sun 01. mars 2015 10:15
Arnar Geir Halldórsson
Pellegrini: Munum sækja til sigurs
Manuel Pellegrini
Manuel Pellegrini
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, stjóri Man City, ætlar sér að sækja til sigurs á Anfield í dag.

Tölfræðin er ekki í liði með Englandsmeisturunum en Man City hefur ekki unnið á Anfield í síðustu 11 deildarleikjum liðanna á vellinum. Liverpool hefur unnið sjö af þessum ellefu en fjórum sinnum hafa þau gert jafntefli.

,,Það er alltaf erfitt að heimsækja þennan völl en við verðum að breyta þessari tölfræði. Við unnum Stoke á útivelli á þessu tímabili en það hafði ekki gerst í sex ár.” sagði Sílemaðurinn brattur.

,,Við munum spila til sigurs og spila aggresívan sóknarleik.” sagði Pellegrini.

Bæði lið eru á góðu róli í deildinni en tíu stigum munar á liðunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner