Ólafur Páll Snorrason, þjálfari Fjölnis, var ánægður með sína menn eftir stórsigur gegn Leikni R. í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins fyrr í kvöld.
Óli Palli segist ætla að bæta tveimur til þremur leikmönnum við leikmannahópinn fyrir átök sumarsins.
Óli Palli segist ætla að bæta tveimur til þremur leikmönnum við leikmannahópinn fyrir átök sumarsins.
Lestu um leikinn: Fjölnir 5 - 0 Leiknir R.
„Þetta var flottur sigur, við spiluðum frábæran leik í dag. Leiknisliðið var kannski eitthvað aðeins laskað en við vorum það líka," sagði Óli Palli, sem er ánægður með ungu strákana sína
„Það er fullt af efnilegum strákum, hvort þeir fái séns eða spili eitthvað á eftir að koma í ljós. Ef leikmaður er nógu góður þá fær hann að spila, sama hvað hann heitir eða hversu gamall hann er."
Óli segist ánægður með hópinn en er þeirrar skoðunar að það sé alltaf hægt að gera betur. Félagið sé að skoða nokkra erlenda leikmenn.
„Ég er ánægður með hópinn, en ég vil samt sem áður bæta við tveimur eða þremur leikmönnum, mögulega. Það er mikið verið að skoða og vonandi klárast einhver mál á næstunni."
Athugasemdir