Alen Halilovic er nafn sem knattspyrnuáhugamenn ættu að leggja á minnið.
Það hefur verið mikið látið með þennan 18 ára gamla Króata sem á, þrátt fyrir ungan aldur, sjö landsleiki að baki fyrir A-landslið Króatíu.
Hann var keyptur til Barcelona síðasta sumar en mörg af stærstu liðum Evrópu reyndu að falast eftir kröftum hans. Hjá Barcelona spilar hann með B-liði félagsins en það lið leikur í næstefstu deild á Spáni.
Halilovic minnti á sig með þessu flotta marki í gær þegar liðið sigraði Sabadell 4-1 en leikstíll Króatans þykir svipa mikið til Lionel Messi, stórstjörnu Börsunga.
Athugasemdir