Liverpool 2 - 1 Manchester City
1-0 Jordan Henderson ('11 )
1-1 Edin Dzeko ('26 )
2-1 Philippe Coutinho ('75 )
Tvö glæsimörk Liverpool réðu úrslitum í stórleiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
1-0 Jordan Henderson ('11 )
1-1 Edin Dzeko ('26 )
2-1 Philippe Coutinho ('75 )
Tvö glæsimörk Liverpool réðu úrslitum í stórleiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Lokatölur urðu 2-1 fyrir Liverpool liðið sem er komið í fimmta sæti deildarinnar og aðeins tveimur stigum frá Manchester United í þriðja sætinu.
Jordan Henderson kom Liverpool yfir með þrumuskoti fyrir utan teig og í slánna og inn á elleftu mínútu.
City jafnaði með marki Edin Dzeko á 26. mínútu en Sergio Aguero lagði markið upp á laglegan hátt.
Það var svo Philippe Coutinho se skoraði sigurmark Liverpool þegar stundarfjórðungur var enn eftir af venjulegum leíktíma. Hann lét þá vaða af löngu færi upp í samskeytin, glæsilegt mark.
Raheem Sterling lagði upp bæði mörkin hjá Liverpool í dag en hann hefur þar með lagt upp fleiri mörk á þessu tímabili en síðustu þrjú ár til samans.
Athugasemdir