Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. febrúar 2015 19:30
Alexander Freyr Tamimi
Garry Monk: Stórkostlegt skot hjá Shelvey
Monk var ánægður með Shelvey.
Monk var ánægður með Shelvey.
Mynd: Getty Images
Garry Monk, stjóri Swansea, var að vonum ánægður með 1-0 sigur sinna manna gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Southampton hefur verið á frábæru skriði, en frábært mark frá Jonjo Shelvey tryggði gestunum frá Wales sigurinn í dag.

,,Við lögðum rétt upp með leikinn. Við vissum að við yrðum að verjast á köflum og við náðum að pirra þá. Við nýttum færin sem við fengum og getum verið ánægðir," sagði Monk.

,,Með þessum sigri erum við komnir aftur á rétta leið. Þetta var stórkostlegt skot hjá Jonjo Shelvey og nóg til að vinna hvaða leik sem er."

Athugasemdir
banner
banner