sun 01. mars 2015 22:22
Alexander Freyr Tamimi
Balotelli lofsamar Coutinho á Instagram
Coutinho skoraði frábært mark í dag.
Coutinho skoraði frábært mark í dag.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho átti frábæran leik þegar Liverpool tók sig til og vann 2-1 sigur gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Brasilíumaðurinn ungi skoraði stórbrotið sigurmark fyrir Liverpool og átti einnig þátt í fyrra markinu, sem Jordan Henderson skoraði.

Coutinho hefur nú skorað tvö frábær mörk í tveimur leikjum og fékk hann mikið hrós frá Brendan Rodgers eftir leikinn gegn City.

Það voru þó fleiri sem voru ánægðir með Coutinho. Meðal þeirra var Mario Balotelli, sem sat allan leikinn á bekknum gegn sínum gömlu félögum. Hann hrósaði Coutinho í hástert á Instagram eftir leik á meðan hann þakkaði stuðningsmönnum síns gamla félags fyrir.

Það að Balotelli hafi sett inn mynd á Instagram þrátt fyrir að hafa ekki spilað mínútu gæti gefið það í skyn að honum sé annt um félagið, en hann hefur verið sakaður um að leggja sig ekki nógu mikið fram.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner