Einn íslendingur var með 13 rétta á enska getraunaseðlinum í gær og verður rúmum 4 milljónum króna ríkari fyrir vikið. Um er að ræða stuðningsmann Hattar á Egilsstöðum sem hefur tekið þátt í getraunastarfinu þar í fjölda ára.
Stuðningsmaðurinn er með liðið Bogason og tekur þátt í Meistaradeild Hattar. Hann hefur alltaf tippað eins og notað sama seðilinn í hverri viku undanfarin 7 ár.
Segja má að þolinmæði sé dyggð því nú uppsker hann stóran vinning. Hann notaði sparnaðarkerfi þar sem hann setur tvö merki á tíu leiki og eitt merki á 3 leiki.
Kerfið kallast 0-10-128, og kostar 2.176 krónur og ef öll táknin koma upp rétt eru 12.5% líkur á 13 réttum. Þess má geta að Bogason er á toppi Meistaradeildar Hattar, en í fyrra endaði liðið í neðsta sæti.
Þess má líka geta að tipparinn ætlar að gefa Hetti 10% af vinningnum til stuðnings félaginu.
Athugasemdir