieira
35. Oleksandr Zinchenko
41. Declan Rice

Liðsstjórn:
Mikel Arteta (Þ)

Gul spjöld:
Gabriel Jesus ('67)
David Raya ('79)

Rauð spjöld: