Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. mars 2015 09:20
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Stórkostlegt samspil frá Brasilíu
Alexandre Pato er enn með töfra í tánum
Alexandre Pato er enn með töfra í tánum
Mynd: Getty Images
Alexandre Pato var á skotskónum fyrir Sao Paulo í Copa Libertadores í vikunni.

Pato var á sínum tíma helsta vonarstjarna Brasilíu en þrálát meiðsli hafa gert honum erfitt fyrir. Þau komu þó ekki í veg fyrir þetta glæsilega mark sem má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.

Afgreiðslan er góð hjá Pato en sóknaruppbyggingin er einkar glæsileg og býður uppá hælspyrnu og hágæða klobba.

Leikurinn endaði 4-0 fyrir Sao Paulo og bætti Pato við öðru marki seinna í leiknum.


Athugasemdir
banner