sun 01. mars 2015 14:12
Hafliði Breiðfjörð
Lallana: Coutinho er litli töframaðurinn
Lallana fagnar á Anfield í dag.
Lallana fagnar á Anfield í dag.
Mynd: Getty Images
Adam Lallana leikmaður Liverpool var að vonum sáttur þegar liðið vann 2-1 sigur á ensku meisturunum í Manchester City í úrvalsdeildinni í dag. Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho skoraði sigurmarkið með þrumufleig í samskeytin.

,,Þetta var risa sigur fyrir okkur. Augnablikið er með okkur, þeir eru meistararnir en við verðskulduðum þetta," sagði Lallana eftir leik.

,,Litli töframaðurinn, Coutinho, kom svo í lokin með yndislegt mark. Með svona leikmenn getum við náð langt."

Liverpool hefur spilað með þrjá miðverði undanfarna mánuði og tvo vængbakverði. Það hefur farnast vel.

,,Kerfið okkar hefur verið að skapa vandamál hjá andstæðingunum, stjórinn sagði okkur að vera þolinmóðir og finna svæðin. Okkur fannst við vera óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik. Drengirnir sýndu karakter, margir spiluðu í framlengdum leik á miðvikudaginn og þurftu að fljúga lengi til baka en við sýndum að við getum barist áfram."

Athugasemdir
banner
banner
banner