Óskar Smári Haraldsson, Fannar Örn Kolbeinsson, Hallgrímur Ingi Jónsson, Fannar Freyr Gíslason hafa allir ákveðið að leika með Tindastóli í sumar.
Þeir félagar spiluðu einnig allir með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra.
Tindastóll féll þá og mun því leika í 2. deildinni í sumar.
Óskar, Fannar Örn, Hallgrímur og Fannar Freyr eru allir uppaldir á Sauðárkróki.
Hér til hliðar má sjá mynd af þeim félögum en með þeim á myndinni er Páll Sindri Einarsson sem kom til Tindastóls frá Kára á dögunum.
Athugasemdir