Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. febrúar 2015 20:30
Alexander Freyr Tamimi
Victor Ibarbo í Roma (Staðfest)
Ibarbo er kominn til Roma á láni.
Ibarbo er kominn til Roma á láni.
Mynd: Getty Images
Victor Ibarbo er genginn til liðs við Roma á láni frá Cagliari, en þetta staðfesti fyrrnefnda félagið fyrir skömmu.

Roma mun geta keypt framherjann eftir tímabilið fyrir 12.5 milljónir evra, en félagið vildi styrkja framlínu sína eftir að Mattia Destro fór til AC Milan.

Roma er einnig við það að fá Seydou Doumbia frá CSKA Moskvu, en Ibarbo er kólumbískur landsliðsmaður.

Ibarbo gekk til liðs við Cagliari frá Atletico Nacional árið 2011, en hann hefur skorað tvö mörk í 13 deildarleikjum á þessu tímabili.

Ibarbo gæti mætt sínum félögum sínum í Cagliari í sínum fyrsta leik gegn Roma um helgina, en það tíðkast oft á Ítalíu að lánsmenn spili gegn félagi sínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner