Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. mars 2015 05:55
Arnar Geir Halldórsson
England í dag - Hverjir vinna deildarbikarinn?
Það er orðið langt síðan þessi vann titil á Englandi
Það er orðið langt síðan þessi vann titil á Englandi
Mynd: Getty Images
Það verður mikið um dýrðir í enska boltanum í dag en tveir stórleikir eru á dagskrá í deildinni áður en úrslitaleikur deildarbikarsins hefst.

Veislan hefst á Anfield þar sem Englandsmeistarar Man City verða í heimsókn. Klukkan 14:05 eigast svo Arsenal og Everton við á Emirates.

Hápunktinum verður svo náð með úrslitaleik deildarbikarsins en þar eigast við Lundúnarliðin Chelsea og Tottenham og fer leikurinn fram á hinum eina sanna Wembley.

Leikir dagsins:
12:00 Liverpool - Manchester City
14:05 Arsenal - Everton
16:00 Chelsea - Tottenham
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner