Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   sun 01. mars 2015 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Doumbia tæpur fyrir stórleikinn gegn Juventus
Seydou Doumbia
Seydou Doumbia
Mynd: Getty Images
Roma fær Juventus í heimsókn í stórleik umferðarinnar á Ítalíu annaðkvöld.

Liðin eru í efstu tveim sætum deildarinnar og gæti Juventus hreinlega farið langt með að tryggja sér titilinn sigri liðið á mánudag en níu stigum munar á liðunum.

Seydou Doumbia, nýjasti liðsmaður Roma, gæti misst af leiknum vegna meiðsla en hann var keyptur frá CSKA Moskva í janúarglugganum og á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Doumbia var ekki í leikmannahópi liðsins gegn Feyenoord síðastliðinn fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner