Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. mars 2015 14:38
Hafliði Breiðfjörð
Ítalía: Emil lagði upp bæði í sigri Hellas Verona
Emil Hallfreðsson er að gera góða hluti hjá Hellas Verona í ítalska boltanum.
Emil Hallfreðsson er að gera góða hluti hjá Hellas Verona í ítalska boltanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cagliari 1 - 2 Verona
0-1 Luca Toni ('9 )
0-2 Juanito ('56 )
1-2 Daniele Conti ('90 )

Emil Hallfreðsson er sjóðheitur á miðjunni hjá Hellas Verona á Ítalíu en hann lagði upp bæði mörk liðsins í 1-2 sigri á Cagliari í ítölsku Serie A deildinni í dag.

Emil hefur núna lagt upp fimm síðustu mörk sem Hellas Verona hefur skorað og er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liðinu.

Hann byrjaði leikinn á að leggja upp mark fyrir Luca Toni á 9. mínútu og bætti svo um betur snemma í síðari hálfleiknum þegar hann lagði upp fyrir Juanito.

Daniele Conti minnkaði muninn fyrir heimamenn í lokin en það skipti engu máli, stoðsendingar Emils höfðu ráðið úrslitum í þessum leik.

Seinni stoðsendingu Emils má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner