lau 04.feb 2012 14:00
Gunnar Gunnarsson
Steven Gerrard: Suarez mun hjálpa okkur að "þrennunni"
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er sannfærður um að liðið geti leikið eftir þann frábæra árangur sem náðist árið 2001 þegar liðið vann þrjá titla, núna þegar Luis Suarez hefur afplánaðað 9 leikja keppnisbann í það heila.
|
lau 04.feb 2012 13:56
Alexander Freyr Einarsson
Fótbolta.net mótið: Tíu marka leikur á Skaganum
- Grindavík tók 3. sætið
Tveimur leikjum sem fram fóru í Fótbolta.net mótinu í dag er lokið. Boðið var upp á hörkuleik þegar ÍA og ÍBV kepptu um 5. sætið í mótinu, en lokatölur eftir venjulegan leiktíma urðu 4-4.
|
 |
lau 04.feb 2012 13:25
Alexander Freyr Einarsson
O'Neill: Sessegnon er frábær
Martin O'Neill stjóri Sunderland er gríðarlega hrifinn af Benín-manninum Stephane Sessegnon, en hann hefur verið einn af bestu leikmönnum Sunderland á tímabilinu.
|
lau 04.feb 2012 13:06
Ívan Guðjón Baldursson
England: Byrjunarliðin hjá Arsenal og Blackburn
Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Arsenal og Blackburn. Leikurinn var að hefjast og eru byrjunarliðin hér að neðan, en miðjumaðurinn Coquelin er í bakverði hjá Arsenal vegna meiðsla hjá öðrum bakvörðum liðsins.
Arsenal er í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar með 37 stig en Blackburn er í átjánda sæti með 18 stig.
|
 |
lau 04.feb 2012 12:52
Alexander Freyr Einarsson
Hernandez: Markaþurrð Torres mun halda áfram
Javier Hernandez framherji Manchester United segir að martröð Fernando Torres fyrir framan markið muni halda áfram þegar Mexíkóinn og félagar mæta Chelsea á sunnudag.
|
lau 04.feb 2012 11:48
Alexander Freyr Einarsson
Taibi segir að De Gea þurfi meiri tíma
Massimo Taibi, sem er að margra mati einn lélegasti markvörður sem nokkru sinni hefur klæðst treyju Manchester United, hefur nú komið David De Gea til stuðnings og segir hann að ungi markvörðurinn þurfi tíma.
|
 |
lau 04.feb 2012 11:21
Hafliði Breiðfjörð
Kári Ársælsson í ÍA (Staðfest)
Kári Ársælsson sem hefur verið fyrirliði Breiðabliks undanfarin ár er genginn til liðs við nýliða ÍA í Pepsi-deild karla. Frá þessu var gengið í morgun en Kári skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
|
lau 04.feb 2012 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Anzhi ætlar að næla í Tevez
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið úr ensku miðlunum.
|
 |
lau 04.feb 2012 10:42
Hafliði Breiðfjörð
Fáðu samantekt úr leikjunum í enska beint í símann
Áhugamenn um enska boltann geta nú fengið samantekt úr leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni beint í símann sinn skömmu eftir að leikjunum lýkur.
Þetta er í boði fyrir viðskiptavini Símans en þeir geta farið á enska bolta hlutann á m.siminn.is og horft þar á klippurnar.
|
lau 04.feb 2012 10:10
Gunnar Gunnarsson
Martin Jol: Andy Johnson nálgast nýjan samning við Fulham
Martin Jol knattspyrnustjóri Fulham er vongóður um að Andy Johnson skrifi fljótlega undir nýjan samning við félagið. Samningur hins þrítuga Andy Johnson mun renna út í lok leiktíðarinnar en vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu hvort leikmaðurinn ætli að róa á önnur mið. Ljóst er að bæði QPR og Blackburn föluðust eftir starfskröftum Johnsons í janúarglugganum þrátt fyrir að vistaskiptin hafi ekki orðið að veruleika.
|
 |
lau 04.feb 2012 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Downing hreinsaður af ásökunum um líkamsárás
Stewart Downing, leikmaður Liverpool á Englandi hefur verið hreinsaður af ásökunum um líkamsárás á fyrrverandi kærustu sinni.
|
lau 04.feb 2012 09:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: KV lagði Reyni Sandgerði
KV sigraði Reyni Sandgerði 2-0 í æfingaleik sem fór fram á gerivgrasvellinum í Vesturbæ í gær.
|
 |
lau 04.feb 2012 08:06
Hafliði Breiðfjörð
9,5 milljón króna hagnaður hjá KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands skilaði rétt tæplega 9,5 milljón króna hagnaði á síðasta ári en það er nokkur viðsnúnignur frá árinu 2010 þegar sambandið tapaði rúmlega 15,7 milljónum króna.
|
lau 04.feb 2012 08:00
Magnús Valur Böðvarsson
Innlit á velli þriggja liða í neðri deildum Englands
Hópur af íslenskum golfvalla- og knattspyrnuvallastarfsmönnum hélt nýverið til Englands þar sem farið var á sýningu og ráðstefnu tengda slíkum málum.
Undirritaður var einn af þeim sem var með í för og eyddi tveim síðustu dögum ferðarinnar í að skoða þrjá velli hjá neðrideildarliðum í Englandi.
|
 |
lau 04.feb 2012 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Villas-Boas: Mourinho setur okkur alla undir pressu
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea segir að stjórar stærstu liða á Englandi séu stöðugt undir álagi frá Jose Mourinho þjálfara Real Madrid.
|
lau 04.feb 2012 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Sir Bobby Charlton: Messi er frábær lítill knattspyrnumaður
Sir Bobby Charlton, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins segir að hann væri til í að sjá argentíska snillinginn Lionel Messi hjá Barcelona í herbúðum félagsins.
|
 |
lau 04.feb 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Perch: Væri heimska að yfirgefa Newcastle
James Perch, leikmaður Newcastle United á Englandi segist njóta sín hjá félaginu, en talið var að hann myndi yfirgefa liðið í félagaskiptiglugganum sem var að lokast.
|
lau 04.feb 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Juan Mata: Þurfum að bregðast fljótt við
Juan Manuel Mata, leikmaður Chelsea á Englandi vonast til þess að gengi liðsins breytist sem fyrst, en liðið leikur við Englandsmeistara Manchester United í deildinni á morgun.
|
 |
lau 04.feb 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hörður lék vel í sigri varaliðs Juventus á Grosseto
Hörður Björgvin Magnússon leikmaður Juventus á Ítalíu lék með varaliði félagsins sem sigraði varalið Grosseto með tveimur mörkum gegn engu í gær.
|
lau 04.feb 2012 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Leikir dagsins í Þýskalandi: Munchen getur endurheimt toppsætið
Sex leikir fara fram í dag í þýska boltanum, en margir áhugaverðir leikir eru á dagskrá þessa vikuna.
|
 |
lau 04.feb 2012 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn - Leikir dagsins: Nær Real Madrid tíu stiga forskoti?
Fimm leikir fara fram í efstu deild á Spáni í dag, en bæði stórliðin Barcelona og Real Madrid eiga leik.
|
lau 04.feb 2012 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England - Leikir dagsins: Man City fær Fulham í heimsókn
Sjö leikir eru á dagskrá í dag í ensku úrvalsdeildinni, en það gætu nokkrir Íslendingar verið í eldlínunni í dag.
|
 |
lau 04.feb 2012 05:55
Elvar Geir Magnússon
Leikir dagsins hér heima - Leiknir eða KR áfram?
Úrslitaleikur Fótbolta.net mótsins verður í Kórnum í dag. Þar mætast Breiðablik og Stjarnan klukkan 12:30. En það verða einnig tveir leikir í Reykjavíkurmótinu.
Þá klárast keppni í A-riðli. Þegar hefur Fram tryggt sér í undanúrslitin en Leiknir og KR geta eiga möguleika á að fylgja Frömurum þangað.
|
lau 04.feb 2012 05:55
Elvar Geir Magnússon
Úrslitaleikur Fótbolta.net mótsins í dag: Breiðablik - Stjarnan
- Í Kórnum klukkan 12:30
Klukkan 12:30 verður flautað til leiks í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins 2012. Að þessu sinni eru það Breiðablik og Stjarnan sem leika til úrslita en þetta er annað árið sem mótið fer fram.
Í fyrra vann Keflavík sigur á ÍBV í úrslitaleiknum eftir vítaspyrnukeppni en með því að <a href="http://fotbolti.net/fullStory.php?id=103781" target="_blank">smella hér</a> má lesa umfjöllun um þann leik.
|
 |
fös 03.feb 2012 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Dortmund skellti sér á toppinn
<b>Nurnberg 0 - 2 Borussia Dortmund</b>
0-1 Sebastian Kehl ('48 )
0-2 Lucas Barrios ('82)
|
fös 03.feb 2012 21:00
Elvar Geir Magnússon
Roma - Inter færður til sunnudagsins
Leikur Roma og Inter í ítölsku A-deildinni hefur verið færður til sunnudags. Leikurinn átti að fara fram annað kvöld og var svo færður til klukkan 14 vegna vetrarveðurs á Ítalíu.
Áfram heldur að snjóa og hefur verið ákveðið að færa leikinn til sunnudags klukkan 14.
Þess má geta að Wesley Sneijder er meiddur og leikur ekki með Inter. Vonast er til að hann verði klár í slaginn eftir viku.
|
 |
fös 03.feb 2012 20:30
Magnús Már Einarsson
Roberto Mancini lýsir yfir aðdáun á Eden Hazard
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, gæti reynt að fá Eden Hazard í sínar raðir í sumar.
|
fös 03.feb 2012 20:00
Magnús Már Einarsson
Grétar Rafn: Kannski stærsti leikurinn á tímabilinu
Grétar Rafn Steinsson vonast til að Bolton nái að fylgja eftir góðu gengi í undanförnum leikjum þegar liðið mætir Norwich um helgina. Bolton hefur unnið þrjá heimaleiki að undanförnu og gert eitt jafntefli en liðið fer á útivöll gegn Norwich á morgun.
|
 |
fös 03.feb 2012 19:30
Magnús Már Einarsson
Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeið
Milan Stefán Jankovic, aðstoðarþjálfari Grindvíkinga, mun á mánudag fara til Sarajevo í Bosníu/Herzegóvínu þar sem hann fer á námskeið til að fá UEFA Pro þjálfaragráðuna.
|
fös 03.feb 2012 19:00
Elvar Geir Magnússon
Arnar Þór og góðir gestir í útvarpsþættinum á morgun
Arnar Þór Viðarsson verður í símaviðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á morgun. Þátturinn er á dagskrá milli 12 og 14 eins og alla laugardaga.
Arnar hefur átt góðu gengi að fagna með Cercle Brugge í Belgíu.
|
 |
fös 03.feb 2012 18:30
Elvar Geir Magnússon
Óeirðir í Egyptalandi - Tveir skotnir til bana í Suez
Óeirðir eru í Egyptalandi þar sem að götuslagsmál hafa verið í gangi milli lögreglu og íbúa í Kaíró. Spjót beinast að stjórnvöldum, lögreglu og hernum.
Kveikt var í byggingu við innanríkisráðuneyti landsins en mótmælandi og herlögreglumaður létust í átökum í dag. Lögreglan beitti táragasi á mótmælendur sem voru að kasta grjóti.
|
fös 03.feb 2012 18:10
Elvar Geir Magnússon
Villas-Boas: Terry áfram fyrirliði Chelsea
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að John Terry verði áfram fyrirliði liðsins þrátt fyrir að hafa misst bandið hjá enska landsliðinu.
Terry verður þó ekki með gegn Manchester United á sunnudaginn vegna meiðsla í hné.
|
 |
fös 03.feb 2012 17:40
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmaður Man Utd handtekinn fyrir kynþáttaníð
Stuðningsmaður Manchester United hefur verið ákærður fyrir kynþáttaníð. Atvikið átti sér stað í leik í ensku úrvalsdeildinni.
Howard Hobson er ásakaður um að hafa notað óvandað hótandi orðbragð og var handtekinn á leik United gegn Stoke City á þriðjudaginn síðasta.
|
fös 03.feb 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Þriðjudagsþraut Dominos - Svör og vinningshafar
Þá er komið að því að tilkynna vinningshafa í nýja liðnum, Þriðjudagsþraut Dominos. Þrír vinna í hverri viku stóra pizzu af matseðli.
Smelltu hér til að sjá þrautina
|
 |
fös 03.feb 2012 17:00
Elvar Geir Magnússon
Athygli vakin á fækkun áhorfenda á leikjum Arsenal
Mótmælendahópur hvetur stuðningsmenn Arsenal til að taka með sér svarta ruslapoka í leikinn gegn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Svörtu ruslapokana á að setja yfir auð sæti á vellinum til að vekja athygli á þeirri staðreynd að færri eru farnir að mæta á Emirates vegna lélegs árangurs liðsins.
|
fös 03.feb 2012 16:51
Elvar Geir Magnússon
Grétar Rafn ekki með Bolton á morgun
Grétar Rafn Steinsson er að glíma við meiðsli aftan í læri. Hann verður ekki með Bolton á morgun þegar liðið mætir Norwich á útivelli í ensku úrvalsdeildinni.
Frá þessu er greint í Bolton News en meiðslin eru ekki alvarleg og reiknað með að hann missi af þessum eina leik. Bolton er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
|
 |
fös 03.feb 2012 16:30
Magnús Már Einarsson
Kristinn Jakobsson: Það er mikil pólitík í þessu
,,Þetta er frábært tækifæri að koma hingað við bestu aðstæður og dæma alvöru leiki," sagði Kristinn Jakobsson þegar Fótbolti.net ræddi við hann á La Manga á Spáni í gær.
Kristinn er staddur á Spáni þar sem hann dæmir á Copa del Sol æfingamótinu en hann dæmir Rosenborg-Gautaborg á morgun og Tromsö-Kalmar á sunnudag ásamt Smára Stefánssyni og Birki Sigurðarsyni sem eru honum til aðstoðar.
Kristinn bíður síðan spenntur eftir næstu niðurröðun hjá UEFA fyrir leiki í Evrópudeildinni.
|
fös 03.feb 2012 16:00
Magnús Már Einarsson
Twitter dagsins - Elokobi steinsofandi
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter síðasta sólarhringinn. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á <a href="http://twitter.com/#!/Fotboltinet">@Fotboltinet</a>
|
 |
fös 03.feb 2012 15:40
Elvar Geir Magnússon
Brynjar Kristmunds: Rankaði við mér í sjúkrabílnum
- Myndasyrpa af atvikinu fyrir neðan
„Þetta var þungt og gott högg," segir Brynjar Kristmundsson, bakvörður Vals, sem steinrotaðist í leik Vals og Fjölnis í Reykjavíkurmótinu í gær.
Valsmenn unnu leikinn 5-0 en Brynjar þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik eftir að hafa lent í samstuði við Sindra Snæ Jensson, markvörð Vals.
|
fös 03.feb 2012 15:00
Elvar Geir Magnússon
Kristján Finnboga: Fyrst og fremst markmannsþjálfari
„Það hefur ekkert breyst. Bjarni er enn aðalmarkvörður," segir Kristján Finnbogason sem kom óvænt í markið hjá Fylki á Reykjavíkurmótinu í gær. Hann kom inn sem varamaður í jafnteflisleik gegn Þrótti.
Kristján verður 41 árs á árinu en hann er þekktastur sem markvörður KR um margra ára skeið. Síðustu ár hefur hann spilað í markinu hjá Gróttu.
|
 |
fös 03.feb 2012 14:55
Magnús Már Einarsson
John Terry ekki með gegn Manchester United
John Terry verður ekki með Chelsea þegar liðið mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag en hann er að glíma við hnémeiðsli.
|
fös 03.feb 2012 14:20
Magnús Már Einarsson
Tveir Danir á reynslu hjá ÍBV
Dönsku leikmennirnir Kenneth Stenild Nielsen og Christian Olsen verða til reynslu hjá ÍBV um helgina en þetta kemur fram á vef Eyjafrétta.
|
 |
fös 03.feb 2012 14:00
Magnús Már Einarsson
Mark Hughes segir Heiðar enn hafa hlutverki að gegna
Mark Hughes, stjóri QPR, segir að Heiðar Helguson hafi ennþá hlutverki að gegna hjá félaginu.
Hughes keypti framherjana Djibril Cisse og Bobby Zamora á lokadegi félagaskiptagluggans og því er samkeppnin orðin mikil fyrir Heiðar.
|
fös 03.feb 2012 13:30
Magnús Már Einarsson
Gerrard og Suarez með Liverpool gegn Tottenham
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun snúa aftur í liðið gegn Tottenham á mánudag eftir að hafa misst af 3-0 sigrinum á Wolves í vikunni en Kenny Dalglish staðfesti þetta á fréttamannafundi í morgun.
|
 |
fös 03.feb 2012 13:00
Magnús Már Einarsson
Tevez gæti spilað með Manchester City á tímabilinu
Framhaldssagan um Carlos Tevez heldur áfram en Argentínumaðurinn gæti nú mögulega spilað með Manchester City áður en tímabilið er úti.
Tevez hefur ekki komið við sögu síðan hann neitaði að hita upp í leik gegn FC Bayern í september og hann hefur síðan verið í fríi í Argentínu frá því í nóvember.
|
fös 03.feb 2012 12:46
Magnús Már Einarsson
Rio Ferdinand: Ég vil ekki vera fyrirliði landsliðsins
Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, segist ekki vilja taka við fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu.
Enska knattspyrnusambandið greindi frá því í morgun að John Terry verði ekki áfram fyrirliði landsliðsins á meðan ekki er búið að dæma í máli hans fyrir meinta kynþáttafordóma í garð Anton Ferdinand bróður Rio.
|
 |
fös 03.feb 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Darren Bent: Hlægilegt að orða mig við Liverpool
Darren Bent, framherji Aston Villa, segist ekki hafa íhugað að yfirgefa herbúðir félagsins í janúar. Þessi 27 ára gamli leikmaður var meðal annars orðaður við Liverpool en hann segir ekkert hafa verið til í þeim orðrómi.
|
fös 03.feb 2012 12:00
Elvar Geir Magnússon
Henry Birgir spáir í leiki helgarinnar á Englandi
- Jón Ólafs með núll rétta í vikunni
Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður á Vísi og Fréttablaðinu, er spámaður næstu umferðar í enska boltanum. Hann spáir hér í leiki helgarinnar á sinn einstaka hátt.
Hann getur allavega ekki fengið færri rétta en síðasti spámaður, Jón Ólafsson tónlistarmaður náði á ótrúlegan hátt að hafa engan réttan í síðustu umferð!
|
 |
fös 03.feb 2012 11:15
Magnús Már Einarsson
John Terry sviptur fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu
Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að svipta John Terry fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu. Mikið hefur verið fjallað um mál Terry í enskum fjölmiðlum undanfarna daga en hans bíða réttarhöld í júlí vegna ásakana um meint kynþáttaníð.
|
fös 03.feb 2012 11:00
Magnús Már Einarsson
Luis Suarez til Juventus?
Þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn hafi lokað fyrr í vikunni er nóg um að vera í slúðrinu.
|
 |
fös 03.feb 2012 10:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Ribery hefði viljað fá nýja leikmenn til Bayern
Franck Ribery, leikmaður Bayern München, er svekktur að félagið hafi ekki breikkað hópinn janúarglugganum.
Bayern ákvað að treysta á þá leikmenn sem eru til staðar en þrátt fyrir marga sterka leikmenn er leikmannahópur félagsins með þeim minni í þýsku úrvalsdeildinni.
|
fös 03.feb 2012 10:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Arteta: Þurfum að berjast um sæti í Meistaradeildinni
Mikael Arteta, leikmaður Arsenal, segir að andrúmsloftið í búningsherberginu hafi verið þrúgandi eftir jafnteflisleikinn gegn Bolton fyrr í vikunni.
Arsenal hefur aðeins fengið eitt stig af tólf mögulegum í síðustu fjórum leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Félagið er í sjöunda sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Chelsea í fjórða sætinu.
|
 |
fös 03.feb 2012 09:30
Elvar Geir Magnússon
Pressað á að bandið verði tekið af John Terry
Enska knattspyrnusambandið fær pressu víðsvegar að varðandi fyrirliðahlutverk John Terry hjá landsliðinu. Mörgum þykir ekki rétt að Terry sé fyrirliði Englands meðan hans bíða réttarhöld vegna ásakana um kynþáttaníð.
|
fös 03.feb 2012 09:00
Magnús Már Einarsson
Íslendingar með frægum: Mario Balotelli og Ronaldinho
Þá er komið aftur að hinum sívinsæla lið ,,Íslendingar með frægum fótboltamönnum" en eins og nafnið gefur til kynna eru þar birtar myndir af Íslendingum með frægum fótboltamönnum. Öllum er frjálst að senda okkur inn myndir af sér með frægum fótboltaköppum og á hverjum föstudegi birtum við fjórar nýjar slíkar myndir.
Sendu okkur mynd af þér og frægum fótboltakappa og láttu fylgja með smá texta um hvenær og hvar þú hittir hann og jafnvel mjög stutta sögu af því þegar þú hittir hann. Sendið endilega myndir á myndir@fotbolti.net.
|
 |
fös 03.feb 2012 08:30
Magnús Már Einarsson
Ragnar Sigurðsson: Þetta er algör snilld
Ragnar Sigurðsson lék fyrstu 45 mínúturnar með FC Kaupmannahöfn þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Samuel Eto´o og félaga í Anzhi Makhachkala i á æfingamóti á Spáni í gær.
|
fös 03.feb 2012 08:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Stuðningsmenn Liverpool fá færri aðgöngumiða á Old Trafford
Liverpool hefur fengið aðgöngumiða úthlutað fyrir viðureignina gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á Old Trafford þann 11. febrúar næstkomandi.
Miðunum fyrir þann leik hefur verið fækkað um tæplega þriðjung fyrir gestaliðið og því eru 2.100 miðar í boði fyrir stuðningsmenn Liverpool í stað 3.000.
|
 |
fös 03.feb 2012 07:43
Hafliði Breiðfjörð
Nesta fer ekki í Grindavík þrátt fyrir fréttatilkynninguna
Grindavík sendi fjölmiðlum fréttatilkynningu í síðustu viku og boðaði að Matarr Jobe væri genginn í raðir félagsins frá Val og hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Nú er ljóst að hann mun ekki fara og verður áfram hjá Val á næstu leiktíð.
|
fös 03.feb 2012 07:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Spearing hlakkar til að fá Suarez aftur í liðið
Jay Spearing, leikmaður Liverpool, hlakkar til að fá liðsfélaga sinn Luis Suarez aftur í liðið sem hefur afplánað átta leikja bann eftir kynþattníð hans í garð Patrice Evra, leikmann Man Utd.
Spearing telur að með endurkomu Suarez muni félagið berjast um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
|
 |
fös 03.feb 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason: Alvöru karlmannalið sem við höndlum ekki
,,Það er sárt að tapa svona stórt, við vorum inni í leiknum framan af og sprækir en þeir eru bara líkamlega sterkari en við eins og staðan er í dag. Alvöru karlmannalið sem við höndlum ekki," sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 5-0 tap gegn Val í Reykjavíkurmótinu í gær.
|
fös 03.feb 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Kristján: Ferlegt þegar Ási tekur faxtækið með sér upp í Árbæ
,,Þetta er pirrandi," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Vals eftir 5-0 sigur á Fjölni í Reykjavíkurmótinu í gær en sigurinn dugði þeim ekki til að komast í undanúrslit því aðrir leikir Fjölnis voru dæmdir þeim tapaðir þar sem þeir tefldu fram ólöglegum leikmanni. Þannig högnuðust andstæðingarnir, Fylkir og Þróttur.
|
 |
|
 |