Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
   mán 01. febrúar 2016 09:06
Magnús Már Einarsson
Lars Lagerback: Markið hjá Aroni var mjög gott
Lars Lagerback.
Lars Lagerback.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er aldrei gott að tapa og við viljum skapa sigurhefð," sagði Lars Lagerback landsliðsþjálfari í viðtali við heimasíðu KSÍ eftir 3-2 tapið gegn Bandaríkjunum í gærkvöldi.

„Í stöðunni 2-2 fengum við tvö mjög góð færi. Ef við horfum á leikinn heilt þá voru Bandaríkjamenn aðeins betri en við. Við urðum samt betri eftir því sem leið á leikinn. Þetta var góð reynsla fyrir okkur, við vorum með unga leikmenn og þetta var góður leikur."

Aron Sigurðarson skoraði í sínum fyrsta landsleik og Diego Jóhannesson fékk einnig tækifæri í hægri bakverðinum. Lars var spurður út í frammistöðu þeirra.

„Mér fannst þeir standa sig nokkuð vel. Markið hjá Aroni var mjög gott. Þegar þú getur skorað svona mörk þá hefur þú hæfileika. Nýju leikmennirnir hafa sýnt á æfingum og í leiknum að þeir hafa hæfileika og ef þeir halda áfram að leggja hart að sér þá gætu þeir komið mjög fljótlega inn í landsliðið."

Næstu leikir íslenska landsliðsins eru vináttuleikir gegn Danmörku og Grikklandi í mars en það eru síðustu leikirnir áður en hópurinn fyrir EM verður tilkynntur í lok maí.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner